Möguleg ljós- og lyktmengun af nýju landeldi við Þorlákshöfn þurfi nánari skoðun

Sveit­ar­stjórn­ar­fólk í Ölfusi gerir athuga­semdir við að litla umfjöllun um ljós­mengun og enga um kröfu sveit­ar­fé­lags­ins um að úrgangur verði geymdur inn­an­dyra sé að finna í umhverf­is­mats­skýrslu um fyr­ir­hugað land­eldi Geo Salmo.

Fyrirhugað uppbyggingarsvæði landeldis Geo Salmo er við bergbrúnina vestan Þorlákshafnar.
Fyr­ir­hugað upp­bygg­ing­ar­svæði land­eldis Geo Salmo er við berg­brún­ina vestan Þor­láks­hafnar. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Skipu­lags- og umhverf­is­nefnd Sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss telur nokkra ágalla vera á umhverf­is­mats­skýrslu sem lögð hefur verið fram vegna fyr­ir­hug­aðs fisk­eldis á landi á vegum fyr­ir­tæk­is­ins Geo Salmo, sem áformar að fram­leiða 24 þús­und tonn af laxi árlega í land­eld­is­stöð vestan Þor­láks­hafnar þegar fram líða stundir.

Fjallað var um umhverf­is­mats­skýrsl­una á fundi nefnd­ar­innar fyrr í vik­unni og sagð­ist nefndin í umsögn sem lögð var fram telja „miður“ hve lítið rými ljós­mengun fengi í skýrsl­unni, þrátt fyrir að sveit­ar­fé­lagið hefði á fyrri stigum bent sér­stak­lega á að það teldi að umhverf­is­matið skyldi fjalla um ljós­mengun.

„Ekki er tekið á hvernig komið verði í veg fyrir ljós­mengun í þeim örfáu línum sem fjalla um hana í kafl­anum um hljóð­vist,“ segja nefnd­ar­menn í Ölfusi og vísa til mats­skýrsl­unnar þar sem fram kemur að lýs­ing innan fram­kvæmda­svæð­is­ins komi helst frá gróð­ur­húsum, og muni sjást frá Suð­ur­strand­ar­vegi og göngu- og reið­leið sem liggur um svæðið. Í mats­skýrsl­unni segir þó að við ákveðin skil­yrði megi búast við að lýs­ing sjá­ist frá Þor­láks­höfn, en að áhrifin séu talin óveru­leg.

„Nær væri að fjalla um hvernig komið verði í veg fyrir óþarfa ljós­mengun, til dæmis með því að beina ljósi frá nið­urá við og frá alfara­leið og Þor­láks­höfn,“ segir í umfjöllun nefnd­ar­innar.

„Ærin ástæða til að hafa áhyggjur af lyktmengun“

Skipu­lags- og umhverf­is­nefnd sveit­ar­fé­lags­ins segir einnig að ekki verði séð að fjallað sé um þá „sjálf­sögðu kröfu sveit­ar­fé­lags­ins að úrgangur verði geymdur inn­an­dyra“ í skýrsl­unni, heldur sé vísað til þess að farið verði eftir lögum um holl­ustu­hætti auk þess sem fjallað sé um ríkj­andi vind­áttir.

[adspot]

„Sveit­ar­fé­lagið vill benda á að sam­kvæmt skýrsl­unni blæs vindur í tæp­lega 10% til­fella frá stöð­inni, til Þor­láks­hafnar og því ærin ástæða til að hafa áhyggjur af lykt­mengun,“ segir í umsögn nefnd­ar­innar.

Umhverf­is­mats­skýrsla vegna land­eldis Geo Salmo var lögð fram í snemma í des­em­ber­mán­uði og er nú í umsagn­ar­ferli hjá Skipu­lags­stofnun. Frestur til þess að veita umsögn um skýrsl­una eða koma með athuga­semdir rennur út 24. jan­úar.

Geo Salmo áformar sem áður segir að reisa eld­is­stöð þar sem hægt verði að fram­leiða allt að 24 þús­und tonn af laxi á ári, en til stendur að fram­kvæmd­inni verði skipt í tvo áfanga. Gert er ráð fyrir því að lífmass­inn í eld­is­stöð­inni geti orðið allt að 12.160 tonn að hámarki.

Landeldisáform gætu haft töluverð áhrif á grunnvatn

Mikil vinnsla grunn­vatns fylgir starf­semi land­eld­is­stöðva og fram kemur í umhverf­is­mats­skýrslu að áhrif fram­tíð­ar­vinnslu, ekki bara hjá Geo Salmo heldur öðrum aðilum sem hyggja á land­eldi við Þor­láks­höfn, geti jafn­vel haft veru­lega nei­kvæð áhrif á grunn­vatn á svæð­inu.

„Mik­il­vægt er að móta mót­væg­is­að­gerðir og vöktun til að draga úr áhrifum vatns­tök­unnar og leggur Geo Salmo áherslu á að hefja bor­anir sem fyrst á svæð­inu til að afla frek­ari gagna til að fylla inn í óvissu sem er um áhrifin. Sjálfbær nýt­ing vatns­auð­lind­ar­innar er ekki ein­ungis mik­il­væg út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum heldur er hún grund­vall­ar­for­senda rekst­urs fisk­eld­is­stöðvar Geo Salmo og því hagur fyr­ir­tæk­is­ins að vakta áhrif vinnsl­unnar og grípa til mót­væg­is­að­gerða ef sýnt þykir að verið sé að ganga nærri auð­lind­inni,“ segir í umhverf­is­mats­skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár