Íslandsbanki græddi 23,7 milljarða í fyrra – Ætlar að skila yfir 50 milljörðum til hluthafa

Íslands­banki ætlar að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­arða króna í arð vegna síð­asta árs. Stjórn bank­ans vill auk þess greiða út 40 millj­arða króna til við­bótar til hlut­hafa á næstu einu til tveimur árum.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringdi inn fyrstu viðskipti með bankann í íslensku kauphöllinni í fyrrasumar.
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, hringdi inn fyrstu við­skipti með bank­ann í íslensku kaup­höll­inni í fyrra­sumar. Mynd: Nasdaq Iceland

Íslands­banki hagn­að­ist um 23,7 millj­arðar króna á árinu 2021. Arðsemi eigin fjár var 14,2 pró­sent og sem var vel yfir tíu pró­sent mark­miði bank­ans. Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans lækk­aði úr 54,3 pró­sent í 46,2 pró­sent milli ára.

Eigið fé Íslands­banka var 203,7 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans 25,3 pró­sent. Útlán til við­skipta­vina Íslands­banka juk­ust um 7,9 pró­sent á síð­asta ári. Þá aukn­ingu má að mestu rekja til auk­inna umsvifa á hús­næð­is­mark­aði. Vaxta­munur bank­ans var 2,4 pró­sent. Hreinar vaxta­tekjur voru 34 millj­arðar króna og hækk­uðu um tvö pró­sent milli ára. Þókn­ana­tekjur hækk­uðu hins vegar um 22,1 pró­sent og voru sam­tals 12,9 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi bank­ans sem birtur var nú síð­degis.

Á grund­velli þess­arar afkomu ætlar Íslands­banki að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­arða króna í arð. Þar af fer 65 pró­sent til stærsta ein­staka eig­and­ans, íslenska rík­is­ins, eða rúm­lega 7,7 millj­arðar króna. Þeir sem eiga 35 pró­sent hlut í bank­anum fá svo sam­an­lagt tæpa 4,2 millj­arða króna í arð­greiðslu. Auk þess stefnir stjórn bank­ans að því að greiða út 40 millj­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uðum. Sú veg­ferð mun hefj­ast með því að stjórn Íslands­banka mun leggja til við aðal­fund bank­ans að hefja end­ur­kaup á bréfum fyrir 15 millj­arða króna á næstu mán­uðum.

Gríðarleg ávöxtun á þeim hlut sem var seldur

Því er ljóst að Íslands­banki ætlar að skila um 52 millj­örðum króna til hlut­hafa sinna á næstu tveimur árum. 18,2 millj­arðar króna af þeirri upp­hæð mun fara til þeirra sem eiga þann 35 pró­sent hlut sem íslenska ríkið seldi í fyrra­sumar sam­hliða því að Íslands­banki var skráður á markað. Ríkið fékk 55,3 millj­arða króna fyrir hlut­inn þegar hann var seldur. Virði bréfa í Íslands­banka hefur auk­ist um 60 pró­sent frá skrán­ing­unni.

[links]Eign­ar­hlut­ur­inn sem íslenska ríkið seldi hefur því hækkað um 33,2 millj­arða króna frá skrán­ingu, en sú virð­is­aukn­ing lendir hjá nýjum eig­endum. Sam­an­lagt hafa þeir því aukið virði eigna sinna um þá tölu, eiga von á 4,2 millj­örðum krónum í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs auk þess sem stjórn Íslands­banka ætlar að skila þeim 14 millj­örðum króna til við­bótar á næstu einu til tveimur árum. Fyr­ir­sjá­an­legur ávinn­ingur nýrra eig­enda, miðað við núver­andi mark­aðsvirði, nemur því sam­tals 51,4 millj­örðum króna. Það er 93 pró­sent af því verði sem greitt var fyrir 35 pró­sent hlut í Íslands­banka í júní.

Rík­is­stjórnin ætlar að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Íslands­banka að fullu á næstu tveimur árum. Til stendur að selja um helm­ing úti­stand­andi hlutar rík­is­ins í sumar og ríkið reiknar með að fá um 75 millj­arða króna fyrir hann, sam­kvæmt því sem fram kom í fjár­laga­frum­varpi yfir­stand­andi árs. Það sem eftir stæði yrði svo selt 2023 ef mark­aðs­að­stæður yrðu ákjós­an­leg­ar.

Allir stóru bank­arnir þrír hafa nú birt árs­reikn­inga sína vegna árs­ins 2021. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra á því ári var 81,2 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár