Landsbankinn sópar til sín nýjum íbúðarlánum, jukust um 39 milljarða

Lands­bank­inn bætti lang­mestu við sig af íbúða­lánum allra á síð­asta ári. Alls juk­ust íbúða­lán bank­ans til ein­stak­linga um 39 millj­arða króna. Á sama tíma juk­ust íbúða­lán Arion banka til ein­stak­linga um 13,6 millj­arða króna og íbúða­lán Íslands­banka til ein­stak­linga um 11,0 millj­arða króna.

Almenn íbúða­lán Íbúða­lána­sjóðs dróg­ust hins vegar saman um 21,6 millj­arða króna á árinu 2014. Fyrir hverja krónu sem hann lánar út þá greiða við­skipta­vinir sjóðs­ins upp rúm­lega fimm krónur af lánum. Hlut­deild Íbúða­lána­sjóðs á íbúða­lána­mark­að­inum er samt sem áður um 50 pró­sent. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Kjarnans um íbúða­lána­mark­að­inn.

Aukning eða sam­dráttur í íbúða­lánum á árinu 2014

|

Create infographics

Landsbankinn bætir langmestu við sig

Mikil bar­átta stendur nú yfir milli við­skipta­bank­anna um að heilla nýja íbúða­lán­tak­endur. Líkast til hefur eng­inn bank­anna lagt meira í þá veg­ferð und­an­farin miss­eri en Lands­bank­inn. Aug­lýs­ingar hans sem bein­ast að fyrstu kaup­endum eða þeim sem ætla að end­ur­fjár­magna virt­ust á tíma­bili vera all­staðar. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á við­skipta­bank­anna þrjá og spurði þá um aukn­ingu íbúða­lána á síð­asta ári. Lands­bank­inn svar­aði því til að aukn­ing íbúða­lána hjá honum á síð­asta ári hafi verið 39 millj­arðar króna. Um 65 pró­sent lán­anna voru verð­tryggð en 35 pró­sent óverð­tryggð.

Alls nema íbúða­lán bank­ans um 164,5 millj­örðum króna og hann er því enn minnstur við­skipta­bank­anna þriggja á þessum mark­aði, þótt hann eigi ekki langt í land við að ná Íslands­banka með þessu áfram­haldi. Íslands­banki bætti við sig um ell­efu millj­örðum króna af íbúða­lánum á árinu 2014 og heild­ar­um­fang íbúð­ar­lána hans til ein­stak­linga í lok þess árs nam 187 millj­örðum króna.

Arion banki stærstur af viðskiptabönkunum

Út úr árs­reikn­ingum Arion banka má lesa að útlán hans juk­ust um 13,6 millj­arða króna á síð­asta ári. Bankinn er langstærstur við­skipta­bank­anna á íbúða­lána­mark­aði, en heildar­í­búð­ar­lán hans til ein­stak­linga námu 271,6 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót. Sú stærð ræðst meðal ann­ars af því að Kaupþing, sem Arion banki byggir á, var stór­tæk­ari en aðrir við­skipta­bankar fyrir hrun að ná til sín við­skiptum íbúð­ar­kaup­enda. Auk þess yfir­tók bank­inn íbúða­lán á fimmta þús­und ein­stak­linga þegar bank­inn tók yfir 56 millj­arða króna útlána­safn frá slita­stjórn Dróma í lok árs 2013. Um var að ræða lán sem áður til­heyrðu Spron, Frjálsa fjár­fest­ing­ar­bank­anum og eigna­safni Seðla­banka Íslands.


Markaðshlutdeild Íbúðalánasjóðs hrynur


Íbúða­lána­sjóður er hins vegar stærstur allra á mark­aði. Hann birtir ekki árs­reikn­ing sinn fyrir árið 2014 fyrr en í næstu viku og því mið­ast tölur yfir útlán hans í þess­ari sam­an­tekt við stöðu útlána sjóðs­ins um mitt síð­asta ár.

Alls voru útlán sjóðs­ins til ein­stak­linga 623,5 millj­arðar króna í lok júní 2014. Staða hans á mark­aði hefur hins vegar farið hríð­versn­andi und­an­farin ár. Á síð­asta ári lán­aði sjóð­ur­inn til að mynda ein­ungis 4,7 millj­arða króna út í ný útlán, sam­kvæmt mán­að­ar­skýrslum hans. Við­skipta­vinir hans borg­uðu hins vegar upp 26,3 millj­arða króna af lánum sínum á árinu 2014. Við­skipta­vinir sjóðs­ins eru því að greiða upp rúm­lega fimm krónur af lánum fyrir hverja eina krónu sem er tekin að láni hjá sjóðnum.

Upp­greiðslur á lánum Íbúða­lána­sjóðs 2009-2014

|

Create infographics

Mark­aðs­hlut­deild Íbúða­lána­sjóð í íbúð­ar­lánum var talin vera á bil­inu 55 til 60 pró­sent árið 2011, sam­kvæmt umsögn sem Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja skil­uðu inn til Alþingis það ár. Hún er nú um 44 pró­sent.


Lífeyrissjóðirnir standa í stað


Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru líka stórir leik­endur á íbúða­lána­mark­aði. Þeir lána skjól­stæð­ingum sínum svokölluð sjóðs­fé­laga­lán sem að lang stærstu leyti ertu notuð til íbúð­ar­kaupa. Umfang þeirra lána var 171,3 millj­arðar króna í lok síð­asta árs, sem var 4,8 millj­örðum krónum lægra en það var í árs­lok 2013.

Umfang þess­arra sjóðs­fé­laga­lána hefur hald­ist nokkuð stöðugt und­an­farin ár. Það er til að mynda svipað í dag og það var fyrir sex árum síðan. Ein ástæða þess er sú að bannað var að taka svo­kallað láns­veð, þar sem for­eldrar eða aðrir vild­ar­menn lána fólki veð í sinni eign gegn láni frá líf­eyr­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár