Býst við töluverðu atvinnuleysi næstu árin

Það gæti tekið nokkur ár að ná atvinnu­leys­inu niður í fyrra horf, skrifar hag­fræð­ingur hjá Seðla­banka Íslands í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Gengi ferðaþjónustunnar á næstu árum hefur mikið um það að segja hvort atvinnuleysi muni haldast hátt eða ekki.
Gengi ferða­þjón­ust­unnar á næstu árum hefur mikið um það að segja hvort atvinnu­leysi muni hald­ast hátt eða ekki. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þrátt fyrir að búist sé við til­tölu­lega snörpum við­snún­ingi í fram­leiðslu gæti tekið langan tíma að ná niður atvinnu­leys­inu, meðal ann­ars vegna hárra raun­launa og óvissu um fram­tíð ferða­þjón­ust­unnar. Þetta skrifar Elís Pét­urs­son, hag­fræð­ingur hjá Seðla­banka Íslands, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Samkvæmt Elísi er lík­legt að fyr­ir­tæki muni fyrst nýta betur þá fram­leiðslu­getu sem er til staðar áður en þau taka að fjölga starfs­fólki í miklum mæli í efna­hags­við­snún­ingnum að far­aldr­inum loknum. Þetta kæmi einkum fram í auk­inni fram­leiðni vinnu­afls og/eða lengri með­al­vinnu­tíma. Á sama tíma er gert ráð fyrir að fólki á vinnu­aldri fjölgi tölu­vert á næstu árum, sem leiðir til þess að fleiri störf þurfi til að ná atvinnu­leys­inu niður.

Elís segir líka að lang­tíma­at­vinnu­leysi, sem er nú meira en í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar, gæti hægt á við­snún­ingi á vinnu­mark­aðnum, þar sem færni glat­ast og líkur á að finna starf minnka við langa atvinnu­leit. Því gefi hátt hlut­fall lang­tíma­at­vinnu­lausra vís­bend­ingar um að atvinnu­leysi muni hald­ast stöðugt í hærri pró­sentu en áður.

Launahækkanir og óvissa um ferðaþjónustuna áhættuþættir

Elís bendir einnig á að vægi ferða­þjón­ust­unnar í hag­kerf­inu gæti minnkað í fram­tíð­inni, líkt og ger­ist venju­lega þegar ein atvinnu­grein verður fyrir fram­leiðniskelli. Þar sem hátt hlut­fall starfs­fólks í ferða­þjón­ust­unni sé ósér­hæft gæti tekið langan tíma fyrir þá að finna sér nýtt starf.

Þar að auki hafi kjara­samn­ings­bundnar launa­hækk­anir, sem séu úr takt við fram­leiðni­þróun aukið kostn­að­ar­þrýst­ing í atvinnu­greinum líkt og ferða­þjón­ust­unni, þar sem hlut­fall lág­launa­starfa sé hátt. Þetta gæti ýtt undir sjálf­virkni­væð­ingu slíkra atvinnu­greina, sem myndi hægja á nýjum ráðn­ingum enn frekar.

Seðla­bank­inn spáir því að atvinnu­leysi muni nema um 6 pró­sentum árið 2023, eða ein­ungis 0,3 pró­sentu­stigum lægra en það var í fyrra. Til við­mið­unar var atvinnu­leysi um það bil helm­ingi lægra árið 2018, eða um 3,1 pró­sent.

Elís bendir þó á að margir óvissu­þættir séu bundnir þess­ari spá og að atvinnu­leysi gæti minnkað mun hraðar ef ferða­þjón­ustan nær sér aftur á strik fljótt. Samkvæmt honum eru til að mynda fáar vís­bend­ingar um að áhugi ferða­manna á Íslandi sem áfanga­stað hafi dvínað og fram­boð flug­ferða til og frá land­inu eigi mögu­lega eftir að aukast enn frekar, meðal ann­ars með til­komu flug­fé­lags­ins PLAY.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár