Rúmlega 100 umsóknir um lokunarstyrki þegar borist

Lok­un­ar­styrkir bjóð­ast þeim sem var gert að stöðva starf­semi sína eða þjón­ustu í sótt­varn­ar­skyni. Yfir 100 umsóknir um styrk­ina hafa þegar borist.

Nuddstofum var m.a. gert að loka í samkomubanni.
Nudd­stofum var m.a. gert að loka í sam­komu­banni. Mynd: Pexels

Rík­is­skatt­stjóri opn­aði á föstu­dag­inn var fyrir umsóknir um lok­un­ar­styrki og í gær höfðu yfir 100 umsóknir borist. Heild­ar­fjár­hæð þeirra er undir 200 millj­ónum.

Þeir ein­stak­lingar og lög­að­ilar sem stunda atvinnu­rekstur eða sjálf­stæða starf­semi sem hófst fyrir 1. febr­úar í ár og var gert að stöðva starf­sem­ina í sótt­varn­ar­skyni geta átt rétt á lok­un­ar­styrk úr rík­is­sjóði að upp­fylltum ýmsum skil­yrðum. Stofn­anir, byggða­sam­lög og fyr­ir­tæki í eigu ríkis eða sveit­ar­fé­laga geta ekki sótt um lok­un­ar­styrk. Þá eiga óskatt­skyldir aðilar, eins og til dæmis íþrótta­fé­lög og líkn­ar­fé­lög, ekki rétt á slíkum styrk.

Samkvæmt lögum um fjár­stuðn­ing til minni rekstr­ar­að­ila vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru skal fjár­hæð lok­un­ar­styrks vera jafnhá rekstr­ar­kostn­aði á því tíma­bili sem skylt var að loka sam­komu­stað eða láta af starf­semi eða þjón­ustu, þ.e. á tíma­bil­inu 24. mars til 4. maí, þó þannig að hann nemi að hámarki 800 þús­und krónum á hvern launa­mann eða að hámarki 2,4 millj­ónum króna á hvern rekstr­ar­að­ila. Lok­un­ar­styrkur telst til skatt­skyldra tekna rekstr­ar­að­ila sam­kvæmt lögum um tekju­skatt.

Aug­lýs­ing heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mörkun á sam­komum vegna far­sóttar var birt í Stjórn­ar­tíð­indum 23. mars. Samkvæmt henni urðu ákveðnir aðilar að láta af starf­semi eða þjón­ustu á grund­velli sótt­varna­laga.

[links]Sund­laugum, lík­ams­rækt­ar­stöðvum, skemmti­stöðum, krám, spila­sölum, spila­kössum og söfnum var gert að loka á gild­is­tíma aug­lýs­ing­ar­innar. Þá var óheim­ilt að stunda starf­semi og þjón­ustu sem krafð­ist/hætt var við snert­ingu milli fólks eða mik­ill­ar­ná­lægðar, svo sem allt íþrótta­starf, starf­semi hár­greiðslu­stofa, snyrti­stofa, nudd­stofa og önnur sam­bæri­leg starf­semi. Þetta átti einnig við um íþrótta­starf þar sem notkun á sam­eig­in­legum bún­aði gat haft smit­hættu í för með sér, t.d. skíða­lyftur.

Eitt þeirra skil­yrða sem sett eru fyrir veit­ingu lok­una­styrkja er að við­kom­andi rekstr­ar­að­ili sé ekki í van­skilum með opin­ber gjöld, skatta og skatt­sektir sem komnar voru á eindaga fyrir lok árs 2019. Það telst til van­skila í þessu sam­bandi ef gjöld og skattar sem greiða átti á árinu 2019 voru ógreidd í lok árs þótt gerð hafi verið greiðslu­á­ætlun eða samn­ingur um greiðslu eftir þann tíma.

Snorri Olsen rík­is­skatt­stjóri segir við Kjarnann að nú sé verið að afgreiða þær uppsóknir sem þegar hafa borist. Í ein­hverjum til­vikum þarf mögu­lega að óska eftir frek­ari upp­lýs­ingum en afgreiðsla ætti ekki að taka meira en eina viku. Hann segir að ekki sé búið að taka saman töl­fræði eftir ein­stökum greinum en að það verði gert síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár