Ein milljón dýra- og plöntutegunda í útrýmingarhættu

Vegna ágangs manna á nátt­úr­una á síð­ustu ára­tugum á sér nú stað for­dæma­laus hnignun nátt­úru og líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika á jörð­inni, sam­kvæmt nýrri skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna. Allt að fjórð­ungur plöntu- og dýra­teg­unda eru nú í útrým­ing­ar­hættu.

Býflugnastofninn er í útrýmingarhættu
Býflugna­stofn­inn er í útrým­ing­ar­hættu Mynd: EPA

Líf­fræði­legur fjöl­breyti­leiki jarð­ar­innar er í gíf­ur­legri hættu vegna ágangs manna á nátt­úr­una á síð­ustu ára­tugum. Nú eru alls fjórð­ungur dýra- og plöntu­teg­unda á jörð­inni í útrým­ing­ar­hættu eða allt að ein milljón teg­unda. Þetta kemur fram í nýrri og umfangs­mik­illi skýrslu á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna um stöðu líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika og vist­kerfi jarð­ar­innar.

Fordæmalaus hnignun líffræðilegs fjölbreytileika og náttúru

Skýrslan er unnin af IP­BES, Inter­­govern­­mental Sci­ence-Poli­cy Plat­­form on Biod­i­versity and Ecosy­­stem Services, sem er stofn­unin á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna um líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika og vist­kerfi. Skýrslan er alls 1.800 blað­síður og var unnin af 450 vís­inda­mönnum. Í skýrsl­unni er kallað eftir taf­ar­lausum aðgerðum og varað er við því að ef ekk­ert verði gert munu kom­andi kyn­slóðir finna fyrir þeim alvar­legu afleið­ingum sem hrun lífs­kerfa sem sjá mann­inum fyrir mat og hreinu vatni fela í sér.

Kate Brauman, einn höf­undur skýrsl­unnar, segir í sam­tali við BBC að skýrslan sýni fram á virki­lega for­dæma­lausa hnignun líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika og nátt­úru. „Þetta er alger­lega ólíkt nokkru sem við höfum séð í sögu mann­kyns­ins hvað varðar hraða hnign­un­ar­innar og umfang ógn­ar­innar,“ segir Brauman [adspot]

Tap búsvæðis mesta ógnin

Frá árinu 1970 hefur mann­kynið tvö­fald­ast, hag­kerfi heims­ins fjór­fald­ast og alþjóð­leg við­skipti tífald­ast. Í skýrsl­unni er rakið hvernig hin sívax­andi eft­ir­spurnar mann­kyns­ins eftir mat­vælum og orku hefur haft í för með sér gríð­ar­lega eyði­legg­ingu á nátt­úr­unni. Meira en þriðj­ungur lands og um 75 pró­sent fersk vatns er nú varið til búfjár­rækt­unar og ann­arrar land­bún­að­ar­rækt­unar. Jafn­framt er nú um þriðj­ungur fiski­stofna heims­ins ofveiddir. Kóralrif hafa minnkað um nærri því helm­ing á 150 árum og jarð­vegur stendur nú undir tæp­lega fjórð­ungi minni land­bún­að­ar­fram­leiðslu en áður vegna eyð­ingar hans.

Auk þess­arar gríð­ar­legrar land­nýt­ingar sem gengur á búsvæði líf­vera hafa menn einnig valdið menn stór­tækum spjöllum á nátt­úr­unni. Frá árinu 1980 hefur út­blástur gróður­húsa­teg­unda tvö­fald­ast og meðal­hiti jarðar hefur hækkað um 0,7 gráður á sels­íus. Á sama tíma hefur plast­mengun auk­ist tífalt frá 1980 og árlega dæla menn 300 til 400 millj­ónum tonna af þunga­málmum, upp­leysan­legum efnum og öðrum úr­gangi í vötn og sjó um allan heim. Þá hefa á­burðir sem endað hafa í vist­kerfum við strendur hafa búið til um 400 dauð svæði í sjónum sem sam­svarar um 245 þús­und fer­kíló­metrum.

Þetta gríð­ar­lega vist­fræði­legt fót­spor mann­kyns­ins gerir það að verkum að hálf milljón teg­unda hafa ekki búsvæði til fram­tíðar og munu þessar teg­undir deyja út út innan fárra ára­tuga ef ekki verður brugð­ist við.

Hægt að snúa þróuninni við

Í skýrsl­unni er ítrekað á það sé jafn mik­il­vægt að bjarga teg­undum í útrým­ing­ar­hættu eins og að takast á við loft­lags­breyt­ingar enda hald­ast þessi vanda­mál í hendur. Bæði vanda­málin ýti undir hvert annað þar sem hlýrri heimur þýði færri teg­undir og minni líf­fræði­legur fjöl­breyti­leiki þýði færri tré og plöntur til að fjar­lægja kol­tví­sýr­ing úr loft­inu.

Robert Watson, for­svars­maður skýrsl­unnar, segir að þessi staða sé ógn við lífs­við­ur­væri mann­kyns­ins. „Heil­brigði vist­kerfa sem við öll og aðrar teg­undir treysta á fer hrak­andi hraðar en við höfum séð áður. Við erum að eyða grunni hag­kerfa okkar, lífs­viður­væris okkar, matar­öryggis, heil­brigðis og lífs­gæða okkar um allan heim,“

Tekið er fram í skýrsl­unni að hægt sé að snúa þró­un­inni við en til þess þurfi grund­vallar breyt­ingar á því hvernig mann­kynið ræktar mat, fram­leiðir orku, tekst á loft­lags­breyt­ingum og dregur úr sóun. Því er kallað eftir sam­eig­in­legu átaki rík­is­stjórna, fyr­ir­tæki og ein­stak­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár