Hlutfall fyrirtækja á meðal leigusala hefur tvöfaldast á nokkrum árum

Þrátt fyrir að ein­stak­lingar séu enn algeng­ustu leigusalar á íbúða­mark­aði hefur hlut­fall fyr­ir­tækja sem stunda slíka starf­semi tvö­fald­ast frá árinu 2011. Bankar eru hverf­andi breyta á þessum mark­aði. Samliða þess­ari þróun hefur leigu­verð tvö­fald­ast.

Hlutfall fyr­ir­tækja á meðal leigu­sala íbúð­ar­hús­næðis hefur auk­ist úr 21 pró­sent árið 2011 í 41 pró­sent í ár. Ein­stak­lingar voru 73 pró­sent leigu­sala fyrir sjö árum en eru nú 57 pró­sent þeirra. Hlutur fjár­mála­stofn­ana á leigusala­mark­að­inum hefur dreg­ist saman úr sjö pró­sentum í upp­hafi tíma­bils­ins í tvö pró­sent nú. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum frá Þjóðskrá Íslands.

[links]Fjallað er um þessa þróun á vef Íbúða­lána­sjóðs. Þar segir að grein­ingin fyrir árið 2018, sem byggi á 5.622 leigu­samn­ingum sem þing­lýst var á mán­að­ar­tíma­bili í sumar, gefi góða vís­bend­ingu um stöðu leigu­mark­að­ar­ins og þróun hans í gegnum tíð­ina. Þrátt fyrir að ein­stak­lingar séu enn algeng­asti leigusal­inn hafi fyr­ir­tæki aukið hlut sinn hratt og hlut­deild fjár­mála­fyr­ir­tækja, sem sátu enn uppi með umtals­vert magn íbúð­ar­hús­næðis eftir hrunið á árinu 2011, hefur minnkað mikið.

Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur tvö­fald­ast á síð­ustu átta árum sam­hliða því að hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög hafa orðið fyr­ir­ferða­meiri á íslenska leigu­mark­að­inum. Þar ber helst að nefna félög á borð við Heima­velli og Almenna leigu­fé­lagið.

[adspot]Á síð­ustu tveimur árum hefur leigu­verðið hækkað um 30 pró­sent. Í nýlegri könnun sem gerð var fyrir Íbúða­lána­sjóð kom fram að þriðji hver leigj­andi borgi meira en helm­ing af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu og fáir þeirra geta safnað sér sparifé vegna hás leigu­kostn­aðar. Ein­ungis 14 pró­sent þeirra sem eru á leigu­mark­aði vilja vera þar.

Í maí sendi Íbúða­lána­sjóður 20 leigu­fé­lögum sem eru með lán frá sjóðnum bréf þar sem kallar er eftir upp­lýs­ingum um verð­lagn­ingu leigu­í­búða í þeirra eigu, og eftir atvikum um hækk­anir á húsa­leigu þeirra til leigu­taka. Í bréf­inu var kallað eftir svörum um hvort og þá hvernig skil­yrðum reglu­gerðar um lán sjóðs­ins séu upp­fyllt. Á meðal þeirra sem hafa fengið lán frá sjóðnum eru hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög.

Stærstu hagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lög lands­ins hafa varið hækk­anir sínar með þeim rökum að þau hafi ein­göngu verið að „að­laga“ leigu­samn­inga fast­eigna­safna sem þau hafi keypt af rík­inu að mark­aðs­verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár