Allra augu ættu að vera á genginu

Hvað má krónan styrkj­ast mikið?

Flestir hag­vísar snúa í rétta átt. Atvinnu­leysi er lítið sem ekk­ert, eða um þrjú pró­sent, hag­vöxtur er á milli fjögur og fimm pró­sent á ári og vöru- og við­skipta­jöfn­uður, sam­an­lagður, er jákvæður svo um munar.

Vöru­skipta­jöfn­uður er reyndar við­var­andi nei­kvæður, um 12,7 millj­arða í ágúst sam­kvæmt Hagstofu Íslands, en mik­ill upp­gangur í ferða­þjón­ust­unni heldur stöðu mála réttu megin við strikið. Þannig var þjón­ustu­jöfn­uður jákvæður um 202 millj­arða í fyrra, og 62 millj­arða sé ein­ungis litið til ann­arsárs­fjórð­ungs á þessu ári.

Mikið innstreymi

Gjald­eyr­is­inn­streymi frá ferða­mönnum verður meira á þessu ári, en spáð hafði verið fyrir árið. Búist er við að það verði meira en 430 millj­arðar á þessu ári, en náði yfir 500 millj­arða á því næsta, sem gerir þennan vax­andi atvinnu­veg lang­sam­lega stærsta gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­veg lands­ins.

Gengi krón­unnar hefur styrkst um 10,55 pró­sent gagn­vart evr­unni á einu ári, og er gjald­eyr­is­inn­streymið frá ferða­mönnum, innan fjár­magns­hafta, þar ríkur þáttur. Evran kostar nú 128 krónur en var fyrir rúmu ári á ríf­lega 150 krónur. Banda­ríkja­dalur er kom­inn niður fyrir 115 krónur og pundið kostar nú 148 krónur, eftir hálf­gert verð­hrun í kjöl­far Brex­it­kosn­ing­ar­innar í sumar. Fyrir ári síðan kost­aði pundið um 205 krónur.

Hvað gerist?

Styrking krón­unnar er lík­leg til að halda áfram, ef spár um vöxt­inn í ferða­þjón­ust­unni ræt­ast. Mun meira gjald­eyr­is­inn­streymi til lands­ins heldur en frá því, getur leitt til mik­illar styrk­ingar á geng­inu á skömmu tíma. Það leiðir síðan til þess að verð­lag hér á landi, mælt í erlendri mynt, hækkar hratt. Auk þess sem úflutn­ings­fyr­ir­tæki almennt fá minna fyrir sinn snúð.

Stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins, Icelandair Group, hefur fallið nokkuð í mark­aðsvirði upp á síðkastið, en geng­is­styrk­ingin hefur mikil áhrif á arð­semi fyr­ir­tæk­is­ins þar sem tekjur eru að stærstu leyti erlendis frá. Í maí á þessu ári var gengi bréf félags­ins tæp­lega 36, en eftir 1,26 pró­sent fall í dag, er það 25,3. Lækkunin á mark­aðsvirði á síð­ustu fimm mán­uðum nemur meira en 40 millj­örðum króna.

Í ljósi þess hve vaxt­ar­skeiðið í ferða­þjónst­unni er nýtil­komið er erfitt að spá fyrir um hvaða áhrif hækk­andi verð mun hafa á áhuga ferða­manna á land­inu. Í versta falli getur hann minnkað hratt, með til­heyr­andi erf­ið­leikum fyrir fyr­ir­tæki í grein­inni og íslenskt þjóð­arbú.

Allra augu í hag­stjórn­inni ættu því að vera á geng­inu á næstu miss­erum, og hefur pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, í grein­ar­gerð til rík­is­stjórnar, sér­stak­lega vikið að því að geng­is­þróun geti haft mikið um það að segja hvernig staða mála mun þró­ast í íslenska hag­kerf­inu á næstu miss­erum.

Eins og oft í Íslands­sög­unni þá geta snöggar geng­is­sveiflur, ýmist til styrk­ingar eða veik­ingar, breytt stöð­unni hratt til hins betra eða verra. Verð­bólga hefur hald­ist niðri að und­an­förnu og mælist nú 0,9 pró­sent. Það er ekki síst að þakka hraðri styrk­ingu krón­unnar gagn­var helstu við­skipta­myntum, en einnig mik­ill verð­lækkun á hrá­vörum, ekki síst olíu, sem hefur leitt til lægra verð­lags á inn­fluttum vörum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár