Eitt myndrit: Kjötframleiðsla á Íslandi

Jafnvel þó kinda­kjöt­neysla hafi dreg­ist saman á síð­ustu ára­tugum hefur fram­leiðslan auk­ist.

Laun sauð­fjár­bænda stefna í að verða 56 pró­sent lægri á þessu ári en í fyrra og nán­ast öll sauð­fjárbú verða rekin með tapi. Oddný Steina Vals­dóttir, for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, lýsir þessu í bréfi sem hún sendi Alþing­is­mönnum um miðjan síð­asta mánuð.

Það myndi kosta íslensk stjórn­völd tæp­lega 1.859 millj­ónir króna að bæta sauð­fjár­bændum tap þeirra vegna sauð­fjár­rækt­un­ar­innar, eins og Land­sam­tök sauð­fjár­bænda hafa farið fram á.

Fjallað var ítar­lega um málið í frétta­skýr­ingu í Kjarn­anum á dög­unum.

„Þessi staða er grafal­var­leg eins og bændur hafa ítrekað bent á. Margra mán­aða við­ræður við stjórn­völd hafa hins vegar litlu skil­að. Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda telja því ein­sýnt að bændur og Alþingi taki höndum saman og bregð­ist við þessum bráða­vanda án taf­ar,“ segir í bréfi Oddnýjar Steinu.

Stjórn­völd eru langt komin með að móta þær til­lögur sem lagðar verða fram til að mæta stöðu sauð­fjár­bænda. Þær munu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, snúa því að leysa þann bráða­vanda sem felst í tug­pró­senta kjara­skerð­ingu til bænda og fela í sér umtals­verð útgjöld fyrir rík­is­sjóð verði til­lög­urnar sam­þykkt­ar.

Nær öll fram­leiðsla kinda­kjöts fer fram á haustin, lang mest í sept­em­ber og októ­ber. Þá þegar hafa bændur tekið á sig kostn­að­inn við ræktun sauð­fés­ins. Fram­leiðsla ann­arra kjöt­flokka, svo sem svínum, ali­fuglum, kálfum, nautum og kúm er jafn­ari yfir allt árið, og skammt­arnir minni í hvert sinn.

Neysla kinda­kjöts hefur minnkað nokkuð á síð­ustu ára­tugum. Árið 2015 – sem eru nýj­ustu aðgengi­legu tölur Hagstofu Íslands – neytti hver Íslend­ingur að jafn­aði um 19,5 kílóum af kinda­kjöti. Mest neyttu Íslend­ingar af ali­fugla­kjöti, eða um 27,6 kílóum að jafn­aði. Næst mest neyttu Íslend­ingar af svína­kjöti, eða 14,1 kíló að jafn­aði.

Á sama tíma og neysla kinda­kjöts á hvern íbúa hefur dreg­ist saman, hefur fram­leiðslan auk­ist tals­vert á und­an­förnum árum. Magn fram­leidds kinda­kjöts fór aftur upp fyrir 10 þús­und tonn árið 2014, í fyrsta sinn síðan 1988 þegar með­al­neysla kinda­kjöts á hvern Íslend­ing var 33,2 kíló.

Fram­leiðsla ann­arra kjöt­flokka hefur einnig auk­ist. Þar er helst að nefna svína­kjöt og ali­fugla­kjöt sem meira er fram­leitt af í takt við eft­ir­spurn og neyslu.

Ef tölum um heild­ar­neyslu og heild­ar­fram­leiðslu er umbreytt í vísi­tölur, þe. hlut­fall miðað við fram­leiðslu og neyslu árið 1983 sést glögg­lega að þróun kinda­kjöt­fram­leiðsl­unar er ekki í jöfnum takti við neyslu þess­arar land­bún­aðar.

Sé heild­ar­neyslu- og heild­ar­fram­leiðslu­tölum ann­arra land­bún­að­ar­af­urða umbreytt á sama hátt má sjá mun eðli­legra sam­band eft­ir­spurnar og fram­leiðslu/fram­boðs. Hér að neðan hefur verið búin til vísi­tala úr neyslu- og fram­leiðslu­tölum ali­fugla­kjöts og svína­kjöts.

Eins og sjá má er aug­ljós fylgni milli fram­leiðslu­breyt­inga og neyslu­breyt­inga, jafn­vel þó aukn­ing í neyslu svína- og ali­fugla­kjöts sé meiri en í fram­leiðslu þess­ara teg­unda.


Í upp­haf­legri útgáfu vísi­tölu­mynd­rit­anna voru vísi­tölur heild­ar­fram­leiðslu bornar saman við vísi­tölur neyslu á íbúa á hverju ári. Réttari fram­setn­ing er nú hér í birt­ingu og mynd­ritin skýrð nánar. Nið­ur­staðan er á end­anum sú sama: Fram­leiðslu­breyt­ingar kinda­kjöts hald­ast ekki í hendur við neyslu­breyt­ingar kinda­kjöts, ólíkt því sem greina má á neyslu og fram­leiðslu ali­fugla­kjöts og svína­kjöts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár