Flóttafólk mótmælir brottvísunum

Flótta­fólk boðar til mót­mæla í dag en það krefst sann­gjarnrar máls­með­ferðar og að Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin verði lögð niður, sem og flótta­manna­búðir á Ásbrú.

Flótta­menn á Íslandi hafa boðað til mót­mæla í dag klukkan 16:00 við Hall­gríms­kirkju en gengið verður þaðan á Aust­ur­völl. Helstu kröfur þeirra eru að ekki verði fleirum vísað úr landi og að flótta­fólk fái sann­gjarna máls­með­ferð, auk þess að Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin og hinar ein­angr­uðu flótta­manna­búðir á Ásbrú verði lagðar niður.

Samkvæmt því sem stendur á við­burði vegna mót­mæl­anna á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook var kveikur mót­mæl­anna sá fjöldi brott­vís­ana sem blasir við flótta­fólki á Íslandi í hverri viku og það and­lega og lík­am­lega ofbeldi sem hæl­is­leit­enda­kerfið er.

Útlend­inga­stofnun afgreiddi 790 umsóknir um alþjóð­lega vernd árið 2018, sam­an­borið við 976 afgreidd mál árið 2017. 406 umsóknir voru teknar til efn­is­legrar með­ferðar en þar af voru 111 mál afgreidd með ákvörðun í for­gangs­með­ferð. 152 mál voru afgreidd með ákvörðun um end­ur­send­ingu á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, 70 mál voru afgreidd með synjun á grund­velli þess að við­kom­andi höfðu þegar fengið alþjóð­lega vernd í öðru ríki og 162 umsækj­endur drógu umsóknir sínar til baka eða hurfu frá þeim.

Auk þeirra 160 ein­stak­linga sem var veitt alþjóð­leg vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum með ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar fengu 35 alþjóð­lega vernd eða mann­úð­ar­leyfi hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála, 41 ein­stak­lingur fékk alþjóð­lega vernd og dval­ar­leyfi hér á landi sem aðstand­andi flótta­manns og 53 ein­stak­lingar komu hingað til lands og fengu alþjóð­lega vernd í boði íslenskra stjórn­valda (kvótaflótta­menn). Samtals fengu því 289 ein­stak­lingar alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér á landi árið 2018. Þetta kemur fram í frétt Útlend­inga­stofn­unar þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Flóttafólk í viðkvæmri stöðu

Á síðu fyrir við­burð­inn á Facebook kemur fram að nú, árið 2019, hafi engar opin­berar tölur verið gefnar út en fólkið sem á í hlut sé komið með nóg. Mótmæli geti ekki beðið, þar sem von sé á fjölda brott­vís­ana á næstu vikum.

„Það er skýrt að með lokun landamæra sinna, hafa Evr­ópu­ríkin tekið afstöðu með upp­runa­hyggju og ras­isma á kostnað mann­úðar og manns­lífa.

Flótta­fólk er eitt af við­kvæm­ustu hópum sam­fé­lags­ins, en hafa þrátt fyrir það hug­rekkið til að veita mót­spyrnu. Sýnum sam­stöðu og mætum á mið­viku­dag­inn!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár