Viðreisn segist ætla nýta stöðu sína vel

Oddviti Við­reisnar í borg­inni segir flokk­inn í lyk­il­stöðu sem þau ætli að nýta vel og ætli hvergi að hvika frá þeirra helstu stefnu­málum.

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir odd­viti Við­reisnar segir flokk­inn í lyk­il­stöðu í Reykja­vík sem mik­il­vægt sé að spila vel úr. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir hún að þau ætli að nýta stöðu sína vel og hvergi hvika frá þeira helstu stefnu­málum.

[links]„Við munum skoða málin og fara okkur að engu óðs­lega því slíkt væri ein­fald­lega ekki í anda okkar sem boðum heið­ar­leika, gagn­sæi og raun­hæfar lausnir,“ segir Þórdís Lóa.

Byrjað er að máta saman hvernig meiri­hluta­sam­starf Við­reisnar og þeirra þriggja flokka sem voru í frá­far­andi meiri­hluta í Reykja­vík gæti litið út. Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að óform­legir fundir hafi átt sér stað milli lyk­il­manna í Sam­fylk­ingu og Við­reisn­ar.

Þá hefur verið greint frá því að Þórdís hafi einnig hitt Eyþór Arnalds odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær, en flokk­arnir í frá­far­andi meiri­hluta, Sam­fylk­ing, Vinstri græn og Píratar, hafa allir gefið út að þeir vilji ekki starfa með Sjálf­stæð­is­flokknum. Oddvitar þess­ara flokka hittst á sunnu­dag til að leggja línur fyrir kom­andi við­ræður.

Á­hrifa­fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum hefur einnig verið dug­legt að hafa sam­band við fólk innan Við­reisnar til að reyna að ýta athygli flokks­ins frekar að sér. Í þeim óform­legu sam­tölum hefur verið lögð áhersla á að finna lausnir á mála­flokkum þar sem stefnur flokk­anna eru nán­ast á önd­verðu meiði svo hægt sé að ná saman um nýjan meiri­hluta.

Opin­berar yfir­lýs­ingar Við­reisnar eru þær að flokk­ur­inn sé opinn fyrir því að vinna með öll­um. Mál­efna­lega er þó ljóst að mun ein­fald­ara verður fyrir flokk­inn að fara í sam­starf með frá­far­andi meiri­hluta en Sjálf­stæð­is­flokkn­um, Mið­flokki og Flokki fólks­ins sem töl­uðu t.d. gegn borg­arl­ínu og yfir­stand­andi aðferð­ar­fræði við þétt­ingu byggðar í kosn­ing­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár