Stjórnarmenn íslenskra fyrirtækja þurfi ekki lengur að vera búsettir innan EES

Atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins hefur birt áform um laga­frum­varp þar sem lagt er til að fellt verði úr lögum það skil­yrði að fram­kvæmda­stjórar og stjórn­ar­menn íslenskra fyr­ir­tækja þurfi að vera búsettir innan Evrópska efna­hags­svæðs­ins.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Mynd: Birgir Þór Harðarson

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið leggur til að fellt verði brott úr lögum þau skil­yrði að fram­kvæmda­stjórar og aðrir stjórn­endur íslenskra fyr­ir­tækja búi í aðild­ar­ríkjum EES-samn­ings­ins, aðild­ar­ríkjum EFTA eða í Færeyjum.

Ef frum­varp ráðu­neyts­ins nær fram að ganga þýðir það að stjórn­endur íslenskra fyr­ir­tækja megi búa hvar sem er í heim­inum, svo fram­ar­lega sem þeir eru rík­is­borg­arar í ofan­greindum ríkjum. Tilefni laga­setn­ing­ar­innar má rekja til athuga­semda Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA.

Þurfa ekki að lengur undanþágu til að sitja í stjórn íslenskra fyrirtækja

Í núgild­andi lögum er gerð krafa um að fram­kvæmda­stjórar og meiri­hluti stjórn­ar­manna í íslenskum atvinnu­fyr­ir­tækjum skulu vera búsettir hér á landi, með þeirri und­an­tekn­ingu að það gildir ekki um rík­is­borg­ara Færeyja, þeirra ríkja sem eiga aðild að samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið eða þeirra ríkja sem eru aðilar EFTA. Hins vegar gera lögin kröfu um að við­kom­andi rík­is­borg­arar séu búsettir í fyrr­nefndum ríkjum.

Tilefni frum­varps­ins eru athuga­semdir ESA, eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, við fyrr­greint búsetu skil­yrði í íslenskum lögum en stofn­unin vakti fyrst athuga­semdir við skil­yrðið í jan­úar 2014. Samkvæmt EES-samn­ingum er ekki hægt að setja höft á rétt rík­is­borg­ara á EES-svæð­inu til að öðl­ast stað­festu á yfir­ráða­svæði ein­hvers ann­ars ríkis á svæð­inu. Stað­festu­rétt­ur­inn felur meðal ann­ars í sér rétt til að hefja og stunda sjálf­stæða atvinnu­starf­semi og til að stofna og reka fyr­ir­tæki.

Í áformum um laga­frum­varpið sem birt hafa verið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, segir að ESA hafi gert athuga­semdir við fimm laga­bálka en þrír þeirra hafi nú þegar verið breytt í sam­ræmi við athuga­semdir ESA. Jafn­framt segir í drög­unum að rík­is­stjórnin telji það vera eitt mik­il­væg­asta hags­muna­mál Íslands að sinna fram­kvæmd EES-samn­ings­ins vel og þetta sé frum­varp liður í því.

Með frum­varp­inu verður lagt til fellt verði út búsetu­skil­yrði lag­anna, það er að segja að rík­is­borg­arar EES-ríkja, EFTA ríkja og Færeyja sem búsettir eru utan þess­ara ríkja, og rík­is­borg­arar þriðju ríkja sem búsettir eru á Evrópska efna­hags­svæð­inu, þurfi ekki lengur und­an­þágu ráð­herra til að vera í stjórn eða vera fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tækja í atvinnu­rekstri hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár