Sigmundur Davíð: Áhyggjuefni fyrir samfélagið allt ef Píratar næðu 30-40% fylgi

„Ef almenn óánægja yrði til þess að bylt­ing­ar­flokkar og flokkar með mjög óljósar hug­myndir um lýð­ræði og flokkar sem vilja umbylta grunn­stoðum sam­fé­lags­ins nái áhrifum þá væri það mikið áhyggju­efni fyrir sam­fé­lagið allt,“ segir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra um fylgi Pírata og skoð­ana­kann­anir und­an­farið. Þetta kemur fram í við­tali við Sigmund Davíð í DV í dag, sem Kolbrún Berg­þórs­dóttir rit­stjóri blaðs­ins tekur. DV var dreift ókeypis í öll hús í dag.

Hann seg­ist ekki telja að fylgi Pírata muni hald­ast og seg­ist ekki hafa miklar áhyggjur af fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins. Ef hins vegar fylgi Pírata héld­ist fram yfir kjör­dag „þá myndi taka við allt ann­ars konar stefna í sam­fé­lag­inu þar sem erfitt gæti verið að við­halda þeim gildum sem við höfum þó verið að sækj­ast eftir og byggja upp um ára­tuga skeið.“

Í við­tal­inu er farið um víðan völl. Sig­mundur er spurður að því hvernig honum hafi liðið að halda ræðu á 17. júní þegar mót­mælt var á Aust­ur­velli. „Þarna var fólk sem vildi ekki að á fram­færi kæmust skila­boð þar sem leit­ast var við að sætta fólk og draga fram það sem sam­einar okkur sem þjóð heldur vildi þagga niður í þeim,“ segir hann og seg­ist hafa sárnað mest og þótt ótrú­legt að sjá „menn ham­ast svo mjög þegar stúlkna­kór söng ætt­jarð­ar­lög og fjall­konan flutti ljóð. Þarna var ungt fólk sem hafði dögum og vikum saman und­ir­búið sig fyrir þátt­töku í hátíð­ar­höld­unum og fékk ekki að njóta þess.“

Sig­mundur segir mót­mælin hafa dregið fram stærra vanda­mál, „sem er virð­ing­ar­leysið sem er orðið ríkj­andi hjá ákveðnum hópi, ekki mjög stórum en háværum. Sá hávaði birt­ist ekki alltaf með trumbu­slætti og öskrum á Aust­ur­velli heldur miklu oftar í fjöl­miðlum og á net­inu þar sem sá sem er óvægn­astur og yfir­lýs­ing­arglað­astur nær mestri athygli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár