Borgar sig að hætta með plastumbúðir?

Stað­genglar fyrir plast geta verið enn þá hættu­legri fyrir umhverfið.

Plasturðun
Plast­urðun Urðun plasts er varla sjálf­bær lausn, en end­ur­vinnsla veldur oft mik­illi mengun. Mikið af plast­mengun Vest­ur­landa er flutt úr landi. Mynd: MOHAMED ABDULRAHEEM / Shutterstock

Plast­mengun er eitt stærsta vanda­mál sem mann­kynið glímir við en jafn­framt er afar erfitt að leysa það. Á und­an­förnum árum hefur nokkur áhersla verið lögð á það að draga úr eða hætta alfarið notkun á plast­um­búðum, til dæmis utan um græn­meti og ávexti í mat­vöru­versl­unum. Þó svo að slík breyt­ing kunni að hljóma vel þekkjum við enn sem komið er ekki nógu vel hvaða afleið­ingar það kann að hafa.

Ekki eins einfalt og virðist í fyrstu

Í skýrslu sem unnin var af sam­tök­unum Green Alliance á Bret­landi er kafað í umhverf­is­á­hrif þess að skipta út plast­um­búðum fyrir ann­ars konar umbúðir. Skýrslan bygg­ist að miklu leyti á við­tölum við tals­fólk mat­vöru­versl­ana í Bret­landi. Henni er meðal ann­ars ætlað að varpa ljósi á reynslu versl­ana af því að hætta notkun á plast­um­búðum eða taka upp ann­ars konar umbúðir í stað­inn fyrir plastið.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár