Benedikt fagnar því ef Arion banki selst á góðu verði

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir það fagn­að­ar­efni ef Arion banki selst á góðu verði og að eign­ar­hald á bank­anum verði dreift. Vogunar- og líf­eyr­is­sjóðir vinna að því að kaupa um helm­ing í bank­anum. Ríkið getur gengið inn í við­skiptin.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, seg­ist fagna því ef Arion banki selst á góðu verði og að eign­ar­hald bank­ans verði dreift. Ríkið hafi áskilið sér rétt til að ganga inn í við­skiptin ef gengi þeirra verði lægra en 0,8.

Frétta­blaðið greindi frá því í morgun að Kaup­þing vinni að því að ganga frá sölu á 40 til 50 pró­senta hlut félags­ins í Arion banka í lok­uðu útboði til banda­rískra fjár­fest­ing­ar­sjóða og íslenskra líf­eyr­is­sjóða. ­Kaup­verðið mun þá ­nema á bil­inu 70 til 90 millj­örðum íslenskra króna en vænt­ingar eru um að við­skiptin verði kláruð á allra næsta vik­um.

Í sam­tali við Kjarnann tekur Benedikt fram að ekki séu komnar stað­festar fréttir af sölu á hlutum í Arion, en fagnar því ef verðið á bank­anum er gott og ef salan leiðir af sér dreift eign­ar­hald. „ Ríkið hefur áskilið sér rétt til að ganga inn í öll við­skipti sem eru á gengi lægra en 0,8. Það á við um öll við­skipti með þessi 87%, hvort sem það er til vog­un­ar­sjóða, líf­eyr­is­sjóða eða með öðrum hætti. Ef verðið er hærra og helm­ingur hluta selst eru það góðar fréttir og þýðir að ríkið mun fá skulda­bréfið sitt greitt upp og þarf ekki að ganga inn í við­skiptin. Ríkið mun bíða átekta með sinn 13 pró­sent hlut í bank­anum. Ég legg þunga áherslu á að hlut­ur­inn verði seldur á góðu verði með fag­legum hætti. Við erum ekki að flýta okkur og bíðum eftir skrán­ingu bréfa á markað.“

Kaup­samn­ingar við banda­rísku ­sjóð­ina eru langt komnir en á­for­mað er að fjórir fjár­fest­ing­ar­sjóðir kaupi allt að 25 pró­senta hlut í bank­an­um. Að minnsta kosti tveir þess­ara sjóða – Taconic Capital og Och-Ziff Capital – eru jafn­framt á meðal kröfu­hafa Kaup­þings. Eng­inn einn þeirra verður með meira en 10 pró­senta hlut í Arion banka en Taconic Capital hyggst vera með­ ­stærsta ein­staka eign­ar­hlut­inn á meðal sjóð­anna.

Sá vog­un­ar­sjóð­ur­ er lang­sam­lega umsvifa­mestur í kröfu­hafa­hópi Kaup­þings og átti í lok síð­asta árs um 40 pró­sent allra krafna á hendur félag­inu. Ríkið hefur for­kaups­rétt að Arion banka ef Kaup­þing hyggst selja hlut í bank­anum á geng­inu 0,8 eða lægra miðað við eigið fé.

Samn­ingar við líf­eyr­is­sjóð­ina eru ekki jafn langt á veg komn­ir en af hálfu Kaup­þings er engu að ­síður búist við að nið­ur­staða fáist á næst­unni um hversu mikil aðkoma þeirra verð­ur.

Vænt­an­leg sala Kaup­þings á tug­pró­senta hlut í Arion í lok­uð­u út­boði, sem ekki var útlit fyrir í árs­byrj­un, þýðir að fyr­ir­hugað almennt hluta­fjár­út­boð bank­ans fer fram ­seinna en áður var áætl­að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár