Stéttarfélagið Efling hefur falið Stefáni Ólafssyni, sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum hjá Eflingu og prófessor í félagsfræði, og Indriða Þorlákssyni, fyrrverandi ríkisskattstjóra, að vinna skattatillögur sem félagið stefnir á að leggja fram í komandi kjaraviðræðum.
[links]Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, vonast til þess að Alþýðusamband Íslands (ASÍ) muni gera tillögurnar að sínum. Þær munu liggja fyrir mjög fljótlega.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, við hana í þættinum 21 sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Hægt er að sjá stiklu úr þættinum hér að neðan.
Hún segist ekki hafa setið mannmarga samráðsfundi aðila vinnumarkaðarins með stjórnvöldum sem hafa farið reglulega fram undanfarin misseri, en að það sem hún hafi heyrt af þeim gefi henni ekki mikla von um að lausnin á kjaradeilum sé á næsta leyti.
[adspot]„Aðkomunni að því hverjir fá að sitja þessa fundi, henni er stýrt þannig að fulltrúar verka- og láglaunafólks, það er passað upp á það að það séu ekki allt of margir svoleiðis á þessum fundum. Það sem ég hef heyrt gefur mér ekki miklar vonir um að lausnin sé á næsta leyti. Við í Eflingu erum að láta vinna skatttillögur fyrir okkur. Stefán Ólafsson og Indriði Þorláksson eru í þeirri vinnu. Þannig að ég bind miklu meiri vonir við að lausnin komi frá okkur sjálfum og þegar við leggjum okkar hugmyndir fram fyrir stjórnvöld þá er það þeirra að skoða og meta hversu mikill viljinn í raun er til þess að viðhalda stöðugleikanum, eins og þeim verður mjög tíðrætt um, en raunverulegum stöðugleika. Sem að byggir á einhverskonar í það minnsta tilraun og einhverskonar upphafi á því að tryggja efnahagslegt réttlæti á þessu landi.“
Sólveig Anna segist vonast til þess að tillögurnar liggi fyrir mjög fljótlega. „Við erum að vinna hratt og örugglega. Vonandi geta þær tillögur orðið tillögurnar sem ASÍ leggur fram. Það væri náttúrulega best ef að ASÍ gæti sameinast um að leggja fram þessar tillögur sem sínar.[...]Ég sit í miðstjórn ASÍ. Og í efnahags- og skattanefnd ASÍ og er mjög vongóð um að af þessu geti orðið.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir