Menn sem drepa konurnar sínar

Rann­sókn­ar­skýrsla í Noregi sýnir fram á það að vís­bend­ingar um heim­il­is­of­beldi voru ekki teknar alvar­lega í fjöl­mörgum til­vikum. Að lokum voru kon­urnar, fórn­ar­lömbin í lang­flestum til­vikum, myrtar. Herdís Sig­ur­gríms­dóttir kynnti sér nið­ur­stöð­urnar.

Í Noregi hefði verið hægt að koma í veg fyrir fjölda­mörg morð og mann­dráp á síð­ustu 22 árum, hefðu vís­bend­ingar og til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi verið teknar alvar­lega. Rann­sókn­ar­skýrsla sem norska dóms­mála­ráðu­neytið tók á móti í vik­unni sýnir að heim­il­is­of­beldi var und­an­fari um 70% morð­mála þar sem maður eða kona drápu maka sinn eða fyrr­ver­andi maka. Í mörgum til­fellum hafði ofbeldið verið til­kynnt til yfir­valda, en lítið verið aðhafst í mál­unum.

„Við vissum öll að hún var í hættu”

Hin tutt­ugu ára gamla Marit Andr­e­as­sen hafði reynt að fá nálg­un­ar­bann á barns­föður og fyrr­ver­andi sam­býl­is­mann sinn í febr­úar 2010. Hún var beðin að koma aftur dag­inn eftir, þegar lög­reglan hefði ráð­rúm til að tala við hana. “Þau reyndu að róa hana með þeim orðum að flestar morð­hót­anir væru orðin tóm”, rifjar faðir hennar upp nokkrum árum seinna í mjög góðum útvarps­heim­ild­ar­þætti NRK. Fjórum dögum síðar var hún látin, eftir hálf­tíma langt kverka­tak barns­föð­ur­ins. (Tíma­lengdin er stað­fest, því hann tók sjálfur upp atburð­inn á vef­mynda­vél.)

Vinir Maritar og fjöl­skylda höfðu lengi ótt­ast um hana. “Við vissum öll að hún var í hættu,” sagði æsku­vin­kona Maritar við VG. “Hún hafði fengið margar hót­anir frá barns­föð­urnum.” Mál Maritar er að mörgu leyti dæmi­gert, ef marka má rann­sókn­ina sem birt var í vik­unni. Dráps­mað­ur­inn átti við geð­ræn vanda­mál að stríða (eins og 70,6% dráps­manna). Hann sagð­ist hafa misst stjórn á sér vegna afbrýði­semi, sem er algeng­asta upp­gefna ástæða mann­drápa á maka (40,1%).

Fjöl­skyldan hafði séð hætt­una fyrir löngu. Marit hafði lengi vel afneitað því að hætta væri á ferðum en var farin að verða hrædd líka. Þetta er algengt mynstur, en ekki gefið upp neitt hlut­fall í skýrsl­unni.

Rétt fyrir atburð­inn hafði hún haft sam­band við lög­reglu og barna­vernd­ar­nefnd án þess að fá nein sér­stök við­brögð. (Í 72% til­fella var haft sam­band við lög­reglu, heil­brigðis- eða félags­yf­ir­völd fyrir atburð­inn, en ein­ungis í 32,2% til­fella skráðu yfir­völd hjá sér að hætta gæti verið á ferðum. Enn sjaldnar var gripið til aðgerða.)

Hið dæmigerða morðmál

Skýrslan tekur fyrir 177 morð- og mann­dráps­mál á árunum 1990-2012. Dráp á maka eða fyrr­ver­andi maka eru um fjórð­ungur allra mann­dráps­mála í Noregi, sem er sam­bæri­legt við önnur þróuð lönd.

Á Íslandi sýna tölur frá rík­is­lög­reglu­stjóra að í fimmt­ungi mann­dráps­mála á árunum 2000-2013 hafði maður eða kona drepið maka eða fyrr­ver­andi maka (5 af 26 mann­dráps­málum). Helgi Gunn­laugs­son afbrota­fræð­ingur bendir hins vegar á að þjóð­fé­lagið sé fámennt og mann­dráps­mál þ.a.l. fátíð hér á landi. Sé litið til lengri tíma sé lík­legt að hlut­föllin hér á landi séu lík því sem ger­ist í Noregi.

Í lang­flestum mann­drápum í nánum sam­böndum, hart­nær níu af tíu til­fellum, drepur karl konu. Þau hafa verið gift í um 10 ár að með­al­tali og eru um eða rétt undir fer­tugu. Líkt og með aðra afbrota­töl­fræði er mikil fylgni við félags­leg vanda­mál. Meiri­hluti þeirra sem ráða mökum sínum bana berst þegar í bökkum á öðrum sviðum. Þannig er lík­legt að ger­and­inn hafi kom­ist í kast við lögin (að með­al­tali fjórum sinnum), neyti áfengis eða fíkni­efna úr hófi, eða glími við geð­ræn vanda­mál. Í mjög mörgum til­fellum var parið í fjár­hagskröggum.

Karlar í afbrýðisemi, konur í sjálfsvörn

Ef litið er almennt á morð og mann­dráp er það langal­geng­ast að menn drepi aðra menn. Karlar eru um 95% ger­enda og 80% fórn­ar­lamba, í almennri mann­dráps­töl­fræði.

Annað gildir hins vegar um mann­dráp í nánum sam­böndum, þ.e. þar sem maki drepur maka eða fyrr­ver­andi. Dráps­menn­irnir eru vissu­lega flestir karlar, en hart­nær 90% fórn­ar­lambanna eru konur.

Alþjóð­legar rann­sóknir sýna að þegar menn drepa kon­urnar sínar er það oft tengt því að þeim finnst þeir vera að missa tökin á kon­unni. Hún hefur kannski reynt að slíta sam­band­inu, beðið um skilnað eða reynt að flytja frá mann­inum. Susanne Fjellda­len, sem rann­sak­aði maka­dráp í meist­ara­rit­gerð sinni, segir að fræðin nefni ólíkar útskýr­ingar á þess­ari hegðun manna. Þeirra á meðal eru feðra­veld­is­ein­kenni sam­fé­lags­ins og karl­mennsku­gildi sem mönn­unum finnst sam­fé­lagið krefj­ast að þeir upp­fylli.

Síðast en ekki síst eru það menn sem finn­ist þeir hafa eign­ar­hald á kon­unni sem kyn­veru. Þetta á ekki hvað síst við í ofbeld­is­sam­böndum. Rann­sókn­ar­skýrslan sem vitnað var til hér að ofan finnur sterk tengsl á milli end­ur­tek­ins heim­il­is­of­beldis og karl­manna sem segj­ast hafa drepið kon­una sína vegna afbrýði­semi.

Konur sem drepa menn­ina sína gera það oftar en ekki í sjálfs­vörn, sýna alþjóð­legar rann­sóknir. Ef þær fremja morð að yfir­lögðu ráði, er það yfir­leitt að und­an­gengnum hót­unum manns­ins, þannig að þær bera fyrir rétti að þær hafi ótt­ast um líf sitt eða barn­anna.

Hægt að fyrirbyggja, nema ef...

Einn flokkur mann­dráps­mála skar sig veru­lega úr. Í 9% mál­anna fannst engin for­saga um heim­il­is­of­beldi, hvorki hjá yfir­völdum né aðstand­endum. Bæði ger­endur og fórn­ar­lömb í þessum flokki höfðu að með­al­tali hærri menntun og voru minna lík­legir til að stríða við félags­leg og heilsu­fars­leg vanda­mál. Fáir ger­endur í þessum flokki voru á saka­skrá fyrir drápið.

Höfundar skýrsl­unnar nefna að það sé mjög erfitt að fyr­ir­byggja þess konar mann­dráp og morð. Þau gera ekki boð á undan sér, því áhættu­þætt­ina skortir.

Nið­ur­staða skýrsl­unnar er engu að síður sú að mörgum lífum mætti bjarga með því að taka heim­il­is­of­beldi föstum tökum. Í rúmum helm­ingi til­fella hefur verið til­kynnt um heim­il­is­of­beldi fimm sinnum eða oftar. Það á að vera nóg ástæða til að vera á varð­bergi og byrgja brunn­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár