Saga ÁTVR gefin út 13 árum eftir að ritun hennar hófst

Saga ÁTVR verður gefin út í næstu viku að sögn aðstoð­ar­for­stjóra ÁTVR. Árið 2016 var áætlað að kostn­aður við verk­efnið myndi nema 22 millj­ónum.

Ritun sögu ÁTVR hefur tekið 13 ár en sagan mun koma út í næstu viku. Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum hversu mikið verk­efnið hefur kostað en þær hafa ekki feng­ist.

Í nýút­kominni árs­skýrslu ÁTVR kemur fram að saga ÁTVR muni koma út á árinu. Ákvörð­unin var tekin í stjórn­ar­tíð Hösk­uldar Jóns­sonar, en hann var for­stjóri ÁTVR frá 1986 til 2005. Þá tók Ívar Arndal, núver­andi for­stjóri við. Í árs­skýrslu ÁTVR frá árinu 2005 kemur fram að stefnt var á að gefa hana út árið 2007 á 85 ára afmæli ÁTVR. Útgáfa sög­unnar hefur því taf­ist umtals­vert.

Í upp­haf­legri kostn­að­ar­á­ætlun frá árinu 2006 var gert ráð fyrir að kostn­aður við ritun og útgáfu sög­unnar væri 14,4 millj­ónir. Verk­efnið hefur taf­ist í yfir 10 ár og árið 2016 var áætl­aður kostn­aður til verk­efn­is­ins 22 millj­ónir króna.

Hildigunnur Ólafs­dóttir, afbrota­fræð­ingur og sjálf­stætt starf­andi fræði­maður við Reykja­víkur aka­dem­í­una, Sum­ar­liði R. Ólafsson, lektor í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlum og Sverrir Jak­obs­son, pró­fessor í mið­alda­sögu komu að ritun sög­unnar. Aðstoð­ar­for­stjóri ÁTVR, Sigrún Ósk Sig­urð­ar­dóttir, gerir ráð fyrir að sagan verði prentuð í litlu upp­lagi en einnig birt á heima­síðu ÁTVR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár