Hræringar í Portúgal – Munu Sósíalistar halda völdum?

Portú­galar ganga að kjör­kössum í dag en almennur stöð­ug­leiki hefur ríkt á und­an­gengnu kjör­tíma­bili sam­an­borið við árin þar á undan. Nú mun koma í ljós hvort vinstri blokkin haldi eður ei.

António Costa og flokkur hans á fjöldafundi þann 4. október 2019.
António Costa og flokkur hans á fjölda­fundi þann 4. októ­ber 2019. Mynd: EPA

Þrátt fyrir sögu­lega sundr­ung meðal vinstri manna í Vestur-Evrópu hefur António Costa, for­sæt­is­ráð­herra Portúgal og leið­toga Sós­í­alista­flokks­ins, tek­ist að halda saman fjórum vinstri flokkum í heilt kjör­tíma­bil. Almennur stöð­ug­leiki og auk­inn hag­vöxtur hefur ríkt í Portúgal í stjórn­ar­tíð Costa. Færri ferða­menn og tolla­stríð gætu hins­vegar komið hart niður á Portú­gölum á næstu árum.

Costa og Sós­í­alista­flokknum er spáð sigri í þing­kosn­ing­unum sem fara fram í Portúgal í dag. Costa hefur verið for­sæt­is­ráð­herra lands­ins und­an­farin fjögur ár eftir að hafa myndað rík­is­stjórn með vinstri blokk­inni; Portú­galska komm­ún­ista­flokknum og hinum umhverf­is­sinn­aða Vistvæna flokki, sem oftar en ekki er kall­aður Græni flokk­ur­inn. Þessari vinstri blokk tókst að fella aðeins 11 daga gamla minni­hluta­stjórn sem leidd var af sós­í­alde­mókrat­anum Passoas Cohelo, en banda­lag hans hafði verið við stjórn­völin á árunum 2011 til 2015.

Portú­gölsk stjórn­mál eru að mörgu leyti frá­brugðin stjórn­málum ann­arra ríkja innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Portúgal er til að mynda eitt af fimm löndum í Evr­ópu­sam­band­inu sem ekki er með öfga­sinn­aðan hægri­flokk á þingi. Hin eru Bretland, Írland, Lúx­em­borg og Malta. Á sama tíma áttu fáir von á því að Costa og vinstri­banda­lag hans myndi end­ast út kjör­tíma­bilið. Spán­verjar sem deila Íber­íu­skag­anum með Portú­gölum hafa til sam­an­burðar gengið í gegnum fjórar mis­mun­andi kosn­ingar á jafn mörgum árum vegna ólgu á vinstri væng stjórn­mál­anna þar í landi.

Portú­gölsk stjórn­völd hafa einnig gert sitt besta til að taka á móti eins mörgum inn­flytj­endum og mögu­legt er. „Við þurfum fleiri inn­flytj­endur og við munum ekki líða útlend­inga­hatur,“ sagði Costa á blaða­manna­fundi í fyrra. Inn­flytj­endur hafa reynst Portú­gölum dýr­mætir til að manna störf í ferða­manna­iðn­að­inum, sem vaxið hefur hratt á und­an­förnum árum. Portú­gölsk stjórn­völd hafa einnig áhyggjur af háum með­al­aldri, sem sífellt fer hækk­andi, og horfa til inn­flutn­ings ungs vinnu­afls í því sam­bandi.

Rétt úr kútnum

Þrátt fyrir að Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi þurft að bjarga portú­galska efna­hags­kerf­inu með 78 millj­arða evra neyð­ar­láni fyrir ein­ungis átta árum, hafa Portú­galar náð að rétta úr kútnum, sér­stak­lega í stjórn­ar­tíð Costa og Sós­í­alista­flokks­ins. Atvinnu­leysi hefur dreg­ist saman, úr 12,3 pró­sent, þegar síð­ustu kosn­ingar fóru fram, niður í 6,3 pró­sent. Á sama tíma hefur hefur hag­vöxtur verið mik­ill bor­inn saman við flest önnur lönd í Evr­ópu­sam­band­inu.

Vöru­við­skipta­hall­inn, sem var rúm­lega 7 pró­sent árið 2014, var kom­inn niður í 0,4 pró­sent í lok síð­asta árs. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur farið fögrum orðum um hvernig Costa og rík­is­stjórn hans tókst að snúa við blað­inu.

Costa lof­aði fyrir kosn­ing­arnar árið 2015 að draga úr aðhalds­semi fyr­ir­vera hans, aðhalds­semi sem rík­is­stjórn Cohelo neydd­ist til að beita til að standa við samn­inga Portúgal við Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn.

Máttur ferðamannaiðnaðarins

Rétt eins og á Íslandi hefur ferða­manna­iðn­að­ur­inn stór­auk­ist í Portúgal á síð­ustu árum sem hefur veitt efna­hags­líf­inu í land­inu byr undir báða vængi. Portúgal hefur verið eft­ir­sókn­ar­verður áfanga­staður sökum þess meðal ann­ars hve ódýrt landið er miðað við til að mynda Spán og önnur lönd í Suður-Evrópu. Sam­dráttur hefur einnig orðið á fjölda ferða­manna til Norður-Afríku vegna auk­innar hættu á hryðju­verkum og breyttum stjórn­ar­háttum í löndum sem áður þóttu eft­ir­sókn­ar­verð eins og til dæmis Egypta­land. Í fyrra var landið meðal fimm mest heim­sóttu landa í Evrópu.

Þessi aukni fjöldi ferða­manna hefur einnig leitt til fleiri Airbnb-íbúða sem þvingað hefur fátæk­ari stéttir lands­ins frá helstu ferða­manna­stöðum Portú­gals. Til að mynda eru hlut­falls­lega fleiri Airbnb-gisti­rými í Lissabon heldur en í Barcelona sem lengi hefur verið þekkt fyrir fjölda slíkra íbúða.

Portú­gölsk ferða­þjón­usta náði hæstu hæðum árið 2017 en færri heim­sóttu landið í fyrra. Frekari sam­dráttur í grein­inni á næstu mán­uðum og árum gæti reynst næstu rík­is­stjórn í Portúgal þungt í skauti. Stór hluti ferða­manna síð­asta árs voru Bretar en þeir voru 15 pró­sent af öllum þeim sem ferð­uð­ust til lands­ins eða um 13 millj­ónir tals­ins. Nú þegar hefur dregið úr heim­sóknum þeirra til Portúgal og líkur eru á að sam­dráttur auk­ist enn frekar vegna óvissu varð­andi Brexit.

Áskoranir framundan

Portúgal skuldar nú þegar 120 pró­sent af lands­fram­leiðslu sinni en Costa stefnir á að ná því niður í 100 pró­sent árið 2023, nái hann end­ur­kjöri. Það gæti reynst honum erfitt þar sem ólík­legt þykir að efna­hagur Portúgal haldi áfram að vaxa eins hratt og hann hefur gert und­an­farin ár. Þar er helst um að kenna færri ferða­mönnum, eins og áður segir, og tolla­stríði Kína og Banda­ríkj­anna.

Vinstra banda­lag Costa dró einnig úr inn­viða­fjár­fest­ingum sem helst hefur bitnað á skóla­kerf­inu og heil­brigð­is­þjón­ustu svo dæmi sé tekin. Rík­is­stjórn hans var einnig harð­lega gagn­rýnd árið 2017 fyrir það hve illa hún tókst á við skóg­ar­elda sem leiddu til dauða um það bil 100 íbúa. Þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra lands­ins sagði af sér í kjöl­far ham­far­anna. Einnig hafa hin og þessi spill­ing­ar­mál sett svip sinn á stjórn­ar­tíð Costa.

Ójafnvægi á vinstri væng stjórnmálanna

Þó að Costa sé spáð sigri í kosn­ing­unum er ekki víst að banda­lag hans haldi. Sós­í­alista­flokknum er spáð 37 pró­sent atkvæða, eða um það bil 5 pró­sent meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2015. Helstu keppi­nautar Sós­í­alista­flokks­ins eru Sós­í­alde­mókra­ta­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, en þeir tveir mynd­uðu minni­hluta­stjórn­ina sem Costa og vinstri­banda­lag hans felldi árið 2015. Politico spáir Sós­í­alde­mókra­ta­flokknum 27 pró­sent fylgi á meðan Flokki fólks­ins er spáð 5 pró­sent fylgi.

Alls eru 230 þing­sæti á portú­galska þing­inu og ólík­legt þykir að Costa tak­ist að fá hreinan meiri­hluta. Aukið fylgi hinna flokk­anna í vinstri blokk­inni, sem setið hafa í rík­is­stjórn með Costa og Sós­í­alista­flokknum und­an­farið kjör­tíma­bil, gæti á end­anum reynst dýr­keypt. Fræði­menn telja að það gæti leitt til sundr­ungar meðal vinstri manna rétt eins og víðar í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár