Allt að 70 prósent íbúða í sumum götum í Airbnb leigu

Þær götur sem hafa flestar Airbnb eignir á skrá eru Lauga­vegur, Hverf­is­gata, Grett­is­gata, Ber­þóru­gata, Óðins­gata og Bjarn­ar­stígur en allt að 70 pró­sent eigna í þessum götum eru skráðar hjá Airbnb.

Áttatíu pró­sent skráðra eigna hjá Airbnb eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­settar í Reykja­vík og 37 pró­sent í 101 Reykja­vík. Sautján pró­sent eru í 105 Reykja­vík og sjö pró­sent í 107 Reykja­vík. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum rann­sóknar á áhrifum Airbnb á hús­næð­is­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem birtar voru í dag.

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar hýsir mið­borgin og næsta nágrenni yfir 60 pró­sent skráðra eigna. Þær götur sem hafa flestar Airbnb eignir á skrá eru Lauga­vegur, Hverf­is­gata, Grett­is­gata, Ber­þóru­gata, Óðins­gata og Bjarn­ar­stígur en allt að 70 pró­sent eigna í þessum götum eru skráðar hjá Airbnb. Í apríl 2019 voru 2.567 eignir í Reykja­vík skráðar á Airbnb og þar af voru 58 pró­sent starf­ræktar án lög­bund­ins leyfis.

Í nið­ur­stöð­unum kemur meðal ann­ars fram að fjöldi skráðra eigna hjá Airbnb hafi marg­fald­ast á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ast­liðnum árum, til að mynda var tvö­földun á tíma­bil­inu jan­úar 2016 til jan­úar 2018 þegar skráðum eignum fjölg­aði úr 2032 í 4154. Um þrjár af hverjum fjórum skráðum eignum í Reykja­vík eru heilar eignir, þ.e. íbúðir og hús, sem er hærra hlut­fall en í flestum öðrum fjöl­sóttum borgum Evrópu.

Frekar ýtt undir félagslegan ójöfnuð

Í apríl 2019 voru 58 pró­sent skráðra eigna Airbnb í Reykja­vík starf­ræktar án lög­bund­ins leyfis. Í frétta­til­kynn­ingu frá Reykja­víkj­ur­borg kemur fram að Airbnb og stuttir leigu­samn­ingar virð­ast frekar hafa ýtt undir félags­legan ójöfnuð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í rann­sókn­inni kemur enn fremur fram að leigusalar séu ekki eins­leitur hópur með eins­leit mark­mið eða við­skipta­að­ferðir og áhrifin eftir því ólík. Á meðan sum við­skipta­módel hafi fært eign­ar­hald frá heim­ilum til fjár­festa og við­skipta, hafi önnur hjálpað íbúum að halda í heim­ili sín og/eða eiga fyrir lífs­nauð­synjum.

Ein af megin nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar er sú að Airbnb og stuttir leigu­samn­ingar virð­ast þó frekar ýta undir félags­legan ójöfnuð. Starf­semin geti skapað fjár­hags­leg tæki­færi fyrir þá sem þegar eiga eignir og þannig treyst enn betur stöðu þeirra á hús­næð­is­mark­aði. Hins vegar séu afleið­ing­arnar minna fram­boð og hærra verð sem geri þeim sem eru á hött­unum eftir að eign­ast heim­ili til kaups eða leigu erf­ið­ara fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár