Skjallbandalag Trumps og stjórnarandstöðugrín

Donald Trump hélt rík­is­stjórn­ar­fund í Hvíta hús­inu í gær sem varð til þess að stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­inn gerði grín.

Donald Trump kallaði til ríkisstjórnarfundar í gær.
Donald Trump kall­aði til rík­is­stjórn­ar­fundar í gær. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hélt rík­is­stjórn­ar­fund í Hvíta hús­inu í gær. Á fund­inum not­uðu ráð­herr­arnir ekki tæki­færið til þess að ræða deil­urnar sem stjórn Trumps stendur í við, að því er virð­ist, allt og alla.

Á fund­inum fékk hver ráð­herra í rík­is­stjórn­inni orðið fyrir framan mynda­vélar fjöl­miðla og hlóðu for­set­ann lofi og þökk­uðu per­sónu­lega fyrir tæki­færi til þess að starfa með honum.

[adspot]

Fjöl­miðla­fólki var leyft að fylgj­ast með fund­inum fyrstu tíu mín­út­urnar eða svo, á meðan vara­for­set­inn, starfs­manna­stjóri Hvíta húss­ins og ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni fengu tæki­færi til að tala.

Fjöl­miðlar vest­an­hafs nýttu gær­kvöldið og dag­inn í dag til þess að fjalla um þessar upp­haf­smínutur rík­is­stjórn­ar­fund­ar­ins. Flestir eru sam­mála um að þetta hafi í besta falli verið óeðli­legt upp­haf rík­is­stjórn­ar­fundar í Hvíta hús­inu.

Chuck Schumer, leið­togi demókrata á banda­ríska þing­inu, gerði hins vegar mikið grín að fund­inum og kall­aði til eigin fundar með sínu helsta sam­starfs­fólki, og fékk það til þess að hrósa sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár