Bankastjóri og stjórnendur vilji hlut í Íslandsbanka sem kaupauka

Banka­stjóri Íslands­banka, fram­kvæmda­stjórar og stjórn­ar­menn hafa farið fram á kaupauka í tengslum við nauða­samn­inga og mögu­lega sölu bank­ans. Vilja stjórn­end­urnir fá allt að 1 pró­senta hlut í bank­anum, sam­kvæmt heim­ildum Morg­un­blaðs­ins, sem greinir frá þessu í Við­skipta-Mogganum í dag.

Hlutur stjórn­end­anna gæti numið tveimur millj­örðum króna sé miðað við bók­fært eigið fé í árs­lok 2014. Fyr­ir­mynd til­lög­unnar er sótt í sam­komu­lag sem var gert árið 2009 og tryggði starfs­fólki í Lands­bank­anum 1 pró­senta hlut í bank­anum. Ekki er gert ráð fyrir því í til­lögu stjórn­enda Íslands­banka að almennir starfs­menn fái hlut­deild.


Morg­un­blaðið segir að stjórn­endur hafi lagt hug­myndir sínar fyrir kröfu­hafa bank­ans sem halda á langstærstu eign­ar­hlut. Ekki hefur náðst sam­komu­lag um kaupauka.

Stefnt á sölu

Stefnt er að sölu Íslands­banka á næst­unni. Í síð­ustu viku gerðu Íslands­banki og Glitnir ramma­sam­komu­lag um sam­starf svo að slita­með­ferð Glitnis nái fram að ganga. Ramma­sam­komu­lagið kveður meðal ann­ars á um að sala á Íslands­banka til íslenskra fjár­festa verður tak­mörkuð.


Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar eru listaðar þær aðgerðir sem ráð­ist verður í. Þær eru hinar sömu og áður hefur verið greint frá, það eru til­lög­urnar sem kröfu­hafar Glitnis lögðu fyrir stýrni­efnd stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta í júní síð­ast­liðnum. Í þeim til­lögum var sér­stak­lega talað um aðgerðir sem ráð­ist yrði í fyrir sölu Íslands­banka til ann­arra aðila, en hann er í dag að stærstum hluta í eigu slita­bús Glitnis.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár