Mynd: Bára Huld Beck

Af hverju er himininn blár?

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata ræðir af hverju hann hefur lagt fram meira en 100 fyr­ir­spurnir á nýliðnu þingi, hvernig hann með þraut­seigju og ítrek­uðum spurn­ingum kom upp um mis­notkun á akst­urs­greiðslum til þing­manna.

Á vef Alþingis má finna 101 fyr­ir­spurn frá þing­mann­inum Birni Leví Gunn­ars­syni sem er langtum meira en frá nokkrum öðrum kollega hans á nýliðnum þing­vetri.

Þing­mað­ur­inn hefur stundum hlotið bágt fyrir þessa spurn­inga­gleði sína, ein­hverjir hafa kallað þær gagns­lausar fyr­ir­spurn­irnar og fjöldi þeirra kom­inn út í tóma þvælu, en Björn segir í sam­tali við Kjarnann að hann sé til í umræðu um inni­hald þeirra og til­gang hvenær sem er. Helst var hann til dæmis gagn­rýndur fyrir að spyrja um nafn höf­uð­borgar Íslands og minna spurn­ingar hans svo­lítið á spurn­ingar hins átta ára trít­ils Ara, hvers spurn­ingum full­orðna fólkið átti svo erfitt með að svara.

Á nýliðnum þing­vetri má segja að allt hafi farið í bál og brand þegar Björn fékk loks skýr­ari svör en áður, eftir margar til­raunir, við fyr­ir­spurnum sínum við akst­urs­kostnað þing­manna. Í kjöl­farið má segja að orðið hafi bylt­ing á upp­lýs­inga­gjöf þings­ins á hvers kyns greiðslum til þing­manna og þeim reglum sem um þær gilda og sér ekki fyrir end­ann á því.

Kjarninn tók Björn tali um hvað sé málið með allar þessar fyr­ir­spurnir, hvaða til­gangi þær þjóna og hvað það er sem drífur hann áfram í störfum hans á þing­inu.

Björn byrjar á því að taka það fram að þær séu nú ekki alveg svona margar fyr­ir­spurn­irnar, þó hann skammist sín alls ekki fyrir að vera þing­manna dug­leg­astur að spyrja. Og það er að vissu leyti rétt. Sumar fyr­ir­spurn­irnar eru hinar sömu, en beint til hvers og eins ráð­herra og verða þannig langtum fleiri. Ein­hverjar hafa verið slitnar í sundur eða dregnar til baka eftir atvikum, en það er óum­deilt að fyr­ir­spurnir Björns Leví eru mjög margar.

„Það kom mér eig­in­lega á óvart hversu margar fyr­ir­spurnir þetta urðu. Ég var bara að vinna þetta jafn­óðum og eftir því sem til­efni komu upp. Ef það kom til­efni til fyr­ir­spurnar, eitt­hvað sem vant­aði þá bara bjó ég til fyr­ir­spurn. Svo bara söfn­uð­ust þær upp.“

Þú hefur verið gagn­rýndur fyrir þetta magn fyr­ir­spurna. Hvernig svararðu þeirri gagn­rýni?

„Ég er til í umræðu um inni­hald fyr­ir­spurn­anna hvenær sem er. Það hefur kannski helst verið bent á fyr­ir­spurn um hvað höf­uð­borgin heitir, sem var fyr­ir­spurn sem var skipt upp í tvennt og missti þannig sam­hengið. En það kom út úr þeirri fyr­ir­spurn að fæð­ing­ar­staður barna er rangt skráður hjá Þjóðskrá. Þannig að mér finnst það ekk­ert rosa­lega gagns­laus fyr­ir­spurn að fá það fram. Það er tengt ákveðnum vanda­málum hjá Þjóðskrá varð­andi hvernig sveit­ar­fé­lög eru skráð, fyr­ir­tæki úti um allt þurfa að fara í sér­staka for­ritun til þess að bæta við og gera skrán­ing­una rétta, í stað þess að fá upp­lýs­ing­arnar réttar frá Þjóðskrá. En eins og ég segi, ég er alltaf til í umræðu um efnið, og ef að það er eitt­hvað sem er gangs­laust, þá bara tek ég það á mig. Ég fékk hug­myndir um fullt af fleiri fyr­ir­spurnum sem að gerð­ust síðan ekki, bara af því að það var hægt að fá upp­lýs­ingar um það í gegnum aðrar leiðir, í gegnum nefnd­ar­störfin eða í gegnum upp­lýs­inga­svið Alþingis, þannig að það er ekki allt sem að ratar í þetta form­lega ferli.“

Björn segir að ef hann telur þörf fyrir almenn­ing að fá ein­hverjar upp­lýs­ingar þá leggi hann fram form­lega fyr­ir­spurn.

„Þegar maður gerir þing­lega fyr­ir­spurn sem að fer í þetta ferli, til ráð­herra og er birt hjá þing­inu, þá eru það upp­lýs­ingar sem ég tel að almenn­ingur ætti að vita. Þegar ég bið um eitt­hvað í gegnum nefndir eða upp­lýs­inga­svið þá er það til frek­ari úrvinnslu fyrir mig eða þing­flokk­inn sem að getur endað í frum­varpi eða fyr­ir­spurn til ráð­herra sem síðan endar í svari og upp­lýs­ingum fyrir almenn­ing. Það er þannig sem maður reynir alla­vega að hugsa ferlið. En maður veit nátt­úru­lega oft ekki hvaða svör maður fær fyrr en maður spyr og oft eru svörin ekk­ert endi­lega eitt­hvað sem er gagn­legt fyrir almenn­ing. Alvöru svörin við spurn­ing­unum gætu hins vegar verið það, nákvæm­ari svör. Maður fær rosa­lega oft svona „deflect“ eða „ekki svar“. “

Aðspurður um hvort hann velti fyrir sér tím­anum sem taki ráðu­neytin að svara fyr­ir­spurnum hans eða kostn­aði við að veita þessi svör segir Björn að það komi að sjálf­sögðu til álita en sé ekki aðal­at­riðið.

„Þetta fer bara inn í ferlið og hags­muna­matið um það hvort þetta séu upp­lýs­ingar sem gagn­ast almenn­ingi. Það eru ákveðin verð­mæti í því. Ég get fabulerað um það að til dæmis spurn­ingar um akst­urs­kostn­að­inn geri það að verkum að það kemur beinn sparn­aður út úr því. Ekki bara þann tíma sem ég er á þingi heldur næstu hund­rað, tvö hund­ruð árin eða hvernig sem það verður. Bara það á eftir að borga upp allan tíma og kostnað við allar fyr­ir­spurnir frá mér. Og það er lög­bundið hlut­verk ráðu­neyta að svara og veita upp­lýs­ingar.“

Að með­al­tali gerir þessi 101 fyr­ir­spurn frá Birni 1,3 fyr­ir­spurnir á hvert ráðu­neyti í mán­uði. Það er ekki sér­lega mikið, þó það megi gefa sér að sum ráðu­neytin fái eðli máls­ins sam­kvæmt fleiri spurn­ingar en önnur og þing­menn sem geta lagt fram fyr­ir­spurnir eru tæp­lega sex­tíu ef ráð­herrar telj­ast ekki með. Björn spyr, í ljósi þessa lög­bundna hlut­verks, hvað sé eðli­legt álag við svörun fyr­ir­spurna á hvert ráðu­neyti. Hver sé eðli­legur fjöldi á mán­uði.

„Hvað væri eðli­legur fjöldi á mán­uði? 10 fyr­ir­spurnir? Mér myndi ekki finn­ast það neitt rosa­lega mikið fyrir ráðu­neyti að glíma við. Frekar lítið eig­in­lega. Þau eru nátt­úru­lega að gera ýmis­legt annað, en mér fynd­ist í raun­inni óeðli­legt að kvarta yfir því ef þær eru 10 eða færri.“

Ég get fabulerað um það að til dæmis spurn­ingar um akst­urs­kostn­að­inn geri það að verkum að það kemur beinn sparn­aður út úr því. Ekki bara þann tíma sem ég er á þingi heldur næstu hund­rað, tvö hund­ruð árin eða hvernig sem það verður. Bara það á eftir að borga upp allan tíma og kostnað við allar fyr­ir­spurnir frá mér.

Talið bein­ist að akst­urs­kostn­að­inum og hvers vegna hann ákvað að byrja að spyrja út í þessar greiðslur og hvers vegna hann þrjóskað­ist við þegar hann fær ekki svörin sem hann von­að­ist eftir.

„Þetta byrjar held ég 2009 - 2013 kjör­tíma­bilið, þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagð­ist afþakka greiðslur fyrir hús­næð­is­kostnað fyrir að vera lands­byggð­ar­þing­maður, þegar hann flutti lög­heim­ilið sitt norður í land. Ég hugs­aði þá bara, heyrðu það er frá­bært. En af hverju þarf ég að treysta honum hvað það varðar? Af hverju sé ég það ekki bara ein­hvers staðar í starfs­kostn­að­ar­tölum? Þannig að þegar ég kem síðan á þing, og hafði þá verið svo­lítið að klóra mér í koll­inum yfir þessu, þá kemst ég að því að ég get spurt um þetta. Ég læri hvernig þetta virkar aðeins betur, ég get spurt um þing­menn, sem að maður hafði ekki séð ger­ast áður. Það hafði eng­inn þing­maður spurt um þetta á þing­inu, þrátt fyrir að fjöl­miðlar hafi spurt um þetta bara í þónokkuð mörg ár, þá þurfti ekki nema einn þing­mann til að spyrja um þetta.“

Björn seg­ist ein­fald­lega ekki hafa viljað treysta Sigmundi, og stjórn­mála­mönnum almennt fyrir svona lög­uðu, heldur vildi hann að þetta væru ein­fald­lega bara aðgengi­legar upp­lýs­ingar.

„Þetta sem sagt byrj­aði þarna. Ég vildi fá að vita þetta með Sigmund, og þá honum til hróss, ef að hann raun­veru­lega var að afþakka þessar greiðslur. Í því ferli að fá svör við því þá kom þessi risa stóra tala bara upp úr dúrnum um heild­arakst­urs­kostnað sam­kvæmt akst­urs­dag­bók. Þá fór ég að fá ábend­ingar frá fólki sem taldi sig vita af hverju þetta var svona hár kostn­aður. Að það væru ýmsir þing­menn, þá sér­stak­lega Ásmundur Frið­riks­son, að koma við í kaffi hér og þar óum­beðnir, það er mæta bara í kaffi og skrifa það á starfs­kostnað. Að mæta í kaffi og kleinur að spjalla um heima og geima. Ekki sem sagt boðuð koma og ekki umbeðin koma. Ekki form­legir fundir eins og kveðið er á um í regl­unum um þetta.“

Við tók nokkuð flókið ferli með óskýrum svörum. Björn gat ekki fengið upp­lýs­ingar um akst­urs­greiðsl­urnar eftir þing­mönnum vegna per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða. Þá bað hann um það skipt niður eftir kjör­dæmum. Og bað bara um upp­hæðir, ekki nöfn þing­mann­anna. Að lokum fékk hann svar frá for­seta þings­ins með upp­hæðum þeirra 10 þing­manna sem þiggja hæstu akst­ur­send­ur­greiðsl­urnar frá þing­inu.

„Þá kemur í ljós hver röð­unin er og maður fór að fylla aðeins inn í eyð­urnar og ein­hverjir sögðu „þetta er ég“ og svo fram­vegis. Smám saman fyllt­ist upp í þennan lista. Og í kjöl­farið er ákveðið að bara birta þennan starfs­kostnað yfir­leitt á vef­síðu þings­ins. Bara í heild­ina en ekki flokkað niður á mán­uði svo það þarf að vinna aðeins meira í því.“

Björn bætir því við að hann hafi síðan loks­ins fengið svar við upp­haf­legu vanga­veltum sínum hvað þetta varðar.

„Við fengum að lokum að sjá greiðsl­urnar flokk­aðar niður á hús­næð­is­kostnað og þá sá maður að Sig­mundur Davíð einmitt afþakk­aði ekki hús­næð­is­greiðsl­urnar. Þannig að upp­haf­lega pæl­ingin með þessu öllu skil­aði sér að lokum.“

Og þessu ferða­lagi hans um greiðslur til þing­manna er ekki lokið.

„Maður sá líka dag­pen­inga og greiðslur til ráð­herra, spurn­ingar um þær spruttu upp úr þessu líka af því að regl­urnar voru eins og þær voru. Maður sér að for­seti þings­ins kemur stundum að morgni til á þing­bif­reið, það er spurn­ing sem hann er ekki búinn að svara til dæmis, hvernig þau eru hlunn­indi reiknuð. Og það hefur líka komið út úr þess­ari hlunn­inda spurn­ingu, fyrir þá sem að eru með bíla, hvernig eru reiknuð hlunn­indi fyrir þá. Það er alveg vitað fólk snatt­ast aðeins á bíl­unum, í búð­ina á leið­inni heim og þann akstur, þá kíló­metra á að skrá en það er ekki gert.“

Af hverju finnst þér svona mik­il­vægt að þetta liggi allt fyrir?

„Við erum að díla við mjög mikið van­traust á stjórn­mál. Ein af lausn­unum við því er að sýna að við höfum ekk­ert að fela. Það mynd­ast svo margar gróu­sögur þegar það er svona mikið van­traust á stjórn­málin. Það sem maður gerir þegar maður sér þá gróu­sögu er að fá gögnin til að sýna fram á það að annað hvort er gróusagan rétt og þá býr maður í raun­inni til ákveðið traust með því að við­ur­kenna það sem er í gangi og þá kannski eftir atvikum ein­hver mis­tök eða þá að maður stað­festir að þetta er gróu­saga og sýnir að fólk er í alvöru að starfa þarna af heil­indum. Það er svona grunn­hug­myndin á bak við þessar fyr­ir­spurnir hjá mér.“

Björn segir annar til­gang sinn með öllum spurn­ingum sínum vera að sýna fram á fárán­leika þess að mikið af þessum upp­lýs­ingum liggi ekki fyrir.

„Með því að spyrja um þetta þá er ég að benda á að þetta er eitt­hvað sem ætti að vera aðgengi­legt. Mikið af þessum upp­lýs­ingum, frá mínum bæj­ar­dyrum séð, með tölv­un­ar­fræði­bak­grunn, eru ein­faldar gagna­grunns­upp­flett­ingar. En það bendir allt til þess, miðað við hversu mikið er kvartað yfir því hversu mikil vinna það er að safna þessum upp­lýs­ingum saman, að upp­lýs­inga­skrán­ingin sé rosa­lega léleg. Með því að spyrja til dæmis um leigu­kostnað rík­is­stofn­ana, það eru upp­lýs­ingar sem ég myndi vilja að væru aðgengi­legar, almennt séð væri það mjög hjálp­legt fyrir hið opin­bera og fjár­laga­nefnd og fleiri að geta fylgst með jafn­óðum. Þá myndi maður von­ast til þess að þegar verið er að safna saman upp­lýs­ing­unum að þá væri í leið­inni nýtt tæki­færið til þess að búa til kerfi til þess að nálg­ast þessar upp­lýs­ingar ef þess þyrfti. Ég er viss um að það er ekki gert en kannski, með því að koma aftur og aftur, inn á þessa aðferð­ar­færði, að gera upp­lýs­inga­skrán­ingunna gagna­grunns- eða gagna­mið­aðri, þá er í fyrsta lagi hægt að svara spurn­ingum fljótt og fyrir lít­inn pen­ing og í öðru lagi bara að gefa út þessi gögn án þess að hafa nokkurn milli­lið í því.“

Aðspurður um við­horf stjórn­valda, bæði stjórn­sýsl­unnar og stjórn­mál­anna, til gagn­sæis og betri aðgang að gögnum, segir Björn að það sé mjög mis­mun­andi.

„Ég hef unnið innan stjórn­sýsl­unnar og hún hreyf­ist ekk­ert rosa­lega hratt. Það er ekk­ert endi­lega mik­ill tími fyrir fólk til þess að pæla í þessu og læra nýja hluti hvað þetta varðar. Tölvu­læsið er ekk­ert gríð­ar­legt og það eru allt öðru­vísi starfsvenjur. Við erum orðin dálítið eft­irá hvað þetta varðar. En fólk skilur þetta samt mjög vel, þetta er eitt­hvað sem þau vilja fara í átt­ina að. En ég held að skiln­ing­ur­inn á því hvernig og hversu mikið það kostar til að byrja með sé fólki dálítið ofviða. Og síðan er það hin hliðin á pen­ingnum, þetta er líka nýtt sem ákveðið stjórn­tæki. Að halda upp­lýs­ingum frá fólki. Það er ekk­ert langt síðan gagna­grunnar Seðla­bank­ans voru búnir til. Áður fyrr var þetta bara ofan í skúffum inni á hverri skrif­stofu, og hver og einn sér­fræð­ingur átti sín gögn. Það þurfti bók­staf­lega að brjót­ast inn á skrif­stof­urnar til að ná í gögnin ef það þurfti að kom­ast í þau í sum­ar­leyfum eða eitt­hvað þvíum­líkt. Nú erum við komin með gagna­grunn­ana en þeir eru lok­aðir. Næsta tog­streita er að stofn­anir sleppi hönd­unum af þessum grunn­gögnum. Alveg eins og það var tog­streita að toga þau fyrst frá sér­fræð­ing­unum er það tog­streita núna að toga þau frá stofn­un­unum. Samt sjá allir hversu miklu betri vinnan er eftir að gögnin náð­ust út úr skrif­stof­unum. Samt er þessi tog­streita að vilja ekki missa þau síðan frá stofn­un­inni.“

Björn segir póli­tísku and­stöð­una sýni­legri, en líka lúmska.

„Við höfum til dæmis séð fjár­mála­ráð­herra koma upp í pontu og gagn­rýna fjölda fyr­ir­spurna. En opin­ber­lega sér maður enga tog­streitu hvað þetta varðar. Það eru til dæmis allir og amma þeirra farnir að tala um gagn­sæi, í öllum flokkum. Sá slagur er í raun­inni dálítið unn­inn en það að fram­kvæma gagn­sæið er dálítið erf­ið­ara. Þó að við­horfið sé orðið það að gagn­sæi sé nauð­syn­legt, þá er það nátt­úru­lega hvað og hvernig sem er eftir, sem er ekk­ert rosa­lega auð­velt úrlausnar. Það er svo rosa­lega auð­velt að segj­ast vilja meira gang­sæi, það er miklu erf­ið­ara að fram­kvæma það. Sér­stak­lega þegar að starfs­þekk­ingin innan stjórn­kerf­is­ins er ekki mikið með þessa þekk­ingu sem til þarf.“

Ég var búinn að kjósa nán­ast alla flokka og allir höfðu þeir valdið von­brigðum.

Hvernig kemur það til að þessi tölv­un­ar­fræð­ingur ákveður að helga sig stjórn­mál­unum?

„Ég hafði ekki fundið mig í neinum stjórn­mála­flokki fyrir 2013. Ég var búinn að kjósa nán­ast alla flokka og allir höfðu þeir valdið von­brigðum. Ég var sem sagt í fram­halds­námi í Brandeis Uni­versity og var að kenna, var aðstoð­ar­kenn­ari í nám­skeiði sem hét „Internet and society“ eða inter­netið og sam­fé­lagið. Þetta var svona hönn­un­ar­nám­skeið eða kannski meira not­enda­hönn­un­ar­nám­skeið. Aðferð­ar­fræði um það hvernig maður leysir not­enda­vanda­mál. Maður sér þegar maður fer í gegnum þau ferli hversu lýð­ræð­is­leg þau eru. Maður getur notað þessar sömu aðferðir til þess að gera lýð­ræðið betra. Nám­skeiðið sýndi manni mikið hvernig sam­fé­lagið hefur breyst með til­komu inter­nets­ins. Hvaða mögu­leikar eru til staðar til lýð­ræð­isum­bóta útaf þessu sam­skipta­tæki. Maður líkir því við þegar prent­vélin kom. Magn upp­lýs­inga sem varð til, dreif­ing upp­lýs­inga og hver ný sam­skipta­tækni síðan þá hefur alltaf breytt sam­fé­lag­inu, alltaf til hins betra þó að breyt­ingin sé oft erfið. Og maður var ein­hvern veg­inn til­bú­inn til þess að nota þessa hug­mynd í lýð­ræð­inu í raun­inni. Ég hafði svo sem alltaf áhuga á því, af því mér fannst þetta svo aug­ljóst. Svona kerf­is­grein­ingar hlut­inn í mér alveg upp­veðr­ast að fá að koma svona í gang.“

Síðan kemur að kosn­ing­unum árið 2013.

„Þá popp­aði upp Píra­ta­flokk­ur­inn. Ég kann­að­ist við Smára og Helga frá eldri tíð og vissi því alveg hvers konar alvara var þar að baki. Þetta var ekk­ert upp á punt. Þannig að ég bauðst til að vera ein­hvers staðar á lista, ég var nátt­úru­lega í Banda­ríkj­unum. Fáir höfðu hitt mig aðrir en þeir Helgi og Smári. Svo bara enda ég í öðru sæti á eftir Birgittu í Suð­vestur. Sem var mjög fyndið, fæstir þekktu mig hvað þá að fólk hefði yfir höfuð hitt mig. Ég bara datt inn í þetta, tók þess­ari nið­ur­stöðu sem vís­bend­ingu. Gerði mikið af því í kosn­ing­unum 2013, þar sem ég gat ekki verið með í safna und­ir­skriftum, þar sem ég var ekki á staðnum, að svara öllum spurn­ingum frá fjöl­miðlum. Dældi því út. Fólk tók því greini­lega vel. Í fram­hald­inu ákváðum við að fara heim, konan mín kláraði sitt dokt­ors­nám og son­ur­inn var að byrja í grunn­skóla. Og það var búið að grípa mig að ná að koma þess­ari hug­mynda­fræði á fram­færi. Svona end­aði ég í þess­ari gerð­veiki.“

Hver eru mark­mið þessa spurn­ingaglaða þing­manns í starfi sínu?

„Að kynna gagn­sæið og lýð­ræð­is­mögu­leik­ana betur en líka að ein­hvern veg­inn að sýna hvernig stjórn­mál geta verið. Af því að mér hefur alltaf fund­ist eins og fólk segi eitt og geri síðan annað þegar það er komið á þing. Ég skil ekki af hverju og ég skil það ekki ennþá. En ég er far­inn að fatta betur kerfið á bak við sem að leiðir til þess. Fólk er þarna af heil­indum, lang­flestir, og í raun­inni allir, að minnsta kosti af sínum eigin heil­indum. En það kemur sér í aðstæður þar sem að þeirra sann­fær­ingar fær ekki að verða ofan á og það er flokksag­inn sem að verður ofan á. Kjarna­vanda­málið í íslenskum stjórn­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár