4% hagvöxtur í Svíþjóð – Bretar missa af uppsveiflunni

Nýbirtar hag­vaxt­ar­tölur Evr­ópu­sam­bands­ríkja og Banda­ríkj­anna benda til upp­sveiflu á Vest­ur­lönd­unum. Bretar virð­ast hins vegar missa af þess­ari upp­sveiflu, þar sem lands­fram­leiðsla hefur ekki auk­ist jafn hratt þar í landi.

Gamla Stan í Stokkhólmi. Mikill hagvöxtur Svía er talinn vera vegna neikvæðra stýrivaxta.
Gamla Stan í Stokk­hólmi. Mikill hag­vöxtur Svía er tal­inn vera vegna nei­kvæðra stýri­vaxta. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lands­fram­leiðsla Sví­þjóðar óx um 1,7% síð­ustu þrjá mán­uð­ina, sem sam­svarar 4% hækkun á árs­grund­velli. Einnig er til­tölu­lega mik­ill hag­vöxtur í Banda­ríkj­unum og öðrum ESB-löndum, á meðan hægir á breska hag­kerf­inu. Þetta kemur fram á frétt The Guardian fyrr í dag.

Uppsveifla Vesturlanda

Bjartar horfur eru á Evru­svæð­inu um þessar mundir, en sam­kvæmt nýbirtum tölum Evr­ópu­sam­bands­ins hefur bjart­sýni meðal aðild­ar­ríkja þess í efna­hags­málum ekki verið meiri síðan fyrir fjár­mála­hrunið 2008.

Aukin bjart­sýni er einnig í takt við hag­vaxt­ar­tölur margra Evr­ópu­sam­bands­ríkja fyrir annan árs­fjórð­ung 2017, en lands­fram­leiðsla Frakk­lands, Spánar og Sví­þjóðar hefur auk­ist tölu­vert á tíma­bil­inu. Í Frakk­landi var hag­vöxt­ur­inn 0,5%, eða 1,8% á árs­grund­velli, en búist er við heil­brigðum vexti út árið ef breyt­ingar á vinnu­mark­aði ná fram að ganga.

Á Spáni náði hag­vöxt­ur­inn 0,9% fyrir sama tíma­bil og 3,1% á árs­grund­velli. Með því hefur lands­fram­leiðsla Spánar loks­ins orðin jafn­mikil og rétt fyrir fjár­málakrepp­una.

Mestur var hag­vöxt­ur­inn þó í Svíþjóð, eða um 1,7% á einum árs­fjórð­ungi og 4% á árs­grund­velli. Vöxt­ur­inn fór langt fram úr vænt­ingum grein­ing­ar­að­ila, en þeir spáðu um 1% vexti. Helsti drif­kraftur hag­vaxt­ar­ins þar í landi virð­ist vera pen­inga­mála­stefna lands­ins, en stýri­vextir seðla­bank­ans eru þar nei­kvæðir í -0,5%, sem hvetur til auk­innar lán­töku.

Í Banda­ríkj­unum hefur hag­vöxtur einnig tekið kipp en þar mælist hann um 0,65% fyrir annan árs­fjórð­ung, eða 2,6% á árs­grund­velli. Þetta er meira en tvö­falt hærri vaxt­ar­tölur en á fyrsta árs­fjórð­ungi, en hag­vöxt­ur­inn var að mestu drif­inn áfram af auk­inni einka­neyslu.

Ársfjórðungsvöxtur landsframleiðslu Bretlands frá 2008

Brexit-vandræðin

Bretland virð­ist missa af upp­sveiflu Vest­ur­land­anna, en árs­fjórð­ungs­vöxtur þar í landi náði ekki nema 0,3%, sem var í takt við vænt­ingar sér­fræð­inga. Breska hag­kerfið hefur átt erfitt upp­dráttar síð­ast­liðna 13 mán­uði eftir Brexit-atkvæða­greiðsl­una, en pundið hefur lækkað, iðn­aða­fram­leiðsla dreg­ist saman og verð­bólga auk­ist. Kólnun hag­kerf­is­ins má sjá í hag­vaxt­ar­tölum lands­ins síð­ustu tvo árs­fjórð­ung­ana, en þær eru nokkuð undir með­al­tali síð­ustu ára eins og sjá má á mynd hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár