Punktar um fasteignaverðið - Bæði til hækkunar og lækkunar

Fast­eigna­verð hefur hækkað hratt að und­an­förnu, eða um meira en 35 pró­sent á fimm árum. Mun það halda áfram að hækka jafn hratt?

Íslenska hag­kerfið er lík­lega þekkt­ast fyrir að reglu­legar koll­steypur. Eins og staða mála í dag þá virð­ast flesti hag­vísar benda í eina átt, og það er að gott veður sé í kort­unum efna­hags­mál­unum. Hag­vöxtur verður tæp­lega 5 pró­sent á þessu ári, atvinnu­leysi er um þrjú pró­sent og verð­bólga hefur sjaldan verið minni, eða 0,9 pró­sent, nokkuð undir 2,5 pró­sent mark­miði Seðla­bank­ans.

Sé litið til fast­eigna­mark­að­ar­ins sér­stak­lega, þá hefur margt athygl­is­vert gerst á honum frá því að fast­eigna­bólan sprakk með látum, í reynd um hálfu ári áður en banka­kerfið hrundi, dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008.

En hvernig er staðan núna? Hvað hefur breyst? Er verðið að fara hækka áfram eða mun það lækka?

Ef ein­blínum fyrst á atriði sem benda til þess að verðið muni hækka á næst­unni, og að fast­eigna­mark­að­ur­inn sé þannig á upp­leið, þá skulum við byrja á byrj­un­inni. Sjálfu hrun­inu, og hvernig stóra myndin hefur þró­ast til dags­ins í dag. Fast­eigna­mat hús­næðis á Íslandi er um 6.300 millj­arðar króna, og hækk­aði um meira en 400 millj­arða milli ára.

1. Eftir hrunið þá fraus fast­eigna­mark­að­ur­inn nán­ast alveg, miðað við stöðu mála í hefð­bundnu árferði. Við­skipti voru fá, og aðgangur að fjár­magni tak­mark­aður. Síðan hrundi kaup­máttur fólks niður, og þannig dró úr eft­ir­spurn. Verðið lækk­aði því hratt, og birt­ist það einkum með mik­illi verð­bólgu eftir geng­is­hrun. Frá árinu 2010 hefur staðan verið að batna og ekki óeðli­legt að fast­eigna­verð hækki eftir svo miklar hremm­ingar, nokkuð skarpt. Frá árinu 2010 hefur verðið hækkað um 35 pró­sent, sé mið tekið af stöðu mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og með­al­tals­hækk­un­inni. Einstök hverfi hafa þó hækkað meira, og önnur minna. Mest hefur hækk­unin verið mið­svæðis í Reykja­vík.

2. Flestar spár benda til áfram­hald­andi hækk­unar á fast­eigna­verði, og er það einkum rök­stutt með því að eft­ir­spurnin eftir eignum, ekki síst litlum og með­al­stórum, sé mun meiri en fram­boðið. Það er, að það vanti fleiri eignir á fast­eigna­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, til að mæta eft­ir­spurn­inni. Á meðan svo er þá muni verðið halda áfram að hækka. Til þess að mæta eft­ir­spurn á hverju ári á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þarf að byggja um 1.800 íbúðir, en eins og staða mála er nú er talið að byggja þurfi 2.500 til 3.000 íbúðir á ári, næstu fimm ár, til að koma jafn­vægi á mark­að­inn. Ástæðan er meðal ann­ars sú að lítið sem ekk­ert var byggt á fyrstu tveimur árunum eftir hrun, þar sem verkta­fyr­ir­tæki stóðu illa og bygg­ing­ar­kostn­aður var yfir mark­aðs­verði.

3. Annar þáttur sem ýtt hefur undir hækkun fast­eigna­verðs er mik­ill vöxtur í ferða­þjón­ustu og útleiga á íbúðum til erlendra ferða­manna. Samkvæmt Airbnb vefnum eru um 2.700 íbúðir í Reykja­vík til leigu fyrir ferða­menn. Sé horft yfir landið allt, má gera ráð fyrir að í það minnsta 500 til þús­und í við­bót sé til leigu, en fjöl­margar íbúðir á lands­byggð­inni eru til leigu fyrir ferða­menn til skemmri tíma. Þetta hefur leitt til þess að margar íbúðir hafa farið af mark­aði fyrir leigj­endur og kaup­endur, einkum og sér í lagi mið­svæðis í Reykja­vík. Þannig hefur fram­boðið minnkað, á meðan eft­ir­spurnin hefur auk­ist til muna. Ný lög­gjöf, sem heim­ilar útleigu á íbúðum í 90 daga á ári í skamm­tíma­leigu, á að geta unnið gegn þess­ari þróun

4. Fjár­hags­staða fólks hefur að með­al­tali batnað tölu­vert, sem leiðir svo til þess að fólk ræður við að borga hærra fast­eigna­verð, og stand­ast skil­yrði um lán­töku í bönkum. Seðla­banki Íslands telur fólk almennt ekki vera að spenna bog­ann of hátt, þegar kemur að fast­eigna­kaupum, þar sem sparn­aður hefur auk­ist og skuld­setn­ing heim­ila er ennþá ekki metin óhóf­leg. Kaup­máttur launa hefur auk­ist um ell­efu pró­sent á einu ári, atvinnu­leysi hefur hald­ist lágt og slag­kraftur í hag­kerf­inu hald­ist mik­ill, ekki síst vegna mik­illa áhrifa frá vexti í ferða­þjónstu.

5. Vextir eru nú að lækka. Meg­in­vextir voru lækk­aðir á dög­unum, í 5,25 pró­sent. Þeir eru þó enn víðs­fjarri verð­bólg­unni sem mælist 0,9 pró­sent. Sé mið tekið af stöð­unni á skulda­bréfa­mark­aði þá virð­ast fjár­festar reikna með því að verð­bólga hald­ist lág á næstu miss­erum. Fyrir vikið hefur vaxta­á­lag lækkað, og má búast við því að vextir á hús­næð­is­lánum lækki jafn­vel enn meira.

Svo eru það hin sjón­ar­miðin, sem ekki eru alltaf til vin­sælda fallin. Að jafn hraðar hækk­anir og hafa átt sér stað að und­an­förnu, muni ekki geta haldið áfram lengi í við­bót þar sem mark­aðs­verð sé nú komið vel fyrir bygg­ing­ar­kostnað. Um þetta var meðal ann­ars í athygl­is­verðri grein eftir Baldur Thorlacius í gær.

Hvaða atriði eru það helst sem geta leitt til þess að fast­eigna­verðið standi í stað eða fari að lækka á næstu miss­erum og árum?

6. Þróun í efna­hags­málum hefur verið Íslandi afar hag­felld að und­an­förnu, ekki síst vegna þess hvernig þróun hefur verið á alþjóða­mörk­uðum. Á sama tíma og samið varið um ríf­legar launa­hækk­anir hér á landi þá lækk­aði verð á olíu og ýmsum öðrum vörum. Innflutt verð­bólga, eins og hún er gjarnan kölluð lækk­aði því fyrir vikið. Að und­an­förnu hefur verð á olíu hækkað nokkuð, eða um ríf­lega tíu pró­sent á einum mán­uði. Farið úr um 40 Band­ríkja­dölum á Fari svo að olíu­verð fari að hækka, gætu verð­bólgu­horfur hér á landi versnað, með til­heyr­andi kaup­mátt­ar­skerð­ingu.

7. Þó gengi krón­unnar hafi styrkst mikið gagn­vart erlendum myntum að und­an­förnu, og þannig dregið úr verð­bólgu á Íslandi, þá er styrk­ingin ekki að öllu leyti góð fyrir hag­kerfið og þar með fast­eigna­mark­að­inn. Ef útflutn­ing­ur­inn veik­ist og ferða­þjón­ustan sömu­leiðis, þá gæti það haft víð­tæk áhrif hér á landi. Ekki er hægt að reikna með því end­laust að staðan verði Íslandi hag­felld, og dæmi eru um það í öðrum löndum ferða­þjón­usta gefi veru­lega eftir með til­heyr­andi erf­ið­leikum fyrir hag­kerfin.

Þó fast­eigna­mark­að­ur­inn sé ekki bein­tengdur þessum ytri þáttum í hag­kerf­inu, sem hér er lýst, þá er hann við­kvæmur fyrir ládeyðum í efna­hags­líf­inu, nú sem fyrr. Um leið og það fer að halla undan fæti – jafn­vel þó slík efna­hags­leg óveð­ur­ský sjá­ist ekki nú – þá má ekki gleyma því að það sem fer hratt upp, getur líka farið hratt niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár