Banna hálfsjálfvirka riffla og hríðskotariffla í Nýja Sjálandi

Nýsjá­lend­ingar ætla að banna hálf­sjálf­virka riffla og hríð­skotariffla í kjöl­far ódæð­is­ins í Christchurch í síð­ustu viku. For­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands kynnti í nótt vopna­lög­gjöf­ina en stefnt er að nýju lögin taki gildi í apríl næst­kom­andi.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja Sjálands
Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands Mynd: EPA

Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands, til­kynnti í sjón­varps­ávarpi í nótt að ný og hert vopna­lög­gjöf taki gildi í Nýja Sjálandi í apríl næst­kom­andi. Bannað verður að selja, kaupa og eiga hálf­sjálf­virka riffla og hríð­skotariffla. Lög­gjöfin er kynnt í kjöl­far ódæð­is­ins í Christchurch í síð­ustu viku. Frá þessu er greint á vef Reuters.

Hindra kaup á slíkum vopnum þar til löggjöfin tekur gildi

[links]Í ávarpi sínu sagði Ardern að í kjöl­far hryðju­verks­ins þann. 15. mars síð­ast­lið­inn hefði sögu lands­ins verið breytt til fram­búðar og nú verði byssu­lög­gjöf­unni einnig breytt. Fimmtíu manns lét­ust í skotárás í tveimur moskum í borg­inni Christchurch í Nýja Sjá­landi í síð­ustu viku. Árás­armað­ur­inn keypti byss­urnar sínar með lög­legum hætti og þar að auki hafði hann keypt margra skota magasín og fleiri hluti sem gerðu byss­urnar hættu­legri. [adspot]

Ardern sagði að vinna við nýju lög­gjöf­ina væri nú þegar hafin og stefnt væri að hún tæki gildi þann 11. apríl næst­kom­andi. Með lög­gjöf­inni verða öll hálf­virk skot­vopn og hríð­skotarifflar bann­aðar. Auk þess sem allur bún­aður sem er til þess fall­inn að breyta venju­legum rifflum í eitt­hvað í lík­ingu við fyrr­nefndar byssur verður ólög­legur. Í ávarp­inu greindi Ardern einnig frá því að sett hafi verið bráða­birgða­reglu­gerð sem tók gildi um leið og hún flutti ávarp sitt í nótt en henni er ætlað að hindra að nokkur geti fest kaup á slíkum vopnum þar til nýju lögin verða sam­þykkt.

Hún sagði að mark­miðið væri að gera Nýja Sjáland að örugg­ari stað og hún sagð­ist sann­færð um að þessar aðgerðir nytu stuðn­ings þjóð­ar­innar, líka bænda og fleiri sem nota skot­vopn við störf sín, enda bein­ist lög­gjöfin á engan hátt gegn þeim. Ljóst er að margir eiga vopn af því tagi sem nú á að banna en eig­endum slíkra vopna verður gef­inn frestur til að skila þeim til stjórn­valda sem greiða fyrir þau til­tekna upp­hæð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár