Tæknin að knýja fram hraðar breytingar á bönkum

Banka­stjóri Íslands­banka skrifar ítar­lega grein um breyt­ingar á banka­mark­aði í Vís­bend­ingu sem kom út í dag.

Miklar breyt­ingar munu eiga sér stað á banka­starf­semi á næstu miss­erum, og miða skipu­lags­breyt­ingar hjá Íslands­banka að því að laga bank­ann og þjón­ustu hans að þessum breytta veru­leika. Tækni- og reglu­gerð­ar­breyt­ingar knýja á um breytta starf­semi og í þessu ferli fel­ast tæki­færi og ógn­anir.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri grein eftir Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, í grein í Vís­bend­ingu í dag. Í grein­inni rekur hún hvernig umhverfi banka­starf­semi er að breyt­ast, og hvernig Íslands­banki er að takast á við þessar breyt­ingar. „Það að marg­vís­leg fyr­ir­tæki, önnur en bankar, hafi áhuga á að veita banka­þjón­ustu leggur ríkar kröfur á okkur banka­fólkið um að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu, bæði innan úti­búa en ekki síður með raf­rænum dreifi­leiðum eins og appi og net­banka. Hópur þess­ara fyr­ir­tækja er mjög fjöl­breyttur. Alþjóð­legu tæknirisarnir Amazon, Google og Facebook hafa allir orðið sér út um starfs­leyfi til að veita banka­þjón­ustu í allri Evrópu. Við sjáum inn­lend tækni­fyr­ir­tæki eins og Advania sömu­leiðis feta fyrstu skref í greiðslu­þjón­ustu og síma­fyr­ir­tækið Nova rekur greiðslu­appið Aur í sam­keppni við Kass sem Íslands­banki starf­rækir. Samkvæmt rann­sókn Sopra Banking hefur yfir helm­ingur Evr­ópu­búa áhuga á að hefja banka­við­skipti við annan aðila en banka,“ segir Birna meðal ann­ars í grein­inni.

[adspot]

Hún segir að bankar þurfi að taka til­lit til þessa breytta veru­leika sem nú blasi við. Stafræn sókn hafi verið mikil á síð­ustu árum og hún muni halda áfram. Þessu ferli hafi fylgt hag­ræð­ing í rekstri en einnig enn meiri og betri þjón­usta við við­skipta­vini. „Eftir því sem staf­rænni sókn vindur áfram, hefur Íslands­banki haft tæki­færi til hag­ræða í úti­búa­neti sínu. Útibúum hefur þannig fækkað úr 26 árið 2012 í 14 í dag sem er um 17 pró­sent af heild­ar­fjölda úti­búa á Íslandi.“

Í grein­inni rekur hún síðan ítar­lega hver mark­miðin séu með skipu­lags­breyt­ingum bank­ans, sem nýlega voru kynntar. Íslands­banki er 100 pró­sent í eigu rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár