Þverpólitískur áhugi á auknum samgönguhjólreiðum

Þeim fjölgar sem langar helst til að hjóla oft­ast til og frá vinnu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Viðhorf kjós­enda mis­mun­andi stjórn­mála­afla til mis­mun­andi ferða­máta er þó mis­jafnt, sam­kvæmt nið­ur­broti nýlegrar ferða­venjukönn­unar frá Maskínu.

Stjórnmálaskoðanir haldast nokkuð í hendur við viðhorf til mismunandi fararmáta, samkvæmt nýrri könnun Maskínu.
Stjórn­mála­skoð­anir hald­ast nokkuð í hendur við við­horf til mis­mun­andi far­ar­máta, sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þeir íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem sögð­ust ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk, Fram­sókn­ar­flokk eða Flokk fólks­ins voru lík­legri til þess að keyra oft­ast til vinnu á sínum einka­bíl en kjós­endur ann­arra stjórn­mála­afla, sam­kvæmt nið­ur­stöðum ferða­venjukönn­unar sem Maskína fram­kvæmdi í sumar. 

Þau sem sögð­ust ætla að kjósa Vinstri græn voru ólík­leg­ust til að keyra til vinnu og lík­legri til að fara hjólandi, fót­gang­andi eða með strætó til vinnu en nokkur annar hópur kjós­enda. Þverpóli­tískur áhugi virð­ist þó vera á því að hjóla til og frá vinnu, þó nokkur munur sé á milli kjós­enda­hópa.[links]

Kjarninn fjall­aði um helstu nið­ur­stöður könn­un­ar­innar í gær, en fékk einnig frekara nið­ur­brot á nið­ur­stöð­unum afhent frá rann­sókna­fyr­ir­tæk­inu og þar má finna ýmis­legt áhuga­vert. Könnunin var gerð í lok júní á meðal íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, 18 ára og eldri, sem eru á vinnu­mark­aði.

Allir fimm svar­end­urnir í könn­un­inni sem sögðu að þeir myndu kjósa Flokk fólks­ins sögð­ust oft­ast keyra sinn einka­bíl í vinn­una, en rúm 83 pró­sent þeirra sem myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk og 81 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla að kjósa Fram­sókn­ar­flokk. Enginn ætl­aður kjós­andi þess­ara þriggja flokka, né Mið­flokks­ins, sagð­ist oft­ast taka stræt­is­vagn til og frá vinnu.

Rúm 65 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla að kjósa Viðreisn fóru keyr­andi á einka­bíl og tæp 11 pró­sent ætl­aðra kjós­enda flokks­ins sögð­ust oft­ast fá far með einka­bíl. Rúm 63 pró­sent ætl­aðra kjós­enda Mið­flokks­ins fóru oft­ast keyr­andi á bíl til vinnu og rúm 20 pró­sent Mið­flokks­fólks fær oft­ast far, sam­kvæmt könn­un­inni.

Rúm 58 pró­sent ætl­aðra kjós­enda Pírata sögð­ust oft­ast keyra til vinnu á einka­bíl og tæp tíu pró­sent til við­bótar fengu oft­ast far með slíkum. Tæpur helm­ingur ætl­aðra kjós­enda Sam­fylk­ingar sagð­ist oft­ast keyra í vinn­una og tæp 8 pró­sent þeirra sögð­ust oft­ast þiggja far.

Vinstri græn virð­ast skera sig nokkuð úr eins og áður sagði, en ein­ungis tæp 32 pró­sent þeirra sem höfðu ætlan um að kjósa VG fóru akandi til vinnu. Nið­ur­stöð­urnar hvað þetta varðar eru töl­fræði­lega mark­tækar á milli hópa.

Vinstri græn og Píratar vilja síst keyra í vinnuna

Í könnun Maskínu kom fram vilji stórs hluta þeirra sem segj­ast oft­ast aka til vinnu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til þess að ferð­ast vil vinnu með öðrum leiðum.

Þrátt fyrir að rúm 63 pró­sent þátt­tak­enda í könn­un­inni hafi sagt að þeir færu oft­ast akandi til vinnu, var það að aka til og frá vinnu bara fyrsta val rúm­lega 35 pró­senta þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni, þegar spurt var: Hvernig værir þú helst til í ferð­ast í vinn­una?

Þegar horft er á ætl­aða kjós­enda­hópa flokk­anna út frá þess­ari spurn­ingu sést að Vinstri græn og Píratar skera sig nokkuð úr, en ein­ungis um 9 pró­sent ætl­aðra kjós­enda beggja flokka segja að það að fara keyr­andi á einka­bíl til vinnu væri þeirra fyrsta val um far­ar­máta.

Einka­bíll­inn er svo fyrsta val 18,8 pró­sent ætl­aðra kjós­enda Sam­fylk­ingar og 26,2 pró­senta þeirra sem sögð­ust ætla að kjósa Viðreisn en yfir helm­ingur ætl­aðra kjós­enda Mið­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sögðu að það að keyra einka­bíl til vinnu yrði sitt fyrsta val.

Flestir Píratar myndu helst vilja ganga til vinnu, eða 34,5 pró­sent, en almennt væru 19,7 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins helst til í að labba í vinn­una. Lægst er hlut­fallið hjá ætl­uðum kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks, eða 10,5 pró­sent.

Hjólreiðaáhugi þvert á flokka

Þverpóli­tískur áhugi virð­ist vera á því að hjóla til vinnu, en ætl­aðir kjós­endur allra flokka segj­ast í rík­ari mæli vilja hjóla en hlut­fall þeirra sem seg­ist oft­ast hjóla til og frá vinnu segir til um.

Samkvæmt könnun Maskínu hjól­uðu tæp 11 pró­sent vinn­andi íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til vinnu í júní, þegar könn­unin var fram­kvæmd, en 26,7 pró­sent heilt yfir nefndu það sem sinn fyrsta kost þegar spurt var hvernig fólk vildi helst fara til vinnu.

Mestur er hjól­reiða­vilj­inn hjá ætl­uðum kjós­endum Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, en nærri 40 pró­sent þeirra sögðu að þeir vildu helst ferð­ast til og frá vinnu á reið­hjóli.

Rúm 33 pró­sent Pírata sögðu hið sama, um 26 pró­sent Við­reisn­ar­fólks og rúm 24 pró­sent Sjálf­stæð­is­manna, en tæp 17 pró­sent Fram­sókn­ar­manna og 10,5 pró­sent ætl­aðra kjós­enda Mið­flokks­ins.

Spurn­ing­arnar í könn­un­inni voru ein­ungis lagðar fyrir íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem eru á vinnu­mark­aði, 18 ára og eldri. Svar­endur komu úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Könnunin var gerð dag­ana 19.-26. júní og voru svar­endur 397 tals­ins. Gögnin voru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóð­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár