Opinn fundur um aðgerðir gegn skattaskjólum

Upp­lýs­inga­skrif­stofan Norð­ur­lönd í fókus á Íslandi, Alþjóða­mála­stofnun Háskóla Íslands og Kjarninn standa fyrir opnum fundi um aðgerðir gegn skattaund­anskotum. Fund­ur­inn fer fram í Norræna hús­inu milli 10 og 12 og verður streymt beint frá honum á vef Kjarnans.

Aðal­gestur fund­ar­ins verður Torsten Fensby, sem leiddi sam­eig­in­legt verk­efni nor­rænu rík­is­stjórn­anna um gerð upp­lýs­inga­skipta­samn­inga á sviði skatta­mála við aflands­svæði. Fensby kom einnig til lands­ins í októ­ber 2013 og tók þátt í morg­un­verð­ar­fundi sem fjall­aði um hvort skatta­skjól heyri sög­unni til.

Á fund­inum í dag mun Fensby ræða um bar­áttu sína gegn skattaund­anskotum, meðal ann­ars í ljósi nýlegra afhjúpana á Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Líkast til höfðu þær afhjúp­anir hvergi meiri áhrif en hér á Íslandi þar sem þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sagði af sér í kjöl­far þess að greint var frá því að hann og eig­in­kona hans hefðu átt félag skráð í þekktu skatta­skjóli.

Að lok­inni fram­sögu Fensby og spjalli fund­ar­stjóra við hann verða pall­borðsum­ræður sem þátt taka í Bryndís Krist­jáns­dóttir skatta­rann­sókn­ar­stjóri, Brynjar Níelsson, vara­for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, og Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri. Fund­ur­inn verður á ensku og er öllum opinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár