Helgi Hrafn segir Pírata stjórntæka - Lofar ákveðna ráðherra en gagnrýnir aðra

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, for­maður Pírata, segir flokk­inn vera stjórn­tækan. Í við­tali við Við­skipta­blaðið í dag segir Helgi Hrafn spurn­ing­una vera áhuga­verða, því fólk gefi sér að flokkar séu annað hvort stjórn­tækir eða ekki. Það sem skipti máli þegar kemur að rík­is­stjórn sé að hæft fólks sé innan flokka. „Það eru núna til staðar mjög óhæfir ráð­herrar, og mjög hæfir ráð­herrar líka,“ segir hann í við­tal­inu. Helgi Hrafn nefnir þrjá ráð­herra sér­stak­lega sem honum finnst hæfir í starfi. Nokkrir aðrir ráð­herra séu aftur á móti ekki með á nót­unum.

„Ég er til dæmis alveg algjör­lega blygð­un­ar­laust aðdá­andi Ólafar Nordal, sem mér finnst frá­bær ráð­herra. Illuga Gunn­ars­syni er ég oft ósam­mála, en ég ber virð­ingu fyrir því hvernig hann nálg­ast suma hluti. Bjarni Bene­dikts­son er mjög góður, þótt ég sé mjög ósam­mála hans nálgun í mörgu eins og efna­hags­málum – eða stundum er ég sam­mála honum – en hann sýnir þing­inu virð­ingu, hann er góður ráð­herra í sjálfu sér, ef maður er sam­mála honum. Svo eru alveg til ráð­herrar sem eru bara ekk­ert með á nót­unum. Þannig að þetta er ekk­ert spurn­ing um flokka að mínu mati, þetta er bara spurn­ing um að fá rétta fólkið í starfið.“

Spurður um hvaða ráð­herra hann sé að vísa til nefnir Helgi Hrafn for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son.

„Sem mér er svona illa við? Mér leið­ist nú að tala illa um fólk en ég skal alveg segja þér hrein­skiln­is­lega að það hvernig hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra kemur fram við þingið er óþol­andi og óbjóð­andi. Ég er eig­in­lega algjör­lega hættur að reyna að sykra það eitt­hvað. Hvernig þessi for­sæt­is­ráð­herra kemur fram við þingið er bara ekki í lagi, við eigum ekki að láta eins og það sé í lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár