Það hefur ekki verið verslað meira með hlutabréf frá hrunárinu 2008

Fjöldi við­skipta og heild­ar­velta með hluta­bréf í síð­asta mán­uði var sú mesta frá árinu 2008. Virði Íslands­banka er búið að aukast um 50 millj­arða króna á rúmri viku.

Viðskipti hófust með bréf Íslandsbanka í síðustu viku. Þau leika lykilhlutverk í þeirri aukningu á viðskiptum sem átt hefur sér stað.
Við­skipti hófust með bréf Íslands­banka í síð­ustu viku. Þau leika lyk­il­hlut­verk í þeirri aukn­ingu á við­skiptum sem átt hefur sér stað. Mynd: Nasdaq Iceland

Heild­ar­velta með hluta­bréf í júní­mán­uði var 94,5 millj­arðar króna. Það er 23,4 pró­sent meiri velta en var í maí­mán­uði og 106 pró­sent aukn­ing frá júní 2020. Heild­ar­velta með hluta­bréf í nýliðnum júní­mán­uði er sú mesta sem verið hefur hér­lendis frá árinu 2008.

Þetta kemur fram í við­skipta­yf­ir­liti frá Nasdaq Iceland, sem rekur Kauphöll Íslands.

Þessi mikla aukn­ing verður að mestu rakin til skrán­ingar Íslands­banka á markað, en við­skipti með bréf í bank­anum hófust 22. júní. Þrátt fyrir að ná ein­ungis sjö við­skipta­dögum í síð­asta mán­uði voru lang­sam­lega flest við­skipti með bréf í Íslands­banka í júní, eða 3.543 tals­ins, eða um þriðj­ungur allra við­skipta sem voru með hluta­bréf í síð­asta mán­uði, sem var líka sá mesti frá árinu 2008. Milli ára fjölg­aði fjölda við­skipta um 189 pró­sent.

[adspot]Í lok síð­asta mán­aðar voru alls 24 félög skráð á Aðal­markað og First North mark­að­inn. Þeim fjölgar um tvö í þessum mán­uði þegar við­skipti hefj­ast á First North með bréf í Play og Solid Clouds.

Virði Íslandsbanka hefur aukist um 50 milljarða

Heild­ar­mark­aðsvirði allra skráðra félaga á báðum mörk­uðum Kaup­hallar Íslands var 2.169 millj­arðar króna um síð­ustu mán­aða­mót og jókst um 257 millj­arða króna milli mán­aða. Þar munar vit­an­lega mest um Íslands­banka, en mark­aðsvirði hans nú er um 208 millj­arðar króna. Það hefur auk­ist um 50 millj­arða króna á rúmri viku, frá því að við­skipti hófust með bréfin og þeir sem keyptu í hluta­fjár­út­boði bank­ans, þar sem íslenska ríkið seldi 35 pró­sent hlut, hafa ávaxtað eign sína um 32 pró­sent á örfáum dögum. Ríkið fékk alls 55,3 millj­arða króna fyrir hlut­inn í Íslands­banka, og greiddi rúm­lega tvo millj­arða króna af þeirri upp­hæð í þókn­anir til þeirra sem sáu um söl­una. Því hefur virði bréfa í Íslands­banka hækkað um nán­ast sömu upp­hæð og ríkið fékk fyrir 35 pró­sent hlut­inn í síð­asta mán­uði.

Fjöldi eigenda úr átta þúsund í 32 þúsund

Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar, sem sam­anstendur af bréfum þeirra tíu félaga sem eru með mestan selj­an­leika, hefur hækkað um 55,28 pró­sent á einu ári og um 26 pró­sent frá ára­mótum.

[links]Kjarninn greindi frá því í vik­unni að um það bil 32 þús­und ein­stak­lingar áttu skráð hluta­bréf á Nasdaq Iceland fyrir viku síðan, eða um níu pró­sent af heildar­í­búa­fjölda Íslands. Í lok árs 2019 áttu ein­ungis átta þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf og hafði því þátt­taka almenn­ings á hluta­bréfa­mark­aði fjór­fald­ast á innan við tveimur árum.

Hins vegar er hluta­bréfa­eign almenn­ings enn langt frá því að vera svipuð og hún var á árunum fyrir hrun. Vel yfir 50 þús­und ein­stak­lingar áttu hluta­bréf á árunum 2006 og 2007, en sá fjöldi minnk­aði niður í 40 þús­und árið 2008. Á árunum 2010-2019 var svo fjöldi ein­stak­linga sem áttu hluta­bréf undir tíu þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nasdaq

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár