,,Hagkvæmasta leiðin til að takast á við loftslagsvána er að búa til markað fyrir mengun‘‘

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði, segir að ef fyr­ir­tæki valdi skaða, og skað­inn sé svo mik­ill að það getur ekki borgað þeim skaða­bætur sem fyrir verða, þá sé ekki þjóð­hags­lega rétt­læt­an­legt að fram­leiða við­kom­andi vöru.

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna fer fram í dag. António Guterres, aðal­rit­ari SÞ, hvatti alla þjóð­ar­leið­toga til að mæta á ráð­stefn­una með raun­hæfar áætl­anir um hvernig hver og ein þjóð getur aukið við núver­andi aðgerðir sínar til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Á heima­síðu Sam­ein­uðu þjóð­anna kemur fram að ekki er nóg að áætl­anir snú­ist aðeins um mót­væg­is­að­gerðir heldur verða þær einnig að varða leið­ina að fullri umbreyt­ingu hag­kerfa sem sam­rým­ast mark­miðum um sjálf­bæra þróun.

Forsagan og vandinn

Árið 2016 gerðu flestar þjóðir heims með sér sam­komu­lag í lofts­lags­málum sem kennt er við París, og nefnd­ist því Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Sam­komu­lagið fólst í því að hver og ein þjóð setti sér mark­mið um minni losun og aðgerð­ar­á­ætlun um hvernig mark­mið­unum yrði náð.

Margar þjóðir settu sér þó ekki nægi­lega metn­að­ar­full mark­mið miðað við þol­mörk vist­kerfa. Vís­inda­menn eru flestir sam­mála um að þol­mörk þeirra vist­kerfa sem fólk er háð með einum eða öðrum hætti er 1,5 gráðu hækkun. Ef allar rík­is­stjórnir standa við þau mark­mið sem þau settu sér er áætlað að með­al­hita­stig hækki um 3 gráður.

Ofan á þetta bæt­ist að þrátt fyrir að mark­miðin hafi ekki verið nægi­lega metn­að­ar­full þá eru flestar þjóðir heims langt frá því að standa við skuld­bind­ingar sínar.

Markvissasta og hagkvæmasta leiðin

Þar sem svo erf­ið­lega hefur reynst fyrir margar þjóðir að standa við skuld­bind­ingar sínar er vert að spyrja hver sé mark­viss­asta og hag­kvæm­asta leiðin til að ná því mark­miði að halda hita­stigi innan nauð­syn­legra marka. Samkvæmt sér­fræð­ingum Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og OECD er hækkun kolefn­is­gjalds mark­viss­asta leiðin til að ná slíkum mark­miðum.

Þrátt fyrir það þá helm­ing­aði núver­andi rík­is­stjórn, undir for­ystu Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs, fyr­ir­ætl­anir fyrri rík­is­stjórnar um hækkun kolefn­is­gjalds.

Vegna áherslna Sam­ein­uðu þjóð­anna á umbreyt­ingu hag­kerfa og ráð­legg­inga frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum og OECD um hækkun kolefn­is­gjalds, setti Kjarninn sig í sam­band við Þórólf Geir Matth­í­as­son, pró­fess­ors í hag­fræði og spurði um til­gang og verkun kolefn­is­gjalds og mögu­legar efa­semd­araddir frá hægri og vinstri.

Hver er hug­myndin að baki kolefn­is­gjaldi?

„Fyr­ir­tæki sem fram­leiðir eitt­hvað gagn­legt og verð­mætt en losar meng­andi efni út í umhverfið, það fram­leiðir vöru sem það selur ein­hverjum kaup­anda, en í þess­ari fram­leiðslu verður einnig til reykur, sót eða úrgangs­efni. Þannig er mengun í raun­inni fram­leiðsla á hlið­ar­af­urðum sem veldur þriðja aðila, sem er ekki að kaupa vör­una, skaða. Kostn­að­ur­inn við að takast á við afleið­ingar meng­un­ar­innar, hann lendir á þessum „þriðja“ aðila, en ekki á þeim sem býr til meng­un­ina með starf­semi sinni.

Hug­myndin með umhverf­is­gjöldum eins og kolefn­is­gjaldi er sú að láta fram­leið­and­ann borga fyrir þau óþæg­indi sem starf­semi hans veldur „þriðja“ aðila. Þannig er í raun­inni búinn til mark­aður fyrir mengun, þar sem ekki var til mark­aður áður. Stjórn­völd, eða ein­hver annar aðili, selur meng­ar­anum rétt til að menga og meng­ar­inn borgar í réttu hlut­falli við fjölda „meng­un­ar­ein­inga‘‘ sem hann þarf að kaupa.

Þetta er heila pæl­ingin. Hún er ekki flókin, það er sem sagt, þegar að þú fram­leiðir að þá verða til tvær vörur, önnur er gagn­leg, ein­hver kaupir hana og borgar þér fullt verð fyrir og það eru engin vand­ræði í sam­bandi við það. En vöru­fram­leið­and­inn fram­leiðir einnig eitt­hvað sem er veldur skaða, eins og t.d. CO2 eða eitt­hvað þess háttar. Á meðan fram­leið­and­inn þarf ekki að borga neitt fyrir að valda vand­ræðum þá mælir hann ekki einu sinni hvað hann fram­leiðir mikla mengun.

Þá segja menn sem svo, bíddu nú við, af hverju kópí­erum við ekki það sem á sér stað milli aðil­anna sem eru að kaupa og selja fram­leiðslu­vör­una. Segjum að um sé að ræða efna­verk­smiðju sem er að fram­leiða járn, af hverju notum við ekki sömu aðferð við að jafna reikn­inga járn­fram­leið­and­ans og járn­kaup­and­ans ann­ars vegar og járn­fram­leið­and­ans og meng­un­ar­þol­ans hins vegar, þó með öfugum for­merkjum, þannig að meng­un­ar­þol­inn selji í raun­inni meng­ar­anum rétt­inn til að menga?

Það sem svo er hægt að gera er að láta meng­un­ar­kvót­ann gufa upp, þannig að hann minnki um til dæmis 5% á ári, þannig að þú verðir alltaf annað hvort að kaupa við­bót við kvót­ann sem þú hefur, ef þú ert með meng­andi fyr­ir­tæki, eða að þú verður að gera eitt­hvað með fram­leiðslu­ferlið hjá þér sem minnkar los­un­ina.“

Ef fyrirtæki veldur meiri skaða en gagni þá er framleiðslan ekki réttlætanleg

Hvað með þau áhrif sem kolefn­is­skattur gæti haft á fyr­ir­tæki. Sum þeirra gætu lagt upp laupana, ekki satt?

„Það gæti gerst, það eru alveg dæmi um að það hafi gerst, en fyr­ir­tækið veldur skaða og ef skað­inn er svo mik­ill að það getur ekki borgað þeim skaða­bætur sem fyrir verða þá er ekki þjóð­hags­lega rétt­læt­an­legt að fram­leiða við­kom­andi vöru.

Fyr­ir­tækið er að taka vinnu­afl, fjár­muni og nátt­úru­auð­lindir og breyta því í tvær vörur, mengun og fram­leiðslu­vör­una sína. Nettó­tekj­urnar af þess­ari starf­semi eru þá ekki nógar til þess að borga þann skaða sem þær valda gagn­vart þriðja aðila. Það er bara alveg eins og að fyr­ir­tæki sem fram­leiðir ein­hverja vöru sem ekki er lengur eft­ir­spurn eftir fer á haus­inn.

En svo laga fyr­ir­tækin sig líka að nýjum veru­leika. Núna hafa álverin til dæmis losað mjög mikið af CO2. Ef það væru sett á frek­ari kolefn­is­gjöld þá myndu þau leggja miklu meira í það að finna út ein­hverja aðferð til þess að losa súr­efnið úr súrál­inu með öðrum hætti en að binda það við kolefni. Það yrði mjög hag­kvæmt fyrir þá að fara í svo­leiðis aðgerðir. Álvers­eig­endur eru að vinna í þessu af meir alvöru núna af því þeir þykj­ast sjá að þeir munu þurfa að borga meira fyrir koltví­sýr­ingslosun í fram­tíð­inni.

Tíma­ritið Economist hefur mælt með aðferð við sölu meng­un­ar­réttar sem gengur lengra í að nýta tækni mark­aðsvið­skipta með því sem hefur verið nefnt „cap and trade‘‘, sem snýst um að setja þak eða kvóta og láta síðan fyr­ir­tækin versla með meng­un­ar­kvót­ann. Þetta er svipuð hugsun og með kvóta­kerfið í sjáv­ar­út­veg­inum. Í sjáv­ar­út­veg­inum er þetta þannig að gef­inn er út heild­ar­kvóti og svo eru ein­hverjir sem eiga rétt á að veiða og þeir mega versla með þennan rétt sín á milli.

Fyr­ir­tæki fóru á haus­inn við kvóta­kerfið eða hættu starf­semi. Sala meng­un­ar­kvóta er hvorki betra né verra en það sem átti sér stað þegar kvót­inn var settur á í sjáv­ar­út­veg­inum. Þannig að fjár­magns­eig­endur hafa komið á svona kerfum og sóst eftir svona kerfum þannig að það er ekk­ert verið að brjóta lög­mál kap­ít­al­ism­ans með þessu, alls ekki. Þvert á móti er verið að nota lög­mál kap­ít­al­ism­ans í þágu heild­ar­innar.

Verðið sem fyr­ir­tækin væru til­búin til að kaupa meng­un­ina á væri mjög mis­mun­andi í upp­hafi. Alveg eins og þegar kvót­inn var settur á, þá voru sum fyr­ir­tæki sem að gátu auð­veld­lega keypt kvóta á gang­verði á meðan önnur gátu það ekki, vegna þess að til­kostn­aður þeirra var mis­mun­andi. Það sem hins vegar ger­ist þegar að þau fara síðan að keppa um þessi meng­un­ar­rétt­indi að þá verður ávinn­ingur þeirra af því að menga að hann verður miklu lík­ari yfir alla lín­una. “

Áhrifin af niðurgreiðslum minni en af því að hækka kolefnisgjaldið

Hefur sýnt sig að kolefn­is­gjald virki eða er hug­myndin bara kenn­ing?

„Það hefur sýnt sig að þetta virkar. Mark­viss­asta leiðin er að vera með ein­hvers konar sam­bland af kvóta og mark­aðs­kerfi vegna þess að þá fara menn að vinna beint í því að minnka los­un­ina.

Menn hafa svo sem verið að beita fleiru en bara kolefn­is­gjöldum, menn hafa líka verið að beita nið­ur­greiðslum á raf­knúnum far­ar­tækjum eins og til dæmis í Noregi. Þar hefur sýnt sig að áhrifin af því að gefa eftir gjöld eða nið­ur­greiða til dæmis raf­magns­bíla, eru miklu minni heldur en af því að hækka kolefn­is­gjaldið.

Nið­ur­greiðsla á raf­magns­bílum hefur reynst ágætis stuðn­ingur við selj­endur Tesla bif­reiða í Noregi, þó svo ódýr­ari raf­magns­bílar séu alveg jafn umhverf­is­vænir.

Ef þú borgar niður kostnað við að aka um á raf­magns­bíl, það sem að þá ger­ist er að þú selur fleiri Teslur og færri Nissan Leaf. En það hvort þú ekur um á Teslu eða Nissan Leaf hefur alveg sömu áhrif á los­un­ina. En Tesla eig­and­inn fékk miklu fleiri krónur í með­gjöf heldur en sá sem keypti sér Nissan Leaf.“

Hrein markaðslausn sem borgar sig

Má ætla að hækkun kolefn­is­gjalds fari ljúf­legar niður hjá fólki sem er vinstra megin í póli­tík­inni, vegna þess að það má líta svo á að kolefn­is­gjald sé skattur?

„Með þess­ari aðferð er settur kvóti og síðan er heim­iluð verslun með kvót­ann. Þá er meng­unin orðin eins og hver önnur vara á mark­aði. Það er mik­il­vægt að átta sig á að kolefn­is­gjöld eða kaup á kolefn­isk­vóta er ekki skatt­heimta heldur er bara verið að flytja til hver það er sem ber kostn­að­inn.

Ef við lítum á hefð­bundna mengun, sót og þess háttar, að þá eru það nágrannar hinnar meng­andi starf­semi sem bera kostn­að­inn. Ef þú setur á meng­un­ar­gjald þá lendir sá kostn­aður á þeim sem býr til meng­un­ina.

Með CO2 þá eru það nátt­úru­lega að ein­hverju leiti fram­tíð­ar­kyn­slóðir sem bera kostn­að­inn. Þannig að við erum að stað­setja kostn­að­inn núna og þar fyrir utan að þvinga hag­kerfið inn á þró­un­ar­braut sem er vænt­an­lega ódýr­ari með hlið­sjón af fram­tíð­inni heldur en ef ekk­ert er að gert.“

Hvernig er hægt að sann­færa þá sem eru vinstra megin í póli­tík­inni um mark­aðs­lausn á vand­anum?

„Ég sé ekki af hverju það ætti að skipta máli hvort kött­ur­inn er svartur eða hvítur ef hann veiðir mýs? Þetta er bara stjórn­tæki.“

Kolefn­is­gjald hefði ekki aðeins áhrif á fyr­ir­tæki. Fólk þyrfti að borga meira fyrir til dæmis bensín og það myndi vænt­an­lega vera erf­ið­ast fyrir tekju­lægri hópa ekki satt?

„Það á nátt­úru­lega við um alla hluti að verð hafa bæði tekju­skipt­ing­ar­á­hrif, áhrif á hvernig þú notar fram­leiðslu­þætti og hvaða vörur eru fram­leiddar og not­aðar.

Það er hægt að með­höndla þessi áhrif, tekju­skipt­ing­ar­á­hrifin og áhrifin á vöru­fram­leiðsl­una í tvennu lagi. Setjum sem svo að þú setjir á hátt kolefn­is­gjald og hvetjir þannig til minni los­unar CO2. Þá opn­ast sá mögu­leiki að nota hluta af tekj­unum til að vera með mót­væg­is­að­gerðir til dæmis með því að minnka virð­is­auka­skatt eða eitt­hvað þess háttar á móti.

Það er líka hægt að vera með ann­ars konar mót­væg­is­að­gerðir. Til dæmis ef það eru ein­hverjir þjóð­fé­lags­hópar sem menn hafa áhyggjur af að þá er hægt að bæta þeim þetta upp til dæmis með hærri húsa­leigu­bótum ef leigj­endur eru þeir sem eru taldir til­heyra ákveðnum tekju­hópum.

Aðal­at­riðið er að það er hægt að takast á við slíka hluti með sjálf­stæðum hætti þannig að það eru ekki sjálf­stæð rök gegn hug­mynd­inni að þetta kosti eitt­hvað fyrir ein­hvern.“

Ríkisstjórnin helmingaði hækkun

Kolefn­is­gjald virð­ist enn standa í póli­tíkusum á Íslandi. Til dæmis átti að hækka kolefn­is­gjald um 100% en svo var gjaldið aðeins hækkað um 50%, af hverju er þetta svo að þínu mati?

„Þeir hugsa um næstu 2-4 árin en ekki lengra. Við sáum það þegar Vinstri græn komu inn í rík­is­stjórn að eitt það fyrsta sem þeir gerðu var að lækka þessi gjöld frá hug­myndum Bene­dikts Jóhann­es­sonar. Hann var með hug­mynd um hækkun á þessum gjöldum þegar hann var í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum og Bjartri fram­tíð. Þessir þrír flokkar voru búnir að sam­þykkja 100% hækkun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár