Kjörsókn töluvert meiri nú en í fyrra

Klukkan 16:00 höfðu 37,64 pró­sent þeirra sem eru á kjör­skrá í Reykja­vík, kosið.

Kjörsókn hefur verið góð, í sam­an­burði við kosn­ing­arnar í fyrra, það sem af er degi í Reykja­vík. Samtals höfðu 37,64 pró­sent þeirra sem eru á kjör­skrá, kosið klukkan 16:00. Í fyrra voru það 35,82 pró­sent á sama tíma, en árið 2013 var fjöld­inn svip­aður og nú, eða 37,62 pró­sent.

Samkvæmt tölum frá því klukkan 17:00 hafa 45,31 pró­sent kosið í Reykja­vík, en í fyrra voru það 43,27 pró­sent.

Mun fleiri kusu utan kjör­fundar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár en í fyrra. Þegar utan kjör­fundi var lokað í gær­kvöld höfðu 22.493 kosið. Kvöldið fyrir kjör­dag alþing­is­kosn­inga í fyrra höfðu 19.222 kosið, eða ríf­lega 3.200 kjós­endum færri.

Samtals eru 248.502 kjós­endur á kjör­skrá á land­inu öllu. Þar af hafa 38.646 kosið utan kjör­fundar. Kjós­endur með lög­heim­ili utan höf­uð­borg­ar­svæðis gátu kosið í Smára­lind í dag til klukkan 17:00.

Uppfært: Tölum um kosn­ing­ar­þátt­töku frá klukkan 17:00 var bætt inn í frétt­ina þegar þær voru komnar fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár