Rauðar tölur lækkunar hvert sem litið er

Miklar verð­lækk­anir hafa ein­kennt eigna­mark­aði um allan heim í dag. Olían heldur áfram að verð­falla, og féll í verði um rúm­lega fiimm pró­sent.

Heims­mark­aðs­verð á hrá­olíu hefur fallið um 6,13 pró­sent, þegar þetta er skrifað, en mark­aðir loka í Banda­ríkj­unum um klukkan 21:00 að íslenskum tíma. Þá hefur hluta­bréfa­verð á öllum helstu mörk­uðum heims­ins fallið mikið í dag, eða að með­al­tali á bil­inu tvö til þrjú pró­sent. Nasdaq-vísi­talan í Banda­ríkj­unum hefur fallið um þrjú pró­sent og Shanghai-vísi­talan í Kína um 3,55 pró­sent.

Hér á landi lækk­aði vísi­talan einnig mikið, annan dag­inn í röð. Lækkunin var 2,72 pró­sent en öll félögin sextán lækk­uðu. Mesta lækk­unin á ein­stöku félagi var hjá Icelandair, um 3,62 pró­sent í við­skiptum upp á 1.380 millj­ónir króna.

Titringur vegna versnandi stöðu

Í Wall Street Journal segir að helsta ástæða lækk­un­ar­innar á mörk­uðum í dag, og síð­ustu daga, megi rekja til þess að fjár­festar ótt­ist að kín­verska hag­kerfið sé að gefa veru­lega eftir, miðað við það sem áður var talið, og að heims­bú­skap­ur­inn gæti verið að leið inn í erf­ið­leika­tíma­bil og óstöð­ug­leika. Þar spilar meðal ann­ars inn í, að minnk­andi eft­ir­spurn á mörgum lyk­il­mörk­uðum heims­ins, hefur leitt til fjár­magns­flótta frá verð­bréfa­mörk­uðum með til­heyr­andi lækk­unum.

Miklar lækk­anir á hrá­vöru­mörk­uðum á und­an­förnum mán­uðum - þar sem lækkun á hrá­ol­íu­tunn­unni úr 115 Banda­ríkja­dölum niður fyrir 30 Banda­ríkja­dali á ein­ungis fimmtán mán­aða tíma­bili hefur vakið mesta athygli - hafa einnig haft mikil áhrif stöðu ein­stakra hag­kerfa. Þannig hafa hag­kerfi Rúss­lands, Brasilíu og Nígeríu farið illa út úr miklum verð­lækk­unum á mark­aði að und­an­förnu, og í til­felli Brasilíu er talið að staðan í land­inu eigi eftir að versna mikið á þessu ári, áður en hún batnar á nýjan leik.

Gull hækkar

En eins og oft þegar hluta­bréfa hrynja í verði, og fjár­festar byrja að selja bréf og færa fjár­magn í örugg­ara skjól, þá hækkar verð á gulli. Í dag hefur gull hækkað um tæp­lega tvö pró­sent, og nemur hækk­unin það sem af er ári rúm­lega fimm pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár