Rekstur borgarinnar á fyrri hluta árs rúmlega tíu milljörðum lakari en gert var ráð fyrir

Afkoma A-hluta Reykja­vík­ur­borgar 3,8 millj­örðum króna verri en fjár­mála­á­ætlun hennar hafði ætlað. Afkoma fyr­ir­tækja í eigu borg­ar­innar var líka veru­lega nei­kvæð. Ástæðan er heims­far­aldur kór­ónu­veiru.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Sá hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekj­um, svo­kall­aður A-hluti, skil­aði 3.111 millj­óna króna tapi á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2020. Áætlun hafði gert ráð fyrir því að afkoma af rekstri hans yrði jákvæð um 736 millj­ónir króna. Því var afkoma A-hlut­ans 3.847 millj­ónum króna undir áætl­un.

Lakari rekstr­ar­nið­ur­staða skýrist einkum af lægri skatt­tekjum og lægri tekjum af sölu bygg­ing­ar­réttar.

Rekstr­ar­nið­ur­staða fyrir fjár­magnsliði var nei­kvæð um 2.648 millj­ónir króna en áætl­anir hafi reiknað með að hún yrði jákvæð um 2.083 millj­ónir króna. Nið­ur­staðan var því 4.731 millj­ónum krónum undir áætlun.

Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­inn­ar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­bú­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­ar­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­borg­­ar­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

[adspot]Sam­eig­in­legt rekstr­ar­nið­ur­staða bæði A- og B-hluta var nei­kvæð um 4,5 millj­arða króna, en áætl­aðir gerðu ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 5,9 millj­arða króna. Nið­ur­staðan varð því 10,4 millj­örðum króna verri en lagt hafði verið upp með í áætl­unum borg­ar­innar. Lakari rekstr­ar­nið­ur­stöðu má einkum rekja til áhrifa lækk­aðs álverðs og gjald­færslu geng­is­munar vegna veik­ingu krón­unnar frá ára­mótum hjá Orku­veitu Reykja­víkur.

Heild­ar­eignir sam­stæð­unnar sam­kvæmt sam­an­teknum efna­hags­reikn­ingi námu í lok júní 724,5 millj­örðum króna og heild­ar­skuldir ásamt skuld­bind­ingum voru 378,1 millj­arðar króna. Eigið fé hennar var því 346,5 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 47,8 pró­sent.

[links]Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi borg­ar­innar sem afgreiddur var í borg­ar­ráði í dag.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna þessa kemur fram að ástæða þess að rekstur borg­ar­innar er langt undir því sem áætl­anir gerðu ráð fyrir sé heims­far­aldur kóronu­veiru. Efna­hags­á­fallið sem gangi yfir heims­byggð­ina sökum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru sé farið að birt­ast í rekstri sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar. „Þannig hefur veik­ing krón­unnar umtals­verð áhrif á erlend lán Orku­veitu og álverð hefur lækkað með nei­kvæðum áhrifum á álaf­leiðu Orku­veitu. Mikill tekju­sam­dráttur hefur orðið hjá Faxa­flóa­höfnum og Strætó auk Sorpu bs. sökum sam­dráttar í ferða­þjón­ustu og minni umsvifa inn­an­lands. Gera má ráð fyrir áfram­hald­andi sam­drætti næstu miss­eri.“

Í frétta­til­kynn­ingu frá borg­inni er haft eftir Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra að borgin sýni nú skýr merki um heims­far­ald­ur­inn í fjár­hags­upp­gjöri sínu fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins. „Þyngst vegur tekju­sam­dráttur vegna atvinnu­leysis og minni umsvifa í efna­hags­líf­inu. Áberandi tekju­fall er einnig hjá Strætó og Faxa­flóa­höfnum. Hins vegar hafa aukin útgjöld fylgt við­brögðum við COVID-19. Rekstur mála­flokka hefur að öðru leyti gengið vel. Nið­ur­stöð­urnar eru í ágætu sam­ræmi við sviðs­myndir og spár fjár­mála­sviðs borg­ar­innar frá því í vor og und­ir­strika að standa þarf með sveit­ar­fé­lögum við núver­andi aðstæður enda bera þau uppi lykil grunn­þjón­ustu í sam­fé­lag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár