Erlendum ríkisborgurum á Íslandi fjölgað um 7,5 prósent

Erlendir rík­is­borg­arar með búsetu á Íslandi nálg­ast að verða 60 þús­und tals­ins eftir að hafa fjölgað um 7,5 pró­sent frá des­em­ber fram í júlí. Alls eru nú búsett á Íslandi ríf­lega 380.000 manns.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga með skráða búsetu á Íslandi eru nú búsett á íslandi 380.958 manns.
Samkvæmt skrán­ingu Þjóð­skrár á fjölda ein­stak­linga með skráða búsetu á Íslandi eru nú búsett á íslandi 380.958 manns. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls voru 59.105 erlendir rík­is­borg­arar skráðir með búsetu á Íslandi 1. júlí síð­ast­lið­inn og hafði þeim fjölgað um 4.126 frá 1. des­em­ber á síð­asta ári, eða um 7,5 pró­sent, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Þjóðskrá Íslands.

Meðal erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi hefur úkra­ínskum rík­is­borg­urum fjölgað mest, eða um 490 pró­sent frá 1. Desember. Þannig fjölg­aði úkra­ínskum rík­is­borg­urum um 1.171 frá 239 í des­em­ber og telja þeir nú 1.410. Þá hefur venes­ú­elskum rík­is­borg­urum einnig fjölgað umtals­vert, eða um 57 pró­sent, og telja nú 696 ein­stak­linga.

Íslendingar 321 þúsund og Pólverjar brjóta 22 þúsund manna múrinn

Pólskum rík­is­borg­urum fjölg­aði um 568 á tíma­bil­inu og rufu þar með 22 þús­und manna múr­inn og telja nú 5,8 pró­sent allra lands­manna. Þá fjölg­aði rúm­enskum rík­is­borg­urum um 407 eða 14,8 pró­sent og teljan ú 3.159.

Samkvæmt skrán­ingu Þjóð­skrár á fjölda ein­stak­linga með skráða búsetu á Íslandi eru nú búsett á íslandi 380.958 manns. Þar af eru ein­stak­lingar með íslenskan rík­is­borg­ara­rétt 321.853 tals­ins og fjölg­aði þeim um 803 á tíma­bil­inu frá des­em­ber til júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár