Alþingi tekur upp umhverfisvænni siði

Alþingi hefur á síðstu mán­uðum tekið upp betri umhverf­issiði sem hluta af verk­efn­inu Græn skref. Dregið hefur verið veru­lega úr kaupum á plast­flöskum, fjöl­póstur hefur verið minnk­aður og fleiri starfs­menn hjóla nú í vinn­una.

Alþingi hefur á síðustu mánuðum orðið umhverfisvænni vinnustaður í kjölfar ýmissa breytinga á vinnustaðnum eftir innleiðingu á fyrsta græna skefinu í október síðastliðnu. Alþingi hefur meðal annars dregið verulega úr innkaupum á einnota plastflöskum, innleitt stefnu um minni fjölpóst og starfsmenn hafa verið hvattir til að nota umhverfisvænni samgöngur.

Færri plastflöskur, minni fjölpóstur og fleiri nota umhverfisvænar samgöngur

Í októ­ber síða­sliðnum fékk Alþingi við­ur­kenn­ingu verk­efn­is­ins Græn skref í rík­is­rekstri fyrir inn­leið­ingu á fyrsta Græna skref­inu. Grænu skrefin eru í hópi ábyrgð­ar­verk­efna Umhverf­is­stofn­unar en það er hvata­kerfi fyrir rík­is­stofn­anir til að stuðla að auk­inni sjálf­bærni í rekstri og bættri umhverf­is­vit­und meðal starfs­manna. Við inn­leið­ingu Grænna skrefa er ein­földum gát­listum fylgt og veittar eru við­ur­kenn­ingar fyrir hvert grænt skref sem tekið er. Í til­kynn­ingu frá Alþingi segir að með auk­inni umhverf­is­vit­und og inn­leið­ingu aðgerða í umhverf­is­málum hafa ýmsar breyt­ingar orðið sem gera Alþingi að umhverf­is­vænni vinnu­stað.

Eitt af þessum aðgerðum er að Alþingi hefur dregið verulega úr innkaupum á sódavatni í einnota plastflöskum eða um 2.500 færri plastflöskur árlega. Í stað þess að kaupa einnota flöskur nota þingmenn og aðrir starfsmenn nú sódavatnsvél og fylla á margnota flöskur sem Alþingi gaf þeim. Í kjölfarið hafa innkaupin á sódavatnsflöskum dregist saman um 87 prósent. [adspot]

Auk þess hefur forsætisnefnd ákveðið að draga úr móttöku á fjölpósti til þingmanna og innleiddu stefnu þess efnis í síðasta mánuði. Nú er einungis tekið á móti átta eintökum af skýrslum, einni fyrir hvern þingflokk, og fjórum eintökum af blöðum. Fyrir þessa breytingu bárust um 40 kíló af fjölpósti til Alþingis í hverjum mánuði sem jafngildir um hálfu tonni af pappír árlega. Jafnframt hefur nefndin óskað eftir því að blöð og skýrslur séu ekki pakkaðar í plast og að þingmenn fái í stað þess sendan hlekk á skýrslur.

Í tilkynningunni segir að enn fremur hafi verið lögð áhersla á umhverfisvænni samgöngur á Alþingi. Starfsmenn og þingmenn hafi tekið vel í að hjóla og ganga í vinnuna. Nú komi fleiri starfsmenn á hjólum í vinnunni en einnig hafa verið settar upp rafmagnshleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla.

Ný reglugerð um rafræna reikninga

Fleiri skref hafa verið stigin í átt að umhverfisvænni stjórnsýslu en fjármála- og efnahagsráðuneytið vinnur nú að því að samræma kröfur til rafrænna reikninga vegna opinberra innkaupa í því augnamiði að einfalda viðskipti fyrirtækja við hið opinbera og draga úr hindrunum og kostnaði í viðskiptum jafn innanlands sem og milli landa.

Í þessu skyni hefur tekið gildi ný reglugerð, sem felur í sér að tekinn er upp staðall sem ríki og sveitarfélög skulu styðja og einfaldar sendingu rafrænna reikninga til opinberra aðila. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að innleiðingu skal vera lokið fyrir 18. apríl á þessu ári. Jafnframt segir í tilkynningunni að rafrænir reikningar séu umhverfisvænir og skapi hagræði.

Í gildandi viðskiptaskilmálum ríkisins kemur fram að allir reikningar til ríkisstofnana skulu vera með rafrænum hætti nema um annað sé samið og hefur hlutfall rafrænna reikninga farið hækkandi ár frá ári. Innleiðing rafrænna reiknigna hófs árið 2007 en samkvæmt ráðuneytinu hefur mikil hagræðing náðst fram bæði hjá kaupendum og seljendum síðan. Hlutfall reikninga sem berast með rafrænum hætti er komið upp í 70 prósent innan stjórnsýslunnar. Ríkið stefnir að því að á komandi árum verði þrengt enn frekar að notkun pappírs með það að markmiði að allir reikningar til hins opinbera verði rafrænir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár