Stýrivextir áfram 5,25 prósent

Már Guðmundsson seðlabankastjóri situr í peningastefnunefnd.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri situr í pen­inga­stefnu­nefnd. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda meg­in­vöxtum sínum óbreyttum. Þeir verða því áfram 5,25 pró­sent. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu hennarsem birt var í morgun. Það rök­styður hún m.a. með því að verð­bólga hafi mælst tölu­vert hærri í sept­em­ber en í ágúst, en það gerði hún vegna mis­taka Hagstofu Íslands í útreikn­ingi vísi­tölu neyslu­verðs. Mistökin gerðu það að verkum að verð­bólga var van­metin í nokkra mán­uði, frá mars og fram í ágúst.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að hækkun á verð­bólgu í sept­em­ber end­ur­spegli að hluta „leið­rétt­ingu á skekkju í verð­bólgu­mæl­ingum Hagstofu Íslands á tíma­bil­inu mars til ágúst sl. Ofspá Seðla­bank­ans á verð­bólgu fram eftir ári var því í raun minni en áður var talið. Verð­bólgu­horfur hafa þó lík­lega lítið breyst frá þeirri spá sem bank­inn birti í ágúst enda hefur gengi krón­unnar hækkað enn frekar og verð­bólgu­vænt­ingar eru áfram við verð­bólgu­mark­miðið.

Líkur á vax­andi spennu í þjóð­ar­bú­skapnum og óvissa í tengslum við losun fjár­magns­hafta kalla á var­færni við ákvörðun vaxta. Aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar á kom­andi miss­erum mun því ráð­ast af efna­hags­þró­un­inni og því hvernig tekst til við losun fjár­magns­hafta.“

Vextir lækkaðir í ágúst

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands lækk­aði vexti bank­ans um 0,5 pró­sent­ur í lok ágúst. Meg­in­vextir bank­ans fóru þá úr 5,75 pró­sentum í 5,25 pró­sent. Meg­in­vextir bank­ans höfðu hald­ist óbreyttir frá því að þeir voru hækk­aðir í 5,75 pró­sent í nóv­em­ber 2015.

Seðla­bank­inn hafði þá legið undir ámæli fyrir að lækka ekki vexti í ljósi þess að verð­bólga hafði nú verið undir verð­bólgu­mark­miði hans síðan í febr­úar 2014. Ákvörðun pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar hafði þau áhrif að breyti­legir vextir við­skipta­vina fjár­mála­stofn­anna lækk­uðu og þau kjör sem þær bjóða nýjum lán­tak­end­um. Seðla­bank­inn rök­studdi ákörðun sína með því að verð­bólgu­spár hefðu batnað.

Og flestir grein­ing­ar­að­ilar bjugg­ust við að vaxta­lækk­un­ar­skeið væri hafið. Af því varð þó ekki.

Mistök Hagstofunnar

Í síð­ustu viku var greint frá því því að hjá Hag­stofu Íslands hefði reiknuð húsa­leiga verið van­metin við útreikn­ingi vísi­tölu neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu. Þessi mis­tök voru leið­rétt með þeim afleið­ingum að vísi­talan hækk­aði um tæp 0,5 pró­sent á milli mán­aða og langt umfram allar opin­berar spár. Þetta þýddi líka að 12 mán­aða verð­bólga hefur verið veru­lega van­metin und­an­farið hálft ár. Árs­verð­bólga, sem var 0,9 pró­sent í ágúst, mælist því 1,8 pró­sent í sept­em­ber.

Mis­tök Hag­stof­unnar hafa víð­tæk áhrif. Þeir sem tekið hafa ný verð­tryggð hús­næð­is­lán á því tíma­bili sem þau ná yfir munu til að mynda þurfa að greiða upp­safn­aðar verð­bætur af lánum sín­um. Þeir sem tóku lán í sept­em­ber­mán­uði munu auk sjá þau hækka skarpar en ann­ars hefði orð­ið. Þeir sem ætla sér að taka verð­tryggð hús­næð­is­lán þessa dag­anna ættu að bíða fram í nóv­em­ber hið minnsta svo þeir þurfi ekki að greiða upp­safn­aðar verð­bætur tíma­bils sem þeir voru ekki með lán, vegna mis­taka Hag­stof­unn­ar. Þá mun húsa­leiga þeirra sem er bundin við þróun vísi­tölu neyslu­verðs hækka um kom­andi mán­að­ar­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár