Arion banki tapaði 2,1 milljarði króna á fyrsta ársfjórðungi

Lækkun á gagn­virði hluta­bréfa, virð­is­rýrnun lána og nei­kvæðar mats­breyt­ingar á virði dótt­ur­fé­laga skil­uðu því að arð­semi eigin fjár Arion banka var nei­kvæð um 4,6 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Afkoma Arion banka var nei­kvæð um tæp­lega 2,2 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020. Á sama tíma í fyrra skil­aði bank­inn rúm­lega eins millj­arðs króna hagn­aði. Arðsemi eigin fjár var nei­kvæð um 4,6 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi í ár en hafði verið jákvæð um 2,1 pró­sent á sama tíma í fyrra.

Þetta kemur fram í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri Arion banka sem birt var í dag.

Þar segir að einkum þrír þættir hafi orsakað nei­kvæða afkomu á árs­fjórð­ungnum; hreinar fjár­muna­tekjur voru nei­kvæðar um tvo millj­arða króna, einkum vegna gang­virð­is­breyt­inga hluta­bréfa vegna óhag­stæðrar þró­unar á mörk­uðum, hrein virð­is­breyt­ing var nei­kvæð um tæp­lega 2,9 millj­arða króna, aðal­lega vegna svart­sýnni for­sendna í lík­önum bank­ans, einkum ef horft er til væntrar þró­unar atvinnu­leysis og til­færslu við­skipta­vina í ferða­manna­tengdri starf­semi í þrep 2, og aflögð starf­semi, sem var nei­kvæð um 889 millj­ónir króna vegna tap­rekstrar Valitor og mats­breyt­inga í Sól­bjargi og Stakks­bergi, en öll dótt­ur­fé­lögin eru flokkuð sem eignir til sölu.

Heild­ar­eignir bank­ans námu 1.188 millj­örðum króna í lok mars 2020, sam­an­borið við 1.082 millj­arða króna í árs­lok 2019. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að lausafé bank­ans hafi auk­ist þar sem ekki varð af fyr­ir­hug­aðri tíu millj­arða króna arð­greiðslu, bank­inn gaf út skulda­bréf undir við­bótar eig­in­fjár­þætt í febr­úar og inn­lán juk­ust. Lán til við­skipta­vina hækk­uðu lít­il­lega frá ára­mótum, aðal­lega hús­næð­is­lán, og inn­lán juk­ust um 9,4 pró­sent frá ára­mótum. Heildar eigið fé í lok mars nam 184 millj­örðum króna, sam­an­borið við 190 millj­arða króna í árs­lok 2019 en lækk­unin er einkum til­komin vegna áfram­hald­andi kaupa á eigin bréfum bank­ans á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020.

[adspot]Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 27,5 pró­sent í lok mars 2020 en var 24,0 pró­sent í árs­lok 2019.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir afkom­una markast mjög af COVID-19 heims­far­aldr­inum. „Afkoman á fjórð­ungnum er nei­kvæð um rúm­lega tvo millj­arða króna einkum vegna þátta sem tengj­ast COVID-19 svo sem þró­unar verð­bréfa­mark­aða og efna­hags­lífs­ins almennt. Mark­aðsvirði hluta­bréfa­eignar bank­ans lækk­aði um rúma tvo millj­arða króna, nið­ur­færslur lána námu um þremur millj­örðum, eða um 0,38 pró­sent af lána­safni bank­ans, og nei­kvæð áhrif félaga til sölu námu um einum millj­arði króna. Nið­ur­færslur lána eru að mestu til­komnar vegna vænt­inga um erf­ið­leika í efna­hags­líf­inu og þar með auknum líkum á van­skilum. Lánasafn bank­ans er sem fyrr vel dreift á milli lána til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja, en um 91 pró­sent af útlánum bank­ans eru tryggð með veðum, þar af 70 pró­sent með veðum í fast­eignum. Kjarna­starf­semi bank­ans þró­ast með nokkuð jákvæðum hætti á árs­fjórð­ungnum borið saman við fyrsta árs­fjórð­ung 2019 þrátt fyrir krefj­andi aðstæður. Til að mynda eykst vaxta­munur bank­ans, tekjur af kjarna­starf­semi aukast um 9 pró­sent og rekstr­ar­kostn­aður dregst saman um 10 pró­sent. Áhersla á grunn­stoðir í rekstri bank­ans heldur áfram og fjár­hags­leg mark­mið hafa ekki breyst þó mögu­lega sé lengra í að þau náist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár