Mikið magn af rusli og blautklútum í skólphreinsistöð í Klettagörðum

Umhverf­is­stofnun minnir fólk enn og aftur á að henda ekki öðru en pappír í kló­settin.

Rusl og blautþurrkur í skólphreinsistöð í Klettagörðum
Rusl og blaut­þurrkur í skólp­hreinsi­stöð í Kletta­görðum Mynd: Umhverfisstofnun

Starfs­menn Umhverf­is­stofn­unar tóku mynd af rusli og blaut­þurrkum í skólp­hreinsi­stöð­inni í Kletta­görðum á dög­unum en á henni má sjá hvernig náðst hefur að sía ruslið frá. Við til­efnið vill Umhverf­is­stofnun minna á að allt rusl sem fer í hol­ræsi og kló­sett á oft greiða leið út í sjó. „Við viljum hvetja fólk til að henda ekki öðru en pappír í kló­settin,“ segir á vef stofn­un­ar­innar.

Þá tekur Umhverf­is­stofnun það sér­stak­lega fram að myndin sé ekki af lista­verki, þetta sé ruslið og blaut­þurrk­urnar sem „við hendum í kló­settin og á göt­urnar. Þar sem ekki er skólp­hreinsun fara þessi meng­andi óboðnu gestir beint út í sjó!“

[adspot]

Blaut­klút­arnir langstærsta vanda­málið

Árlega fara um 70 til 80 milljón tonn af skólpi gegnum hreinsi­stöðvar Veitna. Þar af eru um 200 tonn af fitu sem hellt er í nið­ur­föll en áætlað er að um 65 tonn af blaut­þurrkum sé hent í kló­sett á ári, sam­kvæmt frétt RÚV frá því í jan­úar síð­ast­liðn­um.

[links]Langstærsta vanda­málið eru blaut­klút­arn­ir, sem allt of margir henda í kló­sett­ið. Það ger­ist ítrekað að blaut­klútar stífla skólp­hreinsi­dælur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Íris Þór­ar­ins­dótt­ir, tækni­stjóri frá­veitu hjá Veit­um, sagði í sam­tali við RÚV að flestir þessir klútar væru úr fínum plast­trefjum og leyst­ust því alls ekki upp eins og kló­sett­pappír gerir í frá­veitu­kerf­inu.

Blaut­klút­arnir vefj­ast utan um dæl­urnar og bland­ast við fitu og annan úrgang. „Og myndar köggla, og það er þetta sam­bland af blaut­klútum og öðru rusli, og fitu, sem líka kemur mikið í frá­veitu­kerfið en ætti ekki að gera það, sem er að mynda þessa fitu­hlunka,“ sagði Íris.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár