Tíu ár frá því Aretha Franklin söng Obama inn í embætti forseta

Í dag eru tíu ár frá því að fyrsti svarti for­set­inn í sögu Banda­ríkj­anna, Barack Obama, tók form­lega við stjórn­ar­taumunum, mitt í dýpstu efna­hagslægð sem Banda­ríkin höfðu kom­ist í frá Krepp­unni miklu.

Í dag eru tíu ár frá því að Demókrat­inn Barack Obama tók við stjórn­ar­taumunum sem for­seti Banda­ríkj­anna. Hann var fyrsti svarti for­set­inn í sögu lands­ins. Hann sigr­aði kosn­ing­arnar 2008 og 2012 og var for­seti í átta ár, eins lengi og for­seti getur setið.

Aretha Franklin, söng­kona og bar­áttu­kona fyrir mann­rétt­indum svartra og kvenna í ára­tugi, söng við inn­setn­ing­ar­at­höfn­ina og líta margir til þeirrar stundar, sem hápunkts í mann­rétt­inda­sögu svartra í Banda­ríkj­unum. Aretha fædd­ist í Memphis 1942 en lést 18. ágúst í fyrra, í heima­borg sinni Detroit.

Aðstæður í land­inu voru um margt sér­kenni­legar þegar Obama tók við, þar sem Banda­ríkin voru í djúpri efna­hagslægð kjöl­far hruns á fjár­mála­mörk­uðum, en kreppan á árinu 2007 til 2009 var versta efna­hags­hrun sem Banda­ríkin - og raunar heim­ur­inn allur - höfðu gengið í gegnum frá Krepp­unni miklu á þriðja og fjórða ára­tug síð­ustu aldar.

Atvinnu­leysi var á hraðri upp­leið og fór að hæst í rúm­lega 11 pró­sent, að með­al­tali. Mörg svæði í Banda­ríkj­unum upp­lifðu hins vegar mun verri dýfu. Þetta mark­aði fyrstu árin í for­seta­tíð Obama, en á þeim átta árum sem hann var for­seti batn­aði efna­hagur lands­ins mikið, og hefur hann sjálfur talað um það sem sitt mesta afrek, að hafa náð að afstýra, í sam­vinnu við Seðla­banka Banda­ríkj­anna, meiri vanda­málum.

Óhætt er að segja önnur tíð sé nú uppi á hinu póli­tíska sviði, en Repúblikan­inn Donald Trump hefur haft það sem yfir­lýsta stefnu, í mörgum málum, að reyna að afstýra mörgu því sem Obama kom til leiðar. Sér­stak­lega hefur það verið sýni­legt í utan­rík­is­stefnu lands­ins og stefnu í heil­brigð­is­málum, en margt annað má telja til.

Staða efna­hags­mála í Banda­ríkj­unum þykir hins vegar nokkuð góð. Atvinnu­leysi er minnsta móti, eða um 4 pró­sent, og hag­vöxtur hefur verið við­var­andi 2 til 3 pró­sent á ári. Vextir Seðla­bank­ans hafa hækkað á und­an­förnu ári og eru nú 2,25 pró­sent.

Obama hefur á und­an­förnu ári blandað sér meira í banda­rísk stjórn­mál, með fundum og skrifum á opin­berum vett­vangi, og talað fyrir því að Demókratar nái vopnum sínum til að getað unnið Donald Trump í kosn­ing­unum 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár