Bankasýslan segist fagna því að FME skoði tiltekna þætti útboðsins

Jón Gunnar Jónsson for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins hefur ritað Fjár­mál­eft­ir­lit­inu bréf, þar sem hann segir Banka­sýsl­una fagna því að FME skoði nú til­tekna þætti nýlegs útboðs á hluta af eign rík­is­ins í Íslands­banka.

Lárus Blöndal stjórnarformaður og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Lárus Blöndal stjórn­ar­for­maður og Jón Gunnar Jónsson for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: RÚV

Banka­sýsla rík­is­ins seg­ist fagna því að Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans sé að skoða til­tekna þætti í tengslum við útboð og starfs­hætti sölu­ráð­gjafa í sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka, enda hafi Banka­sýslan sjálf engar heim­ildir til eft­ir­grennslan eða athug­unar á þeim þætti sölu­ferl­is­ins.

Þetta kemur fram í bréfi sem Jón Gunnar Jónsson for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins hefur sent á Fjár­mála­eft­ir­litið, en það er birt á vef stofn­un­ar­innar í dag. Stundin sagði frá því í gær að skoðun á til­teknum þáttum tengdum söl­unni hefði þegar haf­ist hjá FME.

„Mik­il­vægi þess að skapa traust og til­trú á sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka verður seint ofmetið. Banka­sýsla rík­is­ins býður fram alla sína aðstoð og upp­lýs­ingar sem varpað geta nán­ari ljósi á útboðið,“ segir í bréfi Jóns Gunnars í dag.

[adspot]

Þar segir einnig að „mikil umfjöllun“ hafi verið um útboðið í fjöl­miðlum á síð­ustu vikum og komið hafi fram „fréttir varð­andi hvort kaup­endur hafi upp­fyllt laga­skil­yrði um að telj­ast hæfur fjár­festir í útboð­inu sem og mögu­legum hags­muna­á­rekstrum hjá sölu­ráð­gjöfum, t.d. vegna kaupa starfs­manna eða tengdra aðila á eign­ar­hlutum“.

Arðgreiðsla útskýri verðlækkun bréfa fyrir útboð

Einnig er í bréf­inu vakin athygli á athuga­semdum Björns Levís Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata, sem hefur velt því upp hvort mögu­leg mark­aðs­mis­notkun hafi átt sér stað í aðdrag­anda útboð, með vísan til þess að verð á hlutum í Íslands­banka hafi lækkað nokkuð í aðdrag­and­anum.

Banka­sýslan vekur þó, vegna athuga­semda Björns Levís, sér­staka athygli á því að á hlut­hafa­fundi Íslands­banka sem fram fór 17. mars hafi verið ákveðin arð­greiðsla sem nam 5,95 kr. á hlut. „Arð­leys­is­dagur var þann 18. mars sem skýrir að lang­mestu þá verð­lækkun sem varð fyrir útboðið þann 22. mars,“ segir í bréfi for­stjóra Banka­sýsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár