Gylfi Zoega: „Þessir hagsmunaaðilar eiga dagblöðin“

Hags­munarimma hefur staðið á Íslandi í ára­tugi og orð Seðla­banka­stjóra um völd hags­muna­hópa komu því Gylfa Zoega, pró­fessor í hag­fræði, ekki á óvart. „Stríðs­kostn­að­ur­inn“ geti verið mik­ill þegar þessir aðilar séu skæðir.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði. Mynd: Háskóli Íslands

„Við, sam­starfs­menn hans í Háskóla Íslands í gegnum árin, höfum mörg staðið í þessum bar­dögum,“ segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, spurður hvort að hann þekki þá lýs­ingu Ásgeirs Jóns­sonar Seðla­banka­stjóra, að hags­muna­hópar stýri Íslandi og að erfitt sé að lenda uppi á kant við þá. Ásgeir lét þessi ummæli falla í við­tali við Stundina nýverið og við­brögðin við því hafa ekki látið á sér standa.

[links]Gylfi, sem var gestur þátt­ar­ins Sprengisands á Bylgj­unni í morgun, rifj­aði í þessu sam­bandi upp þegar hann ásamt kollega sínum í Háskóla Íslands tal­aði síð­asta sumar og haust fyrir almanna­hags­munum í sótt­vörnum; að passa ætti upp á landa­mærin og hafa þjóð­lífið inn­an­lands sem eðli­leg­ast. „Það var rimma við sér­hags­muni,“ segir Gylfi og bendir á að sér­hags­munir væru þá það sem gengi á skjön við almanna­hags­muni. Í þessu til­tekna til­viki voru það sam­tök í ferða­þjón­ustu sem vildu hafa landa­mærin sem mest opin, sem er að mati Gylfa „algjör­lega mis­skilin hags­muna­bar­átta því það skemmir ekk­ert meira fyrir [ferða­þjón­ust­unni] en að hafa far­sótt inn­an­lands“.

Aðrir kollegar Gylfa hafa bent á að skipt­ing á rent­unni af sjáv­ar­út­vegi sé ekki rétt­lát. „Það hefur verið ára­tuga hags­munarimma.“ Enn aðrir hafa bent á hvernig auka mætti hag­kvæmni í land­bún­aði. „Svo þetta er búið að vera í fleiri ára­tugi hér á landi,“ segir Gylfi en að slíkt hið sama sé uppi á ten­ingnum víða erlendis. „Þetta er úti um allt.“

Það sem hins vegar skipti máli sé að „stjórn­völd hugsi um almanna­hags­muni en ekki sér­hags­muni. Þetta verður auð­vitað að spill­ingu ef sér­hags­mun­irnir ná að umb­una ein­stökum stjórn­mála­mönnum í stað­inn fyrir greiða. Það er spill­ing.“

Það sem Gylfa fannst skrítið við frétta­flutn­ing af ummælum Seðla­banka­stjóra voru ekki orð hans heldur við­brögðin sem þau fengu. „Það var eins og það væri búið að finna upp hjólið.“ Svo þekkta segir hann þessa hags­muna­bar­áttu vera.

Spurður hvort að veist væri per­sónu­lega að sér­fræð­ingum sem tjá sig um ákveðin mál. „Það er smá stríðs­kostn­aður,“ svarar Gylfi. Sér­fræð­ingar hafi ákveðnum skyldum að gegna að rétta upp „rauð flögg“ telji þeir til­efni til. „Stríðs­kostn­að­ur­inn felist m.a. í því að fá „á sig bunur í dag­blöð­unum,“ segir Gylfi. „Þessir hags­muna­að­ilar eiga dag­blöðin.“ Það sama geti verið uppi á ten­ingnum í „netheimum“. Hann segir þennan stríðs­kostnað geta orðið mik­inn, „ef að þessir aðilar eru skæðir“ og seg­ist draga sig annað slagið í hlé í opin­berri umræðu vegna þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár