Lífeyrissjóðurinn Birta lækkar vexti

Óverð­tryggðir vextir lækka úr 5,1 pró­sent í 4,85 pró­sent en verð­tryggðir breyti­legir vextir lækka úr 2,31 pró­sent í 1,97 pró­sent.

Birta líf­eyr­is­sjóður mun lækka bæði óverð­tryggða og verð­tryggða, breyti­lega vexti sjóð­fé­laga­lána sinna þann 1. júlí næst­kom­andi, sem er á morgun. Óverð­tryggðir vextir lækka úr 5,1 pró­sent í 4,85 pró­sent en verð­tryggðir breyti­legir vextir lækka úr 2,31 pró­sent í 1,97 pró­sent.

Birta er fjórði stærsti líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á Íslandi ef miðað er við hreina eign til greiðslu líf­eyris.

Ólafur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Birtu, segir að breyti­legir, verð­tryggðir vextir taki breyt­ingum á þriggja mán­aða fresti, það er að segja á fyrsta degi mán­aðar í upp­hafi árs­fjórð­ungs. Stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins meti við­mið til vaxta­á­kvarð­ana á hverjum tíma. Ákveðið áhyggju­efni sé hve lítil við­skipti séu með skulda­bréf Íbúða­lána­sjóðs sem jafnan hafi verið vaxta­grunnur og við­mið.

Íris Anna Skúla­dóttir, lána­stjóri Birtu, segir að vextir sjóðs­ins hafi lækkað und­an­farin ár og lækki enn. Það skýri vafa­laust þá stað­reynd að sjóð­fé­laga­lánum í van­skilum hafi fækkað veru­lega og van­skil séu raunar í sögu­legu lág­marki um þessar mundir.

Í frétt sjóðs­ins kemur fram að nýjum sjóð­fé­laga­lánum Birtu hafi fjölgað veru­lega und­an­farin ár og megi skýra það með því að vextir hafa lækkað og lán­töku­gjald lækkað sömu­leiðis. Lán­töku­gjaldið sé reyndar orðið föst krónu­tala, óháð láns­fjár­hæð.

Seðlabankinn lækkar vexti

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að lækka meg­in­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig í síð­ast­lið­inni viku. Það þýðir að vextir hans eru nú 3,75 pró­sent og hafa lækkað um 0,75 pró­sentu­stig í síð­ustu tveimur ákvörð­unum henn­ar.

Þar með hefur einni af for­sendum Lífs­kjara­samn­ing­anna, um að meg­in­vextir Seðla­banka Íslands myndu lækka um 0,75 pró­sentu­stig fyrir sept­em­ber 2020, verið náð rúmu ári fyrir þá dag­setn­ingu, að minnsta kosti tíma­bund­ið.

Vaxta­lækk­un Seðla­bank­ans hefur ekki komið mikið á óvart. Síð­ast þegar vaxta­á­kvörðun átti sér stað voru vextir lækk­aðir um 0,5 pró­sentu­stig og allir grein­ing­ar­að­ilar voru sam­mála um að áfram­hald­andi vaxta­lækkun væri í kort­un­um.

Ólga í Lífeyrissjóði verzlunarmanna

[links]Á fundi sem hald­inn var í full­­trú­a­ráði VR í Líf­eyr­is­­sjóði verzl­un­­ar­­manna þann 20. júní síð­ast­lið­inn var sam­­þykkt að aft­­ur­­kalla umboð stjórn­­­ar­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­sjóðs verzl­un­­ar­­manna og var að auki sam­­þykkt til­­laga um nýja stjórn­­­ar­­menn til bráða­birgða.

Áður hafði stjórn VR lýst yfir trún­­að­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­ar­­mönnum félags­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­legra vaxta verð­­tryggðra sjóð­­fé­laga­lána sem ganga í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­lækk­­­anir í nýgerðum kjara­­samn­ing­i.

Stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna hafði sagt að breyt­ingar á vöxtum breyti­legra verð­tryggða lána sjóðs­ins, sem eiga að hækka um tæp tíu pró­sent 1. ágúst næst­kom­andi, hefðu verið vegna þess að vext­irnir hefðu verið „orðnir óeðli­leg­ir“.

Vext­ir líf­eyr­is­sjóðs­ins eru í dag 2,06 pró­sent og munu þeir hækka upp í 2,26 pró­sent í ágúst næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár