The Guardian hefur uppfært loftslagshugtök sín

Breski mið­il­inn The Guardian hefur upp­fært hug­tökin sem mið­il­inn notar í umfjöllun sinni um lofts­lags­breyt­ingar. Miðilinn ætlar héðan í frá að nota frekar orð á borð við lofts­lags­neyð og hitun jarðar.

Fréttamiðilinn The Guardian hefur ákveðið að byrja að nota hugtök sem lýsa betur þeim loftslagsbreytingum sem eiga sér stað á jörðinni í umfjöllun sinni. Í stað loftslagsbreytinga mun miðilinn nota orðið loftslagsneyð, loftslagshættuástand eða loftslagsniðurbrot. Enn fremur eru blaðamenn hvattir til þess að tala um hitun jarðar í stað hlýnun jarðar.

Framkvæmdastjóri SÞ og Greta Thunberg nota loftslagsneyð

Katharine Viner, aðalritstjóri The Guardian, segir að miðilinn vilji tryggja að umfjöllun þeirra sé vísindalega nákvæm á sama tíma og miðlað sé skýrt til lesenda upplýsingum um þetta mikilvæga málefni. „Hugtakið loftslagsbreytingar hljómar til að mynda frekar milt og hlutlaust á sama tíma og vísindamenn tala um þetta sem stórslys fyrir mannkynið,“ segir Katharine.

Katharine bendir jafnframt á að vísindamenn og stofnanir frá Sameinuðu þjóðunum sem og breska veður­stof­an séu nú þegar búin að breyta orðaforða sínum, og byrjuð að nota áhrifaríkari orð til að lýsa þeirri vá sem vist­kerfi jarðar standa nú frammi fyr­ir.

Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er þar á meðal en hann notaði orðið loftslagsneyð opinberlega í stað loftslagsbreytinga í september síðastliðnum. Auk hans hefur sænska baráttukonan og aðgerðasinninn Greta Thunberg, sem tilnefnd hefur verið til Friðarverðlauna Nóbels, kallað eftir því að loftslagsbreytingar séu kallaðar það sem þær eru í raun og veru, hvort sem það sé loftslagsneyð, hrun vistkerfisins, vistfræðileg neyð eða loftslagskreppa. [adspot]

Önnur hugtök hafa einnig verið uppfærð hjá miðlinum. Nú verður talað um náttúrulíf í stað líffræðilegs fjölbreytileika og fiskfjölda fremur en fiskstofna. Þá verður ekki lengur talað um að einstaklingar dragi loftslagsbreytingar í efa heldur að þeir afneiti þeim.

Lesturinn aukist gríðarlega

[links]The Guardian skil­aði rekstr­ar­hagn­aði fyrir fjár­hags­árið 2018 til 2019 upp á 800.000 pund eða 127,6 millj­ónir íslenskra króna, sam­an­borið við 57 millj­óna punda tap síð­ustu þrjú árin þar á und­an. Þetta er í fyrsta skipti í nokkurn tíma sem mið­ill­inn nær að vera hinum megin við núllið en ástæðan fyrir breyttri fjár­hags­stöðu er met­að­sókn í vef­inn, minni kostn­aður og aukin fjár­fram­lög frá les­end­unum sjálf­um.

Þá hefur lesturinn á miðlinum auk­ist til muna síð­ustu þrjú árin, úr 790 millj­ónum flettingum á mán­uði í jan­úar 2016 í 1,35 millj­arð flettinga í mars 2019. 

Sam­kvæmt miðl­inum styrkja 655.000 manns hann mán­að­ar­lega en ásamt því höfðu 300.000 manns styrkt hann í eitt skipti á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár