Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu: Íbúðin var ekki sérútbúin fyrir kynferðisofbeldi

Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, yfir­lög­fræð­ingur á skrif­stofu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sagði það ekki rétt sem fram kom á for­síðu Frétta­blaðs­ins að íbúð í Hlíð­ar­hverf­inu hafi „verið sér­út­búin fyrir þessar athafnir.“ Þetta kom fram í Síð­deg­is­út­varp­inu á Rás 2 og er vitnað til ummæla Öldu í frétt á vef RÚV.

Hún sagði jafn­framt að ekki hefði verið tekin afstaða til þess hvort gerð hafi verið mis­tök þegar ekki var kraf­ist gæslu­varð­halds yfir tveimur mönnum sem hafa verið kærðir fyrir kyn­ferð­is­brot.

Hart hefur verið sótt að lög­reglu á sam­fé­lags­miðlum vegna for­síðu­fréttar Frétta­blaðs­ins í morgun „Íbúð í Hlíðunum var útbúin til nauð­gana“. Í frétt­inni kom fram að lög­regla hefði farið í hús­leit í íbúð í Hlíð­ar­hverf­inu og að hún hefði verið „búin tækjum til ofbeld­isiðk­unar,“ eins og sagði í frétt blaðs­ins.

Tveir menn hafa verið kærðir fyrir kyn­ferð­is­brot, sem sam­kvæmt kærum áttu sér stað 19. sept­em­ber og 14.októ­ber.

Mikil umræða hefur verið um þessi mál á sam­fé­lags­miðlum í dag, undir #almanna­hags­munir. Þá var mót­mælt við lög­reglu­stöð­ina í Reykja­vík, þar sem krafa fólks var skýr, um að tekið yrði fastar á kyn­ferð­is­brota­málum og gæslu­varð­halds kraf­ist í ofan­greindu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár