Leitin að ástinni trompar allt annað

Þegar fjölmiðla­konan Guðrún Sóley Gests­dóttir hefur fullreynt sig í fjölmiðla­störfum ætlar hún að flytja út í sveit og opna athvarf fyrir dýr sem þjóna ekki lengur tilgangi sínum í mann­heimum.

Flestir þeir sem horfa og hlusta á ríkis­fjöl­miðilinn þekkja rödd og andlit Guðrúnar Sóleyjar Gests­dóttur. Hún hóf störf á RÚV sem frétta­maður fyrir nokkrum árum, fór þaðan í morgun­útvarpið og hefur síðustu misserin fært fréttir af því helsta sem er um að vera í menningar­lífi landans.

Þrátt fyrir að kunna vel við sig í beinu samtali við þjóðina og finna sjaldnast fyrir stressi í beinni útsendingu lýsir Guðrún Sóley sjálfri sér sem afar prívat manneskju, ekki síst þegar komi að einka­lífinu. Því vill hún halda að mestu fyrir sig. Um ástina almennt hefur Guðrún Sóley hins vegar gaman af að tala um, enda málefni sem er henni mjög hugleikið. „Leitin að ástinni, að einhverjum til að deila lífinu með sér, finnst mér vera mikil­vægasta verkefni hverrar manneskju. Það skiptir öllu máli með hverjum þú deilir reynslu þinni – …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár