Birgitta boðar vantraust á nýja ríkisstjórn

Birgitta Jóns­dóttir seg­ist vera til í að leggja fram van­traust á nýja rík­is­stjórn um leið og þingið kemur saman á ný. Þing­flokkur Pírata mun funda um málið í dag, segir hún á Facebook-síðu sinni. Hún hvetur einnig til þess að Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, krefj­ist nýrra kosn­inga og lýsi fyr­ir­fram yfir van­trausti á vænt­an­lega rík­is­stjórn, sem hann er á loka­metr­unum að mynda með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn.

Tilefnið er skýrsla um aflandseignir Íslend­inga, sem fjár­mála­ráðu­neytið birti á föstu­dag. Eins og Kjarninn hefur greint frá var skýrsl­unni skilað til ráðu­neyt­is­ins í sept­em­ber og Bjarni og aðrir fengu kynn­ingu á henni í byrjun októ­ber. Engu að síður kom hún ekki fyrir sjónir almenn­ings fyrr en fyrir helgi, en Kjarninn hafði marg­sinnis spurst fyrir um afdrif skýrsl­unnar.

Bjarni baðst afsök­unar á því í gær að hafa sagt rang­lega frá tíma­línu atburða í tengslum við birt­ing­una. Á laug­ar­dag hafði hann haldið því fram að skýrslan hafi ekki borist honum og ráðu­neyt­inu fyrr en eftir að þing hafði lokið störfum, en það var 13. októ­ber síð­ast­lið­inn. Því leið mán­uður frá því að skýrslan barst ráðu­neyt­inu og þar til þingið hætti störfum.

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, sagði við RÚV í morgun að skýrslan og öll umræðan í kringum hana hafi vakið upp spurn­ingar innan þing­flokks­ins og að þau ætli að kynna sér málið frekar.

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, segir á Facebook-síðu sinni að hún fái ekki betur séð en að Bjarni hafi brotið gegn siða­reglum ráð­herra með því að „halda henni leyndri fyrir almenn­ingi mán­uðum saman.“ Hún á þá við grein í siða­regl­unum þar sem segir: „Ráðherra leynir ekki upp­lýs­ingum sem varða almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess að öðru leyti. Ráðherra ber að hafa frum­kvæði að birt­ingu slíkra upp­lýs­inga sé hún í almanna­þágu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár