Flóttamannabúðir á háfjallahóteli

Skelfing greip um sig meðal flótta­mann­anna. Þau sátu í rútu sem hafði tveimur tímum áður keyrt út frá ókunnri borg. Osló hét hún víst. Noregur var áfanga­staður sem þau höfðu haldið að væri öruggur. Og svo keyrði rútan út af þjóð­veg­inum og snigl­að­ist upp hlykkj­óttan fjall­veg, út í myrkar óbyggðir í húmi nætur. Eftir á sögðu flótta­menn­irnir við norska blaðið Aften­posten að þeir hefðu haldið að sinn síð­asti dagur væri upp runn­inn. Margir áttu sárar minn­ingar frá ofbeldi í heima­land­inu, lífs­háska sem þau höfðu lent í á erf­iðu ferða­lagi og mann­vonsku kald­rifj­aðra smygl­ara. Nokkrir byrj­uðu að gráta hástöfum. En svo renndi rútan í hlað við háfjalla­hót­elið Hornsjø, í nágrenni við Lil­lehammer. Morg­un­inn eftir vakn­aði flótta­fólkið við algjöra kyrrð og fjalla­sýn sem rúm­aði heila ólymp­íu­leika fyrir ell­efu árum síðan.

Hornsjø er eitt af mörgum hót­elum í Noregi sem nú hýsa flótta­fólk, til lengri eða skemmri tíma. Norska sjón­varps­stöðin TV2 segir frá því að um 8000 flótta­menn búi á hót­elum víðs vegar um Noreg, gjarna í nátt­myrkr­inu í Norður-Noregi eða á öðrum afskekktum stöðum. Reikn­ingur norsku útlend­inga­stofn­un­ar­innar hleypur á 6,5 millj­ónum norskra króna á sól­ar­hring, um 100 millj­ónir íslenskra króna.

Útlend­inga­stofn­unin seg­ist vilja skipta út hót­elgist­ing­unni fyrir ein­fald­ari aðbúnað í íþrótta­sölum eða álíka. En fólk heldur bara áfram að streyma inn, og þá er ein­fald­ara að senda fólk þangað sem þegar eru upp­búin rúm. Auðvitað koma upp til­lögur um annað húsa­rými: íþrótta­hallir, gamlar her­búðir, óseld hús sem standa auð. Í nágrenni Stafang­urs hefur meira að segja komið til tals að flótta­fólk geti gist í aflögðum útsjáv­ar­í­búða­bragga sem áður var tengdur olíu­bor­p­alli en stendur nú á eða við land. Þó hefur Noregur ekki fengið í fangið nema brota­brot af þeim fólks­fjölda sem hefur streymt til Sví­þjóðar.

Ekki rúm fyrir þau á gistihúsinu

Í Svíþjóð er allt orðið fullt. Sænski fjár­mála­ráð­herr­ann varar flótta­fólk við að koma til Sví­þjóðar því það geti ekki treyst því að fá þak yfir höf­uðið fyrir vet­ur­inn. Sænska kerfið er sprengt. Svíþjóð getur ekki skotið skjóls­húsi yfir fleiri flótta­menn, segir rík­is­stjórnin, og hefur sótt um neyð­ar­að­stoð til ESB. Sænska stjórnin vill að Evr­ópu­sam­bandið telji landið með Grikk­landi og Ítalíu, í hópi þeirra landa sem þegar hafa sprengt getu sína til að geta tekið á móti flótta­mönnum svo vel sé.


Svíþjóð áætlar að um 190.000 manns muni koma til lands­ins áður en árið er liðið í þeim til­gangi að sækja um hæli. Hlut­falls­lega er þetta miklu fleiri en komið hafa til Þýska­lands, sem þó hefur verið hvað mest í fréttum fyrir að taka flótta­fólki opnum örmum. Þjóð­verjar munu lík­lega taka við einni milljón fram að ára­mótum, en Þjóð­verjar eru átta sinnum fleiri en Svíar, svo miðað við höfða­tölu er álagið 60% meira á sænska kerfið. Flótta­manna­fjöld­inn í Svíþjóð á þessu ári til­svarar því að 6500 flótta­menn kæmu og sæktu um hæli á Íslandi.

Nágranna­löndin Noregur og Danmörk fá ekki nema brota­brot af sænska flótta­manna­straumnum til sín. Hér er gott yfir­lit norska blaðs­ins Aften­posten á mis­mun­andi mót­tökum flótta­fólks í skand­in­av­ísku lönd­unum þremur. Noregur á von á 25-30 þús­und manns og Danmörk ekki nema 15 þús­undum, enda hafa dönsk yfir­völd fátt gert til að laða til sín flótta­fólk.

Tjaldbúðir flóttamanna

Við flótta­manna­mót­tök­una í Malmö er risin tjald­borg. Fyrstu tjöld­unum var slegið upp fyrir tveimur vikum og nú er þar pláss fyrir 400 flótta­menn. “Yfir­leitt þarf fólk ekki að vera þarna lengur en fimm til sex tíma,” segir Rexhep Hajrizi, starfs­maður flótta­manna­mót­tök­unnar við sænska blaðið Dagens nyheter. Okkur finnst þetta ekki góð lausn en við eigum ekki ann­ars völ. Þetta er þak yfir höf­uðið og er hlýtt. Þetta er þús­und sinnum betra en að bíða úti á bíla­stæði.”

Tjald­búð­irnar eru ekki hugs­aðar sem íveru­staður, heldur bið­stofa. En raun­veru­leik­inn er að hátt í 2000 manns koma til Sví­þjóðar um Malmö á sól­ar­hring. Um 250 manns gistu í tjald­búð­unum aðfara­nótt föstu­dags og þeim fjölgar.

Ólíkar aðferðir Norðurlandanna

Ein af ástæð­unum fyrir því að Norðmenn eiga í basli við að koma flótta­fólk­inu fyrir þrátt fyrir miklu minni fjölda er sú að þar á bæ skylda regl­urnar hæl­is­leit­endur til að búa á sér­stökum gisti­stöðum á vegum rík­is­ins. Í Svíþjóð geta hæl­is­leit­endur fundið sér íveru­stað sjálfir, um leið og búið er að skrá þá inn í landið. Báðar lausn­irnar hafa nokkuð til síns ágætis en einnig ókosti. Norðmenn eru að byggja upp bákn en Svíar lenda í að hæl­is­leit­endur hópi sig saman í fátækum hverfum þar sem margir eru fyrir og erfitt að ná til þeirra til að aðstoða þá til þátt­töku í sænsku sam­fé­lagi.

Rasistaflokkarnir láta til sín taka

Bæði í Noregi, Svíþjóð og Danmörku eru stjórn­mála­flokkar sem vildu helst að útlend­ingar héldu sig utan landamær­anna. Fram­fara­flokk­ur­inn norski situr nú í rík­is­stjórn, sem hefur dregið þó nokkuð úr kok­hreyst­inni. For­mað­ur­inn Siv Jensen ákvað samt sem áður að gleyma því í smá­stund að hún væri fjár­mála­ráð­herra, þegar hún hvatti norsk sveit­ar­fé­lög í sumar til að neita að taka á móti flótta­mönnum.

Í Svíþjóð hefur breið­fylk­ing stjórn­mála­flokka náð sam­komu­lagi um breyt­ingar á útlend­inga­lögum og mót­töku flótta­manna, gagn­gert til þess að ein­angra öfga­hægri­flokk­inn Sví­þjóð­ar­demókratana. Og í Danmörku leggur Þjóð­ar­flokk­ur­inn það til að jafn­vel eftir að flótta­fólk fær hæl­is­um­sókn sam­þykkta verði það samt sem áður vistað á sér­stökum, rík­is­reknum gisti­stöðum. Flokk­ur­inn vill líka að draga úr allri aðstoð sem flótta­fólk fær til að aðlag­ast þjóð­fé­lag­inu, læra tungu­málið og fá vinnu, til þess að það geri sig ekki of heim­an­komið. “Við leggjum þannig áherslu á það við þetta fólk að það ætti ekki að búast við að Danmörk verði heim­ili þeirra til fram­tíðar,” segir for­maður Þjóð­ar­flokks­ins Kristian Thulesen Dahl.

Hins vegar veit fag­fólk í þessum geira mæta­vel hversu mik­il­vægt það er að vel tak­ist til í mót­töku flótta­mann­anna, aðbún­aði, menntun og aðlögun. Í

nýlegri skýrslu um flótta­manna­mál

varar OECD við sleif­ar­lagi í aðlögun flótta­manna. Nýjar og gamlar rann­sóknir sýna að inn­flytj­endur sem ekki ná fótum í nýju þjóð­fé­lagi eiga á hættu að lenda í fátækt­ar­gildru með til­heyr­andi félags­legum vanda­málum. Engu að síður megi búast við þjóð­hags­legum ávinn­ingi af inn­flytj­enda­straumnum til lengri tíma litið, bæði vegna atvinnu­þátt­töku þeirra og fram­lags þeirra til að yngja upp þjóð­fé­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár