Þrátefli í Afghanistan

Yfir­hers­höfð­ingi NATO í Afganistan við­ur­kennir að bar­átta afganskra örygg­is­sveita við Talibana hafi snú­ist upp í þrá­tefli. Tali­banar ráða nú stórum hluta lands­ins. Á fjórða þús­und almennir borg­arar féllu á síð­asta ári, og hátt í sjö þús­und her­menn.

John W. Nicholson, æðsti yfir­maður Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) í Afganistan var nýlega í yfir­heyrslu frammi fyrir her­mála­nefnd öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings, þar sem hann lét þessi orð falla í svari til Johns McCain, for­manns nefnd­ar­innar.

Þetta mat Nicholsons á stöð­unni í Afganistan verður að telj­ast raun­sætt, miðað við hvernig þróun mála hefur verið þar síð­ustu árin eftir að NATO hætti beinum hern­aði í Afganistan í lok árs 2014. Afganski her­inn og lög­reglan, sam­tals á fjórða hund­rað þús­und manns, hafa átt í sívax­andi erf­ið­leikum með að halda yfir­ráðum yfir dreifðum byggðum lands­ins, bæði gegn Tali­bönum, sem og liðs­mönnum sveita sem lýst hafa yfir aðild að Daesh (sam­tökin sem kenna sig við Ríki Íslams). Tali­banar eru nú taldir ráða yfir um tíunda hluta lands­ins og hafa ítök og áhrif enn víðar. Þó þeim hafi til þessa mis­tek­ist að leggja undir sig þétt­býl­iskjarna og borgir, þá hafa þeir um tíma náð yfir­ráðum, til dæmis í Kunduz í norð­ur­hluta lands­ins. Við­var­andi átök hafa einnig verið í Helmand-hér­aði, í námunda við Laskhar Gah, stærstu borg­ina þar og Tali­banar ráða í raun stórum svæðum í Helmand. Sjálfs­morðs­sprengju­árásir eru næstum dag­legt brauð í Kabúl og öðrum stórum borgum Afganist­ans; nán­ast allar opin­berar stofn­anir, erlend sendi­ráð og bæki­stöðvar alþjóð­aliðs­ins eru víg­girtar og flestir starfs­menn erlendra stofn­ana í Kabúl ferð­ast um í bryn­vörðum bif­reiðum eða með þyrlum, vegna hætt­unnar á sprengju­árásum.

John W. Nicholson, æðsti yfirmaður NATO í Afganistan.
John W. Nicholson, æðsti yfir­maður NATO í Afganistan.

Hlutverk NATO og alþjóðaliðsins

Síðan í byrjun árs­ins 2015 hefur hlut­verk NATO í Afganistan falist í að þjálfa, ráð­leggja og aðstoða afgönsk stjórn­völd og örygg­is­sveitir þeirra, sem nú eru í fram­lín­unni í bar­átt­unni gegn Tali­bönum og liðs­mönnum Daesh. Þessi aðgerð gengur undir nafn­inu Resolute Support og að henni standa aðild­ar­þjóðir NATO og önnur ríki sem starfa með banda­lag­inu. Til hliðar við Resolute Support er banda­ríski her­inn svo með sér­staka aðgerð, Freedom Sentinel, sem bein­ist gegn liðs­mönnum og for­sprökkum hermd­ar­verka­sam­taka í Afganistan (og reyndar einnig stundum í Pakistan). Banda­rískar her­flug­vélar hafa einnig í auknum mæli verið not­aðar til að gera loft­árásir á liðs­menn Talibana, í þeim til­gangi að styðja við hern­að­ar­að­gerðir afganska sveita. Þeim árásum hefur fjölgað síðan um mitt síð­asta ár, þegar banda­rískir her­for­ingjar fengu auknar heim­ildir til að beita loft­árásum í þessum til­gangi. Þótt strangar reglur gildi um slíkar árásir, til að minnka lík­urnar á því að almennir borg­arar verði fyrir barð­inu á þeim, þá hefur það gerst í nokkrum til­vikum. Í nóv­em­ber á síð­asta ári féllu til að mynda 33 almennir borg­arar og 27 særð­ust eftir að loft­árás var gerð í Kunduz, þar sem afganskar her­sveitir ásamt banda­rískum ráð­gjöfum voru í bar­daga við Talibana. Yfir­maður banda­ríska hers­ins baðst í kjöl­farið afsök­unar, en gaf þá útskýr­ingu að liðs­menn Talibana hefðu falið sig meðal almennra borg­ara og ráð­ist þaðan á her­sveitir.

Nú eru 39 aðildar- og sam­starfs­þjóðir NATO með her­lið eða starfs­fólk í Afganistan, sam­tals um 13.500 manns, auk þess sem á milli tutt­ugu og þrjá­tíu þús­und verk­takar (í mörgum til­fellum fyrr­ver­andi her­menn) starfa á vegum NATO og Banda­ríkja­hers. Nicholson, yfir­hers­höfð­ingi NATO í Afganistan sagði nýlega að hann þyrfti fleiri her­menn í verk­efni NATO í land­inu, en að hann hefði nægan mann­skap til að sinna Freedom Sentinel verk­efn­inu gegn hermd­ar­verka­sam­tökum.

Erfitt er að ná utan um það fjár­magn sem streymt hefur til Afganistan frá ein­stökum löndum og alþjóða­sam­tökum. Langstærsti hlut­inn af þessum fjár­munum hefur hins vegar komið frá Banda­ríkj­unum; síðan 2002 hefur Banda­ríkja­þing sam­þykkt fram­lög sam­tals upp á meira en 117 millj­arða banda­ríkja­dala til hern­að­ar­að­stoðar, þró­un­ar­mála, og ann­arra verk­efna í Afganistan sam­kvæmt skýrslu sem SIGAR gefur reglu­lega út, en það er sér­stök stofnun á vegum Banda­ríkja­stjórnar sem fylgist með og end­ur­skoðar árangur upp­bygg­ing­ar­starfs Banda­ríkja­manna í Afganistan. Á þessu ári er til dæmis gert ráð fyrir að banda­rísk stjórn­völd verji rúmum 4 millj­örðum banda­ríkja­dala í vopna­búnað, þjálfun og við­hald fyrir afganska her­inn og lög­regl­una og NATO (auk sam­starfs­þjóða) hafa heitið um 450 milljón banda­ríkja­dölum árlega í sér­stakan sjóð sem styður afganska her­inn.

Viðvarandi átök

Þrátt fyrir allan þennan stuðn­ing vest­rænna ríkja, þá er ljóst að afgönsk stjórn­völd hafa átt í miklum erf­ið­leikum með að halda uppi öryggi í land­inu og vinna bug á sveitum Talibana og ann­arra sam­taka.

„Ástand örygg­is­mála í Afganistan er senni­lega með versta móti núna síðan 2001,“ segir Sune Engel Rasmus­sen, danskur frétta­maður sem búið hefur í Kabúl síðan 2014 og skrifar fyrir fjöl­miðla á borð við The Guardian, The Economist og Weekendavisen í Danmörku. „Tali­banar hafa aldrei ráðið yfir eins stórum hluta lands­ins; geta her- og lög­reglu­sveita stjórn­valda er tak­mörkuð, til að mynda vegna mann­falls og þess að her­menn yfir­gefa stöður sínar. Ég er ekki að halda því fram að Tali­banar geti lagt undir sig Kabúl, en eins og staðan er núna, þá virð­ast þeir hafa nægan vilja og getu til að berj­ast, í stað þess að eiga í raun­veru­legum við­ræðum um frið. Því miður held ég að búast megi við auknum átökum og ofbeldi í Afganistan á þessu ári.“

Í nýj­ustu skýrslu SIGAR til banda­ríska þings­ins kemur fram að yfir­ráð og áhrif stjórn­valda í Kabúl yfir land­svæðum í Afganistan hafi dreg­ist saman á síð­asta ári; að Tali­banar hafi víkkað út yfir­ráða­svæði sitt í land­inu. Töl­fræðin er nokkuð slá­andi: í nóv­em­ber í fyrra voru aðeins 233 sýslur (af sam­tals 403) undir stjórn afganskra yfir­valda, 41 var undir stjórn upp­reisn­ar­manna, og tek­ist var á um 133 sýslur.

Í afganska hernum eru um 150.000 manns og nokkuð fleiri í sveitum lög­reglu. Á ell­efu mán­aða tíma­bili í fyrra féllu næstum sjö þús­und afganskir her- og lög­reglu­menn í átökum í land­inu og hátt í tólf þús­und særð­ust, Nokkur óvissa er þó í kringum þessar tölur og ýmis­legt bendir til þess að þær gætu verið hærri. Léleg stjórnun og spill­ing eru við­var­andi vanda­mál í hernum og lög­regl­unni, rétt eins og í öðrum geirum sam­fé­lags­ins í Afganistan; her­for­ingjar hafa til dæmis orðið upp­vísir að því að halda úti löngum listum af her­mönnum sem raun­veru­lega eru ekki til staðar, og stinga launum þeirra í eigin vasa. Spilling er í raun eitt af stærstu vanda­mál­unum í Afganistan, og stór ástæða þess hversu hægt gengur að gera end­ur­bætur á stjórn­kerf­inu.

Almennir borg­arar fara heldur ekki var­hluta af þessum við­var­andi átökum í Afganistan. Í fyrra féllu um 3500 borg­arar í átökum örygg­is­sveita og upp­reisn­ar­manna í land­inu, og næstum 8000 særð­ust, sam­kvæmt yfir­liti sem UNAMA, stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna í Afganistan birti nýlega. Síðan 2009 hafa næstum 25 þús­und almennir borg­arar fallið í átök­unum og ríf­lega 45 þús­und manns hafa særst. Bara í fyrra neydd­ust um 630 þús­und manns til að flýja heim­ili sín vegna átaka í Afganistan. Yfirvöld standa einnig frammi fyrir því að taka á móti tugum og hund­ruðum þús­unda Afgana sem yfir­völd í Pakistan hafa mark­visst verið að vísa úr landi á síð­ustu mán­uðum, auk þeirra afgönsku flótta­manna sem kom­ist hafa til Evrópu en er verið að senda til baka.

Blóði drifin saga

Saga síð­ustu ára­tuga í Afganistan er blóði drifin og í raun má segja að stærstur hluti íbúa lands­ins, allir þeir sem fæddir eru á und­an­förnum fjör­tíu árum eða svo, hafi aldrei upp­lifað neitt annað en stríðs­á­stand eða ógn­ar­stjórn. Borg­ara­styrj­öld braust út árið 1978, eftir að komm­ún­istar, undir stjórn Mohammads Naji­bullah, tóku völdin í land­inu. Tæpum tveimur árum síðar, um jólin 1979, sendu þáver­andi Sov­ét­ríkin fjöl­mennt her­lið til Afganistan, til að styðja við bakið á stjórn­völdum. Þau inn­grip sner­ust síðan upp í níu ára stríð Sov­ét­manna gegn upp­reisn­ar­mönnum, sem voru dyggi­lega studdir meðal ann­ars af banda­rískum og paki­stönskum stjórn­völdum. Um fimmtán þús­und sov­éskir her­menn féllu og tugir þús­unda upp­reisn­ar­manna. Talið er að hátt í tvær millj­ónir almennra borg­ara hafi fallið, auk þess sem millj­ónir flúðu land, aðal­lega til Pakist­ans og Írans.

Átökin í land­inu héldu áfram eftir að Sov­ét­menn drógu her­lið sitt til baka árið 1989. Stjórn­völd í Moskvu héldu þó áfram stuðn­ingi sínum við stjórn Naji­bullah í Kabúl, sem tókst að halda í völdin næstu þrjú árin, eða til 1992. Eftir það tók við sam­steypu­stjórn allra stríð­andi fylk­inga nema einnar: Hezb-e Islami, undir stjórn manns að nafni Gul­buddin Hekt­mata­yar. Sá kemur reyndar enn við sögu í stjórn­málum Afghanistan, sem og aðrir stríðs­herrar frá þessum tíma.

Næsta skref Hekt­mata­y­ars og hans manna var að gera linnu­lausar árásir á Kabúl, þar sem tugir þús­unda íbúa féllu. Hek­mata­yar er stundum kall­aður „slátr­ari Kabúl“ og ekki að ástæðu­lausu. Með þessu opn­að­ist nýr kafli í borg­ara­stríð­inu í Afganistan, sem beint og óbeint leiddi til þess að Tali­banar náðu hægt og bít­andi völdum, fyrst í suð­ur­hluta Afganistan og nokkrum árum síðar í öllu land­inu. Ógn­ar­stjórn þeirra byggði á strangri túlkun á reglum Kór­ans­ins, og ein­kennd­ist af mann­rétt­inda­brotum og kúgun kvenna. Í skjóli Talibana höfðu svo al-Kaída hryðju­verka­sam­tökin komið sér upp þjálf­unar- og bæki­stöðvum í Afganistan.

Tveir stríðs­herrar héldu lengst út gegn Tali­bönum: Abdul Rashid Dostum (sem nú er vara­for­seti Afganistan) og Ahmad Shah Massoud. Þeir mynd­uðu Norð­ur­banda­lagið, sem réð land­svæðum í norður- og aust­ur­hluta Afganistan. Tali­banar sigr­uðu liðs­menn Dostums í bar­dögum nálægt borg­inni Mazar-i-Sharif á árunum 1997 til 1998, og í sept­em­ber 2001, tveimur dögum fyrir árás­ina á tví­bura­t­urn­ana í New York, féll Massoud fyrir hendi tveggja hryðju­verka­manna sem höfðu dul­búið sig sem sjón­varps­frétta­menn.

Innrás vesturveldanna, ISAF og Resolute Support

Ógn­ar­stjórn Talibana í Afganistan var steypt af stóli í des­em­ber 2001, eftir að Banda­ríkja­menn réð­ust inn í landið. Stjórn­völd í Washington höfðu krafið Talibana um að fram­selja Osama Bin Laden, höf­uð­paur­inn að baki árás­unum í New York 11. sept­em­ber, en Tali­banar höfn­uðu þeim kröfum. Hamid Karzai var settur í stól for­seta Afganistan og ISAF (International Security Assistance Force) var komið á lagg­irnar að for­skrift Örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna. NATO tók síðan yfir stjórn ISAF árið 2003.

Síðan þá hafa á annað hund­rað þús­und her­menn verið sendir til Afganistan frá aðildar- og sam­starfs­þjóðum NATO, bæði til að þjálfa og aðstoða afganskar örygg­is­sveitir, en einnig til að taka þátt í beinum bar­dögum við upp­reisn­ar­menn Talibana. Á fjórða þús­und her­menn NATO og ann­arra þjóða hafa fallið í bar­dögum í Afganistan síð­ustu sextán árin; í höf­uð­stöðum NATO í Kabúl er þeirra, sem og fall­inna afganskra her­manna minnst í sér­stakri athöfn sem haldin er hvern föstu­dag.

Brotthætt stjórn (svokallaðrar) einingar og samstöðu

Eftir umdeildar for­seta­kosn­ingar árið 2014, þar sem ásak­anir um atkvæða­svindl flugu á alla vegu, stóð Asraf Ghani uppi sem sig­ur­veg­ari og nýr for­seti lands­ins – en aðeins eftir að þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, John Kerry, kom til Kabúl, og samdi um að Ghani myndi deila völdum með Abdullah Abdullah, sem hafði ásamt Ghani, kom­ist áfram í aðra umferð kosn­ing­anna. Sérstök staða nokk­urs konar for­sæt­is­ráð­herra var búin til fyrir Abdullah og til stóð að end­ur­skoða stjórn­ar­skrá lands­ins þannig að staða hans yrði lög­fest. Slík end­ur­skoðun hefur enn ekki farið fram, og átök um völd og áhrif hafa ein­kennt rík­is­stjórn­ina; í fyrra hrikti veru­lega í stoðum hennar þegar Abdullah lýsti því yfir að Ghani væri óhæfur til að gegna starfi for­seta. Báðir gera sér hins vegar grein fyrir afleið­ingum þess að hætta sam­starf­inu, segir Sune Engel.

Þeir Abdullah Abdullah og Asraf Ghani fylgjast með John Kerry flytja ræðu.
Þeir Abdullah Abdullah og Asraf Ghani fylgj­ast með John Kerry flytja ræðu.

„Storma­samt sam­band Ghani og Abdullah er stór hluti ástæð­unnar fyrir því að svo erfitt reyn­ist að koma á þeim end­ur­bótum sem Ghani lof­aði í kosn­inga­bar­átt­unni og landið þarf nauð­syn­lega á að halda. Rík­is­stjórnin er í raun lömuð og heldur aftur af til­raunum til að ber­ast gegn spill­ingu og skapa öryggi. Hins vegar tel ég ólík­legt að rík­is­stjórnin falli. Alþjóða­sam­fé­lagið mun ein­fald­lega ekki leyfa því að ger­ast, auk þess sem bæði Ghani og Abdullah vita að ef rík­is­stjórnin springur, þá er raun­veru­leg hætta á borg­ara­styrj­öld í land­inu. Þess vegna tel ég að engin breyt­ing verði á þessu ástandi þar til næst verða haldnar for­seta­kosn­ingar.“

Er friður í augsýn?

Allir sem fjalla um eða skipta sér að ein­hverju leyti af ástandi mála í Afganistan eru sam­mála um að engin leið sé til að koma á friði í land­inu, nema með því að ná samn­ingum við Talibana; sigur verði aldrei unn­inn á víg­vell­inum. Friður hefur hins vegar til þessa reynst vera tál­sýn. Snemma á síð­asta ári var mikið lagt í und­ir­bún­ing við­ræðna við Talibana, en þær fóru út um þúfur þegar í ljós kom að stofn­andi og leið­togi Talibana, Mullah Mohammed Omar, hefði lát­ist árið 2013. Síðan þá hafa ein­hverjar við­ræður farið fram, en litlar líkur eru taldar á því að þær beri ávöxt, að minnsta kosti á meðan Tali­banar líta svo á að átök, skæru­hern­aður og sprengju­árásir skili sér í auknum yfir­ráðum og áhrifum í Afganistan.

Stjórn­völd í Kabúl binda hins vegar vonir við að nýgerður frið­ar­samn­ingur við Gul­buddin Hek­mata­yar og liðs­menn hans í Hezb-e Islami geti orðið að ein­hvers konar fyr­ir­mynd samn­inga við aðra upp­reisn­ar­menn. Sá samn­ingur var stað­festur í Kabúl nýlega og þýðir að Hek­mata­yar og hans lið getur komið úr felum; til að liðka fyrir þessu ákvað Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna snemma í febr­úar að aflétta refsi­að­gerðum og for­dæm­ingu á Hek­mata­yar. Frið­ar­sam­komu­lagið við hann er þó talið skipta litlu máli hvað átökin sjálf varðar, því Hek­mata­yar ræður aðeins yfir nokkur þús­und manna liði, á meðan liðs­menn Talibana eru taldir vera um fimm­tíu þús­und. Ákvörðun Örygg­is­ráðs­ins gæti hins vegar orðið til þess að hvetja þá til að hugsa málið.

Það sem flækir svo enn frekar þessa stöðu eru sam­skipti og sam­band stjórn­valda í Kabúl við nágranna­ríki sín. Ráðamenn í Pakistan hafa um langt skeið verið sak­aðir um að hafa stutt Talibana leynt og ljóst, til að við­halda ótryggu ástandi í Afganistan; æðstu stjórn­endur Talibana hafa um langt skeið verið í leynum í Pakistan og þaðan hafa margir af liðs­mönnum sam­tak­anna komið. Rússar hafa einnig verið að seil­ast til áhrifa á svæð­inu, og í yfir­heyrslum á Banda­ríkja­þingi nýlega sá Nicholson, yfir­hers­höfð­ingi NATO í Afganistan, raunar ástæðu til að gagn­rýna Rússa fyrir að halda því á lofti að Tali­banar væru gagn­legir í bar­átt­unni gegn Daesh; með því væri verið að gefa Tali­bönum lög­mæti sem þeir ættu ekki skilið. Indversk stjórn­völd hafa einnig verið að seil­ast til áhrifa í Afganistan, og það hefur að sjálf­sögðu vakið við­brögð og tor­tryggni í Pakistan, enda lít­ill vin­skapur með yfir­völdum í Nýju Deli og Islama­bad. Allt þetta hljómar eins og end­ur­ómur af „The Great Game“; valda­bar­áttu Breta og Rússa á svæð­inu á 19. öld og til­raunum þeirra til að leggja undir sig eða kom­ast til áhrifa í Afganistan.

Hvað næst?

Banda­rísk stjórn­völd ákváðu á síð­asta ári að fækka tals­vert í liði sínu í Afganistan. Þar eru nú um 8.400 banda­rískir her­menn, þótt Barack Obama, fyrr­ver­andi for­seti, hefði upp­haf­lega haft það á stefnu­skrá sinni að draga allt her­lið til baka frá land­inu. Ekki er ljóst hvað núver­andi stjórn­völd í Washington ætla sér, en flestir frétta­skýrendur búast þó við að Donald Trump muni ekki fækka veru­lega í her­liði Banda­ríkj­anna í Afganistan. Alþjóða­sam­fé­lagið, þar á meðal aðild­ar­ríki NATO hafa heitið stuðn­ingi næstu árin, en samt er ekki ljóst hversu lengi Resolute Support verk­efnið verður til staðar í Afganistan. Íhlutun NATO þar er fyrir löngu orðið að stærsta og lengsta verk­efni banda­lags­ins og raunar Banda­ríkj­anna einnig, og miklir hags­munir eru tengdir því að sjá árangur; kannski má segja að því lengur sem íhlut­unin vari, því erf­ið­ara verði að hætta henni.

Yfirlýst mark­mið NATO og Banda­ríkj­anna er að koma í veg fyrir að Afganistan verði aftur hæli hryðju­verka­manna sem geti þaðan skipu­lagt árásir á önnur lönd – og að afganski her­inn og lög­reglan geti að fullu og óstudd séð um að halda uppi öryggi fyrir almenna borg­ara. Reynsla síð­ustu ára sýnir að það er verk­efni sem ekki sér fyrir end­ann á, segir Sune Engel.

„Alþjóð­aliðið virð­ist ekki vera með neina áætlun um hvernig eigi að stilla til friðar í Afganistan. Hér er rekið sér­stakt verk­efni gegn hryðju­verka­sam­tökum, þar sem ráð­ist er á litlar sveitir manna sem lýst hafa yfir stuðn­ingi við sam­tökin sem kenna sig við Íslamskt ríki, og hópa úr al-Kaída sam­tök­unum, en það virð­ist engin lang­tíma­á­ætlun vera til staðar. Auðvitað er það hlut­verk afganskra örygg­is­sveita að sigr­ast á Tali­bönum, en eins og staðan er núna, þá er alþjóð­aliðið í litlum tengslum við það sem ger­ist á víg­vell­inum. Það dregur úr vilja afganskra her­manna til að berj­ast, og gerir lítið til þess að koma í veg fyrir spill­ingu meðal her­for­ingja.“

Um höfundinn

Björn Malmquist er fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV og starf­aði sem frið­ar­gæslu­liði á vegum Utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í Kabúl frá 2015 til 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár